Dagblaðið Vísir - DV - 07.01.1984, Síða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 07.01.1984, Síða 4
4 Fréttajjcs DV. LAUGARDAGUR 7. JANUAR 1984. Skreiðarmarkaðurinn í Nígeríu undir byltingarstjórn Buharis: Mútukerfið afnumið? Hærra skilaverð? Meiri skreiðarsala? • % jákvæða bannað, jafnvel til samanburðar, þótt ekki væri nú meira?" Þetta sagði þekktur skreiðarútflytj- andi í sam tali við D V á dögunum. B V-m ynd. Skreið, sem er hertur fiskur og hertir fiskhausar, er á margan hátt merkileg útflutningsvara. I opinber- um skýrslum og þess heldur í munni fiskverkenda og fiskseljenda eru þetta tvær skyldar vörutegundir. En í hugskoti annarra er varla geröur greinarmunur á því hvort rætt er um hertan fiskbúk eða hertan f iskhaus. Almenningur í landinu sér þennan • varning sem slíkan nær eingöngu á myndum eða hangandi í trönum víös vegar i kringum útgerðarpláss. Það er varla að fólk, nema þá nátengt sjósókn og fiskverkun, skynji frænd- semi harðfisks og bitafisks við skreiðina. Og ég að minnsta kosti man ekki eftir haröhausum eða bita- hausum í búöum. Hertur fiskbúkur og hertur fisk- haus veröa eitt hér undir skreiðar- nafninu. Enda voru þeir óaðskiljan- legir í lifanda lífi og eru það deyddir og hertir nema hvað hlutarnir seljast á mismunandi verði. 890 milljónir í fyrra Ekki er það leyndarmál að sá botn- fiskur sem við köllum góðan fisk er fyrst og fremst nýttur í frystingu sé hann ekki seldur ferskur. Ellegar til söltunar þar sem frystingu verður ekki við komið eða að vissu marki til jafns við frystinguna. En síöan til herslu, í þessa svokölluðu skreiö. Þetta er þó alls ekki einhlítt lögmál og það er ekki fremur gæðamunur en stæröarmunur sem ræöur örlögum fisks í skreið. Sá litli hentar sem dæmi hvergi betur. A nýliðnu ári fluttum viö út fiskaf- urðir fyrir um 15.000 milljónir króna. Þar af skreiö (búka og hausa) fyrir um 890 milljónir. Af þessum tölum má marka þýðingu skreiðarinnar í útflutningi fiskafurða eins og ástatt var á fiskmörkuðum okkar þetta einaár. Ailt til Nigeriu Það er einstakt við sölu skreiöar- innar að hún er öll seld til eins lands, til Nígeríu. Samkvæmt landabréfa- bók er Nígería viö Gíneuflóa inn af Atlantshafi og afskaplega nærri mið- baug jaröar. Landið er næstum nífalt stærra en Island. Og íbúarnir eru taldir vera langt í 100 milljónir, á ýmsan hátt sundurleitir og talandi á um 200 tungum og mállýskum. Af sjálfu leiðir að skreiðarsala okkar til þessarar þjóöar, sé hægt aö tala um eina þjóð, er ekkert sem varðar almannaheill í Nígeríu. En hún byggist á þvi aö einhvern tímann og með einhverjum hætti varö skreið herramannsmatur í orösins fyllstu merkingu, þó nær aðeins í suðurhluta landsins, viðsjóinn. Mín vegna gæti þessi fíkn átt rætur aö rekja til einhvers samkrulls úr tengslum Breta og Nígeríumanna, en Nígería var bresk nýlenda lengi og til 1960. Það er aukaatriöi í málinu hvar skreiðarneyslan byrjaði. Ollu varðar að nógu margir Nígeríumenn eru svo sólgnir í skreiöina aö hún er og verðursöluvara þar. Tvö „gagnkvæm góöæri" Eftir að olía fannst í Nígeríu tók allt aö snúast um hana í þjóöarfram- leiðslunni. Umfangsmikilli matvæla- framleiðslu var ýtt til hliðar og á seinni hluta áttunda áratugarins settu þeir traust sitt fullkomlega á olíuna. Það stóöst á endum. Nígeríumenn höföu grætt ógrynni á olíunni. Yfir okkur dundi veröfall á helstu fisk- afurðunum meö fangiö fullt af fiski. Viö settum kúfinn í skreið og seldum 1980 og 1981 heil firn af þessum herramannsmat til Nígeríu. 1981 voru það 19.000 tonn af búkum og 6.800 tonn af hausum. En það svar- ar til 146.000 tonna af fiski upp úr sjó, því 7,7 tonn þarf úr s jónum til þess að búa til tonn af hertum búkum. Þetta voru tvö „gagnkvæm góð- æri” í skreiðarviðskiptum okkar við Nígeríumenn. Breytt staða, nýir siðir A þessum sömu árum breyttust hins vegar framtíðarhorfur beggja, þjóðanna. Olían hrapaöi í tekjum Nígeríu um nærri 60% vegna verö- falls og takmörkunar á framleiðslu vegna markaösaðstæðna. Og um líkt leyti hækkaði aftur verð á helstu fisk- afurðum okkar. Það er ljóst að ís- lenskir fiskverkendur og útflytjend- ur skynjuðu ekki þessar breytingar nógu tímanlega. Of mikið var verkað ískreiðof lengi. Þó er óvíst hverju þetta munaði. Bæði var afli góöur og upp voru tekn- ir í miklu ríkari mæli en áður í Nígeríu siðir í viðskiptum, sem islenskum ráðamönnum voru lítt þóknanlegir. Mútur í gervi æ hækk- andi afsláttar frá umsömdu, opin- beruverði. Norömenn, sem eru einu keppi- nautar okkar á skreiðarmarkaðnum í Nígeríu, voru næmari á nýju siðina og það kom ljóst fram í tölum yfir skreiðarsöluna 1982. Nýir siðir og bylting A gamlársdag nú nýlega tók her- byltingarstjórn völdin af rúmlega fjögurra ára og nýendurkjörinni lýðræöisstjórn. Gegn spillingu og þar meömútum. Skreiðarsala okkar og Norðmanna til Nígeríu síðustu tvö ár eru talandi dæmi um kerfiö þar, sem nú á aö kæfaog uppræta. A þessum árum hafa matvælakaup Nígeríumanna veriö háð leyfum stjórnvalda og samt verið fengin í mikilli samkepnni innflytjenda sem' hér hafa kallast umboðsmenn. Skreiöarkaup hafa verið hreint smá- ræði í öliu þessu dæmi eins og gefur að skilja. Umboösmennirnir hafa því hreint ekki veriö aö etja okkur og Umsjón: Herbert Guðmundsson Norðmönnum saman um skreiðar- sölu. Þarna höfum við veriö peö í hópi matvælaframleiðenda almennt. Samt með dáUtla sérstööu vegna fíknar nokkurra sunnanmanna af þessari 100 milljóna þjóð. Þaö voru og eru talin eöUleg um- boðslaun tU umboðsmannanna aö greiöa þeim 2—4% sem afslátt af söluandvirði. En í kapphlaupi níger- ískra umboðsmanna um innflutn- ingsleyfi vegna matvæla ruku nú umboðslaunin upp og síðast í 20%, jafnvel 25%. Muninn á eðUlegumum- boðslaunum og þessum umboðslaun- um notuðu þeir síöan almennt tU þess að „kaupa” innflutningsleyfi. Meö öðrum orðum tU þess aö múta embætissmönnum og ekki síður stjórnmálamönnum. Opinbert leyndarmál Viöskiptahættir af þessu tagi hefðu heldur betur hrist upp í Bandaríkja- mönnum eins og dæmin sanna. En víða í Evrópu þykir ekki ástæða til þess aö æsa sig út af þeim. Norðmenn lögðu sem dæmi blessun sína yfir þá opinberlega með ríkis- ábyrgö. Hér tregðuðust stjórnvöld við að „líta fram hjá” þeim og þess vegna varð skreiðarsala okkar 1982 hreint smáræði eftir metsöluárið 1981. En Norðmenn seldu mUilu meira. Það hefur ekki veriö opinberlega viðurkennt að íslenskir útflytjendur hafi selt Nígeríumönnum skreiö síð- ustu misseri meö aUt að 20% afslætti til umboðsmannanna. Það er samt vitaö og er opinbert leyndarmál. Greiðslur þessara umboðslauna hafa ekki farið undir borðið heldur eftir venjulegum viðskiptaleiðum og því meö samþykki stjórnvalda. Mútukerfið afnumið? Viðmælendur mínir um Nígeríu- málerusammála umaðMohammed Buhari hershöfðingi, sem nú fer meö forsetavald í Nígeríu, sé einlægur í baráttu gegn spillingu í viðskiptalíf- ini og aö mútur í tengslum viö inn- flutning og leyfisveitingar hverfi að mestu eða öllu nú þegar. En þeir eru ekki jafnvissir um að þar með hafi þær endanlega verið afnumdar. Mútukerfið sé rótgróið í fjölmennu embættismannaliði hjá þessari geysifjölmennu þjóö og Buhari muni þurfa á stuðningi þess að halda. Ogerlegt sé aö skipta um liö nema eiga upplausn á hættu. Þaö sé þvi vissara aö slá engu föstu um afdrif mútuspillingar um aldur og ævi. Hærra skilaverð? En hvaða þýðingu hefur það fyrir okkur ef umboðslaun lækka nú úr 20%, sumir segja jafnvel 25%, niður í 2—4%. Fáum við þá þeim mun meira fyrir þá skreið sem við kunnum aö selja Nígeríumönnumá næstunni? Verösamningur sem gilt hefur síð- ustu tvö ár var um dollaraverö á tonn eða pakka. Dollarinn hefur sem kunnugt er sífellt hækkað að verö- gildi. Þegar af þeirri ástæöu má bú- ast viö aö gjaldmiðill Nígeríu verði felldur gagnvart dollara. Þaðer önn- ur ástæða fyrir líklegri afstöðu Nígeríumanna. Loks þarf ekki að segja núverandi valdhöfum frekar en fyrrverandi hvernig umboðsmönnum tókst að veröa sér úti um gilda mútusjóöi. Sú dulda verðlækkun var og er stjórn- völdum í Nígeríu ljós. Vafalítiö ganga þau á lagiö. Þaö eru spádómar fróðra manna um skreiöarmálin að við getum kall- ast góðir ef við höldum því raunveru- lega skilaverði fyrir skreiðina sem gilt hefur síöustu tvö ár. Meiri skreiðarsala? Skreiðarsala okkar og Norðmanna hefur verið þessi síðustu þr jú ár: Isl. tn. Nor.tn. 1981: bú. 19.000 22.000 hau: 6.800 3.600 1982: bú. 4.260 11.000 hau. 3.240 540 1983: bú. 6.700 6.700 hau. 5.400 3.000 Hér stendur bú. fyrir búka og hau. fyrir hausa. Og þetta er sem sagt jafnframt umfang skreiðarmarkaðsins í Nígeríu því aðrar þjóðir selja ekki þangað fisk af þessu tagi. Það virðist nokkuð samdóma álit að svipuð sala í ár og í fyrra nægi okkur. En þaö sé jafnvel óvíst að við getum boöið nóg vegna aflatakmark- ana. I skreið notum við aöallega þorsk, þá nokkuðaf ufsa, keilu, löngu (mest blálöngu) og lítilsháttar af ýsu. A aöaltegundunum er nú í gildi um 350.000 tonna aflahámark. En til þess aö geta boðið 7.000 tonn af skreið þarf 54.000 tonn af fiski úr sjó. I annan staö eru skreiöarseljendur hér ekki öruggir um áhuga núver- andi valdhafa í Nígeríu á því aö kaupa herramannsmat ofan í sunn- lendinga. Þeir eru nefnilega aðallega norölendjngar. Þó er engan veginn fullvíst aö það setji strik í reikning- inn. Og því skyldu ekki noröanmenn sem komnir eru til þess aö uppræta spiilingu og misrétti unna sunnan- mönnum mata r síns ? Allt sem gerist í þessum málum og málum Nígeríu almennt um þessar mundir vegur óneitanlega talsvert í okkar pyngjum, til eða frá, þótt skreiðin sé ekki með aldrýgstu auös- uppsprcttunum. HERB

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.