Dagblaðið Vísir - DV - 07.01.1984, Qupperneq 2

Dagblaðið Vísir - DV - 07.01.1984, Qupperneq 2
2 DV. LAUGARDAGUR 7. JANUAR1984. Dregið í jólagetraun DV: Fyrstu verölaun fóru upp á Skaga — og6. verðlaun líka Starfsmenn Akranesbæjar unnu í gær aö hreinsun og lagfæringum eftir sjávarganginn í fyrradag. Starfsmenn fyrirtækja, sem uröu fyrir tjóni, höföu og næg verkefni viö aö laga til. I mörgum íbúðarhúsum þurfti heimilisfólkiö einnig að taka til hendinni. „Þaö er geysimikið starf eftir viö aö hreinsa,” sagöi Daníel Arnason bæjartæknifræöingur í samtali viö DV. Bæjarstarfsmenn unnu aö því aö skrá skemmdir. Tryggingamenn voru mættir í bæinn til aö meta tjóniö. Ljóst er aö iðnaöarhverfið viö Ægisbraut varð verst úti. Stór- skemmdir uröu einnig á byggingu Haralds Böövarssonar. Tvö skörö komu í hafnargarð í Lambhúsasundi en aöalhafnargaröurinn slapp. Enn- fremur hrundu skreiöarhjallar á Breiö. Mörg íbúöarhús uröu einnig fyrir tjóni. -KMU. Sjötugur maður er. TÝNDUR Lýst er eftir 70 ára gömlum manni Kristjáni Jenssyni, Alftamýri 10 Rvík. Kristján er 175 cm hár, þrekvax- Þessi maður er týndur. Hann heitir Kristján Jensson til heimilis aö Alftamýri 10 Reykjavík. Síðast sást til hans við heimili hans um klukkan tvö aðfaranótt miðvikudags. inn, gráhæröur og notar gleraugu. Hann var kiæddur í brúnan mokka- jakka, gráar buxur og í svörtum skóm. Hann var með brúna mokka- húfu og með brúnar mokkalúffur. Kristján sást síðast viö heimili sitt um kl. 02.00 sl. miövikudag. Þeir sem geta gefið upplýsingar um ferðir Kristjáns eftir þann tíma vinsamleg- I ast láti lögregluna vita. -JGH. — spurðu vinningshaf arnir á Akranesi þegar þeim var tilkynnt um tölvuna sem eráleið tilþeirra „Jú, þaö ætti ekki aö vera verra aö eiga tölvu,” sagði Jón M. Jónsson raf- suðumaöur á Akranesi þegar honum var tilkynnt um að hann heföi hreppt fyrstu verðlaun í jólagetraun DV að þessu sinni. „Annars er heiöurinn ekki múin því þaö var konan sem fyllti út seðlana, ég stend aldrei í svoleiðis löguöu, lætmér nægja aölesa blaöiö.” Eiginkona Jóns, Rut Hjartardóttir, segist ekki vera vön aö vinna í svona getraunum eöa öörum „lotteríum” þó aöhún sé iöin viö aö taka þátt í sliku. „Viö erum náttúrlega ákaflega ánægð meö aö hafa unnið tölvuna en ég ■veit samt ekki almennilega hvaö maöurá aögera viöslíkahluti.” — Þær geta víst allt. „Ef þessi nýja eign okkar getur soöið mat þá er ég ánægö,” sagöi Rut, „svo ég tali nú ekki um ef hún gæti rafsoðið fyrir manninn minn”. Jón M. Jónsson og Rut Hjartardóttir búa á Reynigrund 5 á Akranesi ásamt 3 börnum sínum og DV óskar þeim til hamingju meö nýju fjölskyldumeð- liminn. -EIR. Þaö var mikill spenningur á rit- stjórnarskrifstofum DV í gærmorgun og ekki aö ástæöulausu. Þaö var von á vini okkar, honum Stubbi, sem hafði lofaö aö draga í stórglæsilegri jólaget- raun okkar og hans þar sem verömæti vinninga nam tugum þúsunda — allt frá Radíóbúöinni í Skipholti. Þátttaka lesenda DV í getrauninni var meö eindæmum góö, mörg þúsund lausnir bárust frá ungum jafnt sem öldnum og þaö verður aö segja lesend- um okkar tii hróss aö langflestar voru þær réttar. Þaö sama verður ekki sagt um loforö vinar okkar Stubbs um aö koma í heimsókn til okkar á þrettánd- anum og draga úr réttum lausnum. A síöustu stundu barst skeyti ofan af fjöllum þar sem stóö: — Kemst ekki / stopp / vegna óveðurs / stopp / Stubbur/stopp. Því varö aö ráöi aö fá aö láni Guörúnu Hjörleifsdóttur ritara úr vistarverum yfirmannanna og meö bundið fyrir augun dró hún 6 umslög úr bunkanum stóra sem fyUti nær því heilt herbergi. Og þá koma vinningshafarnir: Fyrstu verölaun, APPLE Il-tölva aö verðmæti 22000 krónur komu í hlut Jóns M. Jónssonar, Reynigrund 5 á Akranesi. Onnur og þriöju verölaun, takkasím- ar meö 10 númera minni fengu þau Fyrstu verðlaun í jólagetraun DV, APPLE II-tölva, eru engtn smásmíð eins og sést hér á myndinni en hún ætti samt að komast upp á Skaga þar sem Jón M. Jóns- son og fjölskylda bíða spennt. Júlíus Helgi Eyjólfsson, Sæviöarsundi 29 í Reykjavík og Eygló Friöriksdóttir, Strandgötu 83 á Eskifiröi. Fjórðu, fimmtu og sjöttu verðlaun, Clairol likamsnuddtæki komu í hlut Þóru Bjarkar Magnúsdóttur, Mööru- felli 3 í Reykjavík, Hrafnhildar O. Siguröardóttur, Grófarseli 24 Reykja- vík, og Omars Ragnarssonar, Sóleyjargötu 6 á Akranesi. DV og Stubbur óska vinningshöfun- um til hamingju meö jólaglaöninginn þó seint sé og þakka jafnframt öllum þeim þúsundum sem tóku þátt í leikn- um. Þeir fá annaö tækifæri um næstu jól. -EIR. Guðrún Hjörleifsdóttir með umslögin 6. Vinningarnir eru í böfn hjá þeim heppnu. GETUR HÚN ELDAÐ MAT? AKRANESBÆR í HREINGERNINGU EFTIR ÓVEÐRIÐ Jón M. Jónsson og Rut Hjartardóttir ásamt börnum sínum.Hirti, Dagnýju og Hörpu, á heimiii sínu á Akranesi í gær. DV-myiid Dúi Landmark.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.