Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.1983, Qupperneq 19

Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.1983, Qupperneq 19
DV. FÖSTUDAGUR 30. DESEMBER1983. Norman Bates er aftur kominn á stjá, tuttugu og þrem árum eftir aö hann sást fyrst á hvíta tjaldinu, í kvik- mynd Alfreds Hitchcocks, Psycho. Það er leikstjórinn Richard Franklin sem var nógu djarfur til að takast á hendur það verk að prjóna aftan við snilldarverk meist- ara hryllingsmyndanna. Leikararnir í Psycho II eru margir hverjir hinir sömu og í fyrra stykkinu og ber þar fyrstan frægan að telja Anthony Perkins sem leikur Norman Bates. Leikstjórinn Richard Franklin tef ldi djarf t þegar hann ákvað að gera Psycho II og skellti ungri leikkonu ísturtubad Vera Miles leikur Lilu ööru sinni en Lila þessi er systir Marion Crane, stúlkunnar sem stungin var í sturtuatriöinu fræga, en þaö var Janet Leigh sem lék stúlkuna í sturt- unni. Leigh kemur ekki nálægt Psycho II aö ööru leyti en því að sagnir herma aö hún hafi gefið góöfúslegt leyfi til aö sturtuatriöiö væri endurtekið og þáöi meira aö segja dálaglega fúlgu fyrir leyfis- veitinguna. Eins og menn muna líklega endaöi hin upprunalega Psycho á því aö Norman Bates var dæmdur til vistar á geösjúkrahúsi og þótti ekki líklegur til afturbata, heyrandi rödd móöur sinnar sem skipaöi honum aö inna af hendi ýmis óhæfuverk. En engum er alls varnað og í Psycho II er Bates oröinn frjáls maöur á ný. Hann er reynslunni ríkari eftir 22 ár á geöveikrahæli og virðist viö fyrstu sýn hafa náð allgóðri heilsu. Húsið drungalega úr Psycho er enn á sínum staö og áhorfandanum veröur brátt ljóst aö þaö er einungis spurning um mínútur þar til Norman Bates tekur upp þráöinn þar sem hann varö frá aö hverfa fyrir rúmum tveim áratugum. Lilaí hefndarhug Og ekki skortir Norman hjálp til aö hefja nýjar martraðir. Lila hefur nefnilega fullan hug á aö hefna fyrir Marion systur sína því að henni finnst morðinginn hafa sloppið full- billega frá ódæöinu; dæmdur ósak- hæfur vegna geðveiki og fær síðan spítalavist og læknishjálp á kostnað hins opinbera. Ýmsir húsmunir taka því á rás meö dyggilegri aðstoð Lilu og ekki vantar neitt á aö óvæntur hávaöi og óhugnanleg hljóð nái að trufla viökvæmt jafnvægið sem náöst hefur í huga Normans. Norman er þó rétt hjálparhönd og það er ung þjónustustúlka sem þaö gerir. „Það er góö lykt af þér,” segir Norman viö þjónustustúlkuna Mary og áhorfandinn tekur aö velta því fyrir sér hvort hann sé nú orðinn ást- fanginn og þokkalega eðlilegur í háttum. En svariö fæst fljótlega. Það er ekki Chanel 19 eöa nýja sjampóið stúlkunnar sem heillar heldur hefur hún nýlokiö viö aö rista ostasamloku, alveg samskonar fæöu og móðir Norman var vön aö framreiða. Óvæntir hlykkir á söguþræði Lila er skilningssljó og ofstopafull í ofsóknum sínum gegn Norman og brátt viröist þjónustan Mary í hættu stödd, ekki síst þegar ljóst verður aö hún er vön aö skola af sér meö því aö bregöa sér í hressandi sturtubaö. En leikstjórinn Richard Franklin og handritshöfundurinn Tom Holland eru ekki gefnir fyrir ódýrar lausnir og þaö er einmitt höfuökosturinn á Psycho II. Endir- inn á myndinni kemur rækilega á óvart eins og reyndar mestur hlutinn af söguþræöinum. Aöstandendur myndarinnar eru því í reynd verðug- ir arftakar Hitchcocks gamla, reyna ekki bara að selja myndina út á frægt nafn gamla mannsins og þá um leiö nafn frægustu myndar hans. Franklin leikstjóri leikur sér aö því aö leyfa áhorfendum aö gæla viö þá hugmynd aö hér sé á ferðinni ein af hinum dæmigerðu kvikmyndum sem hafa rómverska tölustafinn II í cndanum á titilinum, en þegar minnst varir tekur söguþráðurinn á sig óvæntan hlykk. Perkins samur við sig Leikur Anthony Perkins átti ekki minnstan þátt í velgengni Psycho og sama máli gegnir um Psycho II. Perkins er nú nokkuð hrukkóttari en ■■B mmmmss"' ngur lan§ «« —»'sr izæzzzz kann ekki ævmlega góðri lukk ty Norman, en efst ihægra Psycho árið 1960. hann var 1960 þegar samstarf hans og Hitchcocks stóö sem hæst, en hann er enn sama horrenglan og á jafnlétt með aö sannfæra áhorfendur um aö persónan sem hann leikur sé alveg að fara yfirum á taugum. Perkins er nú 51 árs gamall, en hann hóf feril sinn sem kvikmynda- leikari fyrir 30 árum, þegar hann lék í kvikmyndinni The Actress. Síöan hefur hann sést í fjölda mynda, en hlutverkið sem flestir muna hann í er þó líklega og veröur hlutverk Normans Bates í Psycho. Perkins lýsir samstarfi sínu og Hitchcocks nokkuð í nýlegu viötali viö tímaritið Movies & Video. Leikarar hafa löngum verið drjúgir við aö segja frá fúlmennsku gamla leikstjórans í þeirra garö, en hjá Perkins kveöur við annan tón. „Hann hlustaði alltaf á skoðanir mínar,” segir Perkins um Hitch. „Hann gaf mér ákaflega frjálsar hendur viö vinnuna og ég átti drjúgan þátt í að móta persónuleika Normans. Stundum kom ég með til- lögur í sambandi viö hluti sem hann hafði ekki tekið eftir og ég sá aö gamlir samstarfsmenn hans uröu skrýtnir í framan og biöu eftir því að ég yröi brytjaöur niöur með meinlegum athugasemdum. En öllum til undrunar hlustaði hann á mig og sagði: „Gott, ágæt hugmynd, skellum okkur í þetta.” Hann kom jafnvel til mín og leitaöi álits hjá mér og þaö eru satt aö segja ekki margir leikstjórar sem hafa komiö svona fram viðmig.” Myndum fórnar- lambið Norman Bates Psycho II er í rauninni kvikmynd um Norman Bates og hugarvíl hans á meðan hin upphaflega Psycho var fyrst og fremst sagan um örlög Marion Crane. I fyrri myndinni er Norman og móðir hans meira eins og hliðarspor út af brautinni sem liggur frá dauöa Marion til þeirrar stundar er ljóst veröur hvaö fyrir hana hefur komið. I Psycho gerir Norman sér enga grein fyrir geöklofanum og heldur í sjúkdómsórum sínum aö hann búi enn ásamt móöur sinni í drungalegu hótelinu. I Psycho II hefur honum skilist hversu hættulegur sjúkdómur hans er í rauninni og aö hryllilegir atburðir geta enn gerst. Psycho II þykir sérstaklega vel heppnuö „framhaldsmynd”, og þaö er ekki ómerkilegt aö mönnum skuli hafa tekist aö bæta aftan viö eitt af meistarastykkjum Hitchcocks án þess aö veröa sér til skammar. Leikararnir, ekki síst Perkins og Meg Tilly í hlutverki Mary, hafa fengiö dágóða dóma. Gamlir Psycho- aðdáendur geta óhræddir farið aö sjá kveöju Richard Franklins til gamla mannsins og þekktustu myndar hans. -SKJ Mary reynir að hlúa að Norman sem enn ó isóiarkreppu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.