Dagblaðið Vísir - DV - 07.01.1984, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 07.01.1984, Blaðsíða 3
DV. LAUGARDAGUR 7. JANUAR1984. 3 Deilum um eggjasamlagið ekki lokið: Ursagnir félagsmanna ekki teknar til greina Deilum innan Sambands eggja- framleiöenda er ekki lokiö enn þrátt fyrir aö andstæöingar eggjadreifing- arstöövarinnar hafi sagt sig úr fé- laginu á aöalfundi sem haldinn var skömmu fyrir áramót. Nýkjörinn stjórn félagsins neitar nú að viöur- kenna aö úrsagnirnar séu gildar nema hjá tveimur félögum af þeim átján sem gengu út af aöalfundinum. A félagsfundi Sambands eggja- framleiöenda í nóvember var borin fram frávísunartillaga á tillögu um stofnun eggjasamlags. Undir frá- vísunartillöguna rituöu 25 félags- menn og sagöi í þeirri tillögu aö ef samþykkt yröi aö stofna eggja- dreifingarstöð myndu þeir segja sig úr félaginu. Afgreiöslu málsins var síðan frestaö fram til aðalfundarins og þar var hún borin fram aftur. Þá var hún felld meö 21 atkvæöi gegn 18 og þeir sem skrifaö höföu undir til- löguna gengu þá af fundi og litu svo á aö þeir heföu sagt sig úr félaginu. I fréttatilkynningu sem nýkjörin stjórn hefur sent frá sér segir aö þar sem frávísunartillagan hafi byggst á röngum forsendum þegar hún kom fram á aðalfundinum sjái stjórnin sér ekki fært aö taka undirskriftir fé- lagsmanna á tillögunni sem úrsögn úr félaginu. Frávísunartillagan hafi gert ráö fyrir aö eggjasamlagi Sambands eggjaframleiðenda yröi veitt einkasöluleyfi en þar sem Framleiðsluráð landbúnaöarins hafi iýst yfir aö svo yröi ekki væri þesi forsenda brostin. „Þaö hefur engum dottiö í hug aö þvinga neinn inn í eggjadreifingar- stöðina. Þeir sem vilja getaö staðið utan viö hana þótt þeir veröi áfram í félaginu,” sagði Þorsteinn Sigmundsson, núverandi formaður félagsins, í saintali við DV í gær. Sagöi hann aö stjórnin liti svo á aö aðeins þeir tveir menn sem lýstu yfir úrsögn á aöalfundinum væru form- lega gengnir úr félaginu en undir- skriftir hinna undir frávísunartil- löguna væru ekki teknar til greina af fyrrgreindum ástæöum. Samkvæmt lögum félagsins tekur úrsögn ekki gildi fvrr en næstu áramót eftir aö rnn kemur fram. „Viö munum sýna þaö í starfi aö viö erum ekki .í félaginu,” sagöi Gunnar Jóhannsson, einn þeirra 25 sem skrifuðu undir frávísunartil- löguna., ,Við þurfum ekkert aö sanna þaö aö viö séum ekki í félagi sem viö viljum ekki vera í. Ef þeir vilja láta þetta ganga svo langt aö þetta veröi útkljáö fyrir dómstólum þá er ég ekki í vafa um málalyktir.” Sagöi Gunnar aö meö þessu væri stjórn fé- lagsins aö reyna að villa um fyrir stjórnvöldum og reyna aö láta líta svo út sem fleiri stæöu aö baki eggja- samlaginu en væru í raun. Gunnar Jóhannsson sagöi aö and- stæðingar eggjasamlagsins ættu um 60% af varphænustofninum í landinu, fylgjendur þess ættu um 15%, óvisst væri um afstööu eigenda 8% en eigendur 17% af varphænu- stofninum væru utan markaössvæðis stöðvarinnar. Gert er ráð fyrir að markaðssvæði eggjasamlagsins nái vestan af Snæfellsnesi og austur aö Markarfljóti. Sagöi Gunnar aö and- stæöingar eggjasamlagsins á þessu svæöi framleiddu um 72% af þeim eggjum sem væru á markaði innan þessa svæöis. Gunnar sagöi aö þeir væru tilbúnir aö sanna þetta meö því aö leggja fram nafnalista. Stjórn félagsins fær þó aörar tölur úr sinum útreikningum. I fréttatil- kynningunni segir aö þeir 18 sem gengu af aðalfundinum eigi samtals 126 þúsund varphænur af um 292 þúsund varphænum á öllu landinu, eöa um43%. Agreiningurinn um hvernig reikna beri fylgi og andstööu viö eggja- samlagiö stafar meöal annars af því :iö á þeim grundvelli mun landbún- aöarráöherra taka sína afstööu. Landbúnaöarráöherra haföi gefið vil- yröi fyrir 5,3 milljón króna styrk til stofnunar eggjasamlagsins en for- senda þess var aö samstaða yrði um málið innan Sambands eggja- framleiöenda. Hann hefur því tekiö sér frest til aö taka endanlega ákvörðun. -ÓEF. Skíða- og skautafæri: Bærilegt ef veður verður skaplegt Skiðasvæðiö í Bláfjöllum var opnaö almenningi klukkan tiu í morgun en snjómokstur af veginum upp eftir og bilastæöunum hefur staðið yfir frá því í gærdag. Nægur snjór er á svæöinu og veröa allar lyftur í gangi nema nýja lyftan og lokaprófun á henni hefur ekki farið fram eftir viögeröina sem nýlokið er. Veöurútlit er allgott og má því búast við miklum fjölda skíöaunn- enda í Bláfjöll um helgina. Leiöin upp eftir er greiöfær öllum bílum en þó er vissara aö hafa bílana vel útbúna og vera ölluviðbúinn. A Akureyri hefur einnig veriö erfitt að komast á skíöi vegna veöurs en síöast þegar fréttist í gærkvöldi var komið ágætisveöur og menn aö tygja sig á skíöi. Skíðasvæöið i Hlíöarfjalli veröur opiö um helgina frá klukkan 10.30 til klukkan 16 og báöar lyfturnar veröa í gangi. Skautaunnendur í Reykjavík gætu athugað meö skautafæriö á Melavell- inum í dag en i ráöi var aö sprauta vatni á svellið í morgun. Erfiölega hefur gengiö aö undanförnu aö halda svellinu hreinu vegna fannfergis. Ekkert skautasvell er um aö ræöa á Tjörninni. Þar er allt á kafi í snjó og enginn vegur aö ryöja honum burt. -SÞS Þafl var viðar en á Reykjanestánni og Akranesi sem sjórinn gerði mikinn usla í óveðrinu i vikunni. Þessi mynd er tekin úti i Gróttu á Seltjarnarnesi, en þar braut sjórinn gamlan varnargarð og þeyttist grjótið úr honum og fjörunni langt upp á land. Verður mikið verk að koma hlutunum þar aftur i samt lag eins og viða annars staðar á Nesinu og raunar við Faxaflóann allan. -klp-/DV-mynd GVA. VtaERPL^y Elskaðu sjálfafn) þigi KONUR Þriðjud.— fimmtud. — laugard. • MÚSÍKLEIKFIMI • ÞREK • SLÖKUN LJÓS - GUFA - KAFFI KARLAR Mánud. —miðvikud. —laugard. • LEIKFIMI • ÞREK • SLÚKUN LJÓS — GUFA — KAFFI Innritun og upplýsingar í Gerpluhúsi og símum 74925og 74907. ÍÞRÓTTAFÉLAGIÐ GERPLA IDOO! Halló krakkar og ctdrir! h'rttm nýkomnar frá London med allt þad nýjasía (og vid eigum vid þad allra nýjasta), t.d. kennum vi<) lotu tír ,. ('ats og einnig hinum nýja Dancing, og fullt af frábœrum dönsttm. Atílll: Tónabcer. FellaheUir, Tess, Hafnarfirói. Afhending skírteina fer e laugardaginn 7. janúar milli kl. 1 ■> og If). Yngst lekió 8 ianúár. ' P Kœr kvéðia, ' ~ ára. SÍMAR: Klukkan 10 — 12 H lökkltm lil aó J J —j //•/'/' , - 78108 °9 1 — 7 sjáumst. sját gkkttr. JTlu r\jCCj. oe /-/ccPC'CZC

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.