Dagblaðið Vísir - DV - 07.01.1984, Page 6

Dagblaðið Vísir - DV - 07.01.1984, Page 6
Ferðamál Ferðamál Ferðamál vekja 19. aldar yfirbragð hússins um leið og nýjasta tækni var þar inn- leidd. Sætum var fjölgaö um 140, leiksviðið er þrisvar sinnum stærra en áöur og húsið er nú búið full- komnu loftræstikerf i. Leikhúsgestir ættu ekki að þjást af þorsta því að fimm barir eru nú í húsinufyrirgesti. Söngleikurinn Blondel er fyrsta verkið á fjölunum á Vic eftir opnun- ina, en sá leikur er eftir Tim Rice og Stephen Oliver. Þann 18. janúar verður svo frumsýning á Master Class, nýju leikriti eftir David Pown- all þar sem Timothy West fer með hlutverk Stalin. Nýr eigandi Vic er fjármálamaöur frá Kanada, Ed Mirvish aö nafni. Hann hyggst breyta rekstrarfyrirkomulaginu á þann hátt til að byrja meö aö tak- marka sýningarfjölda á hverju verki til aö auka f jölbreytnina. Bandarísk briiðhjén um Reykjavíkurhelgi: ísland ber af öðruni Evrópulöndnm" Alltaf þykir okkur ljúft er erlendir feröamenn ljúka lofsorði á land og þjóð eftir heimsókn hingað til lands. Feröamálaráði Islands barst fyrir skömmu bréf frá Bandaríkjamanni sem hafði viðdvöl hér á landi í brúð- kaupsferð til Evrópu. Ekki er að orð- lengja það að Mark C. Deren, en svo heitir maöurinn, lýsir því yfir skýrt og skorinort aö af 10 Evrópulöndum sem þau hjón heimsóttu hafi Island borið af. Landið eigi sér enga hliö- stæðu landfræðilega, og íbúarnir ein- staklega vingjarnlegir. Hjónin dvöldu yfir helgi í Reykjavík og brugöu sér meöal annars í Holly- wood. Þar skiptust þau á oröum við samkomugesti sem umsvifalaust slógu upp veislu þeim til heiöurs þeg- ar fréttist að þau væru á brúðkaups- ferð. Þá segir Mark að ferðin meö Flugleiðum hafi verið stórkostleg og matur og þjónusta um borð „magni- ficant”. En maðurinn lætur sér ekki nægja að skrifa Ferðamálaráði og lýsa þar ánægju sinni með Islandsdvölina. Hann sendi meö bréfinu grein sein hann hefur samið um Island til birt- ingar í blaði fyrir westan. Má ekki á milli sjá hvort hann er hrifnari af landi eða þjóð og er þarna á ferö hin besta Islandskynning. -SG Leikbrúður frá 16 löndum Fyrst leikhús ber á góma er ekki úr vegi að geta þess aö eitt af þeim festivölum, sem fram fara í Bret- landi vegna „Heritage 84”, er alþjóö- leg leikbrúðuhátíð. Hún hefst 23. apríl og stendur í hálfan mánuð. Byrjað verður í London en auk þess fara sýningar fram víða á Bretlands- eyjum. Fjörutíu brúðuleikhús frá 16 lönd- um taka þátt í þessari hátíð og eru áætlaðar samtals 500 sýningar í 40 leikhúsum. Miðar á háifvirði og Abbacadabra Það er ástæða til aö minna leik- listarunnendur á, þá þeir eru staddir í London, að hægt er aö gera góö kaup í leikhúsmiöum á Leicester Square. Þar var opnuð miöasala fyr- ir þremur árum sem selur leikhús- miöa á sýningar kvöldsins á hálf- virði. Salan hefur fariö fram úr öll- um áætlunum og er nú um eitt þús- und miöar á dag að jafnaöi. Miðar á góöum staö í leikhúsunum í London kosta sjö til tíu pund, en þarna eru sem sagt seldir miöar á sýningar sama dag og miöinn er keyptur með 50% afslætti. Áður en við skiljum viö leikhúsin skal þess getiö að 21. janúar næstkomandi er áætlaö aö ljúka sýningum á söngleiknum Abbacadabra í Lyric Theatre. Þar eru flutt gömlu ABBA lögin ásamt mörgum nýrri. Meðal flytjenda eru Elaine Paige sem þekkt er úr Evitu og Cats, Finola Hughes, sem margir kannast við úr Travolta myndinni Staying Alive, og loks er það Skotinn B.A. Robertson, sem kom til Islands fyrir nokkrum árum og gerði mikla lukku eins og þar stendur. Útsölurnar blómstra Ekki er rúm til aö rekja fleiri við- burði í tilefni af „Heritage 84” aö sinni. Sem fyrr segir er hér um aö ræða framtak og samvinnu margra aðila, enda er feröaþjónustan háþró- uð atvinnugrein í Bretlandi og þar eru menn þess vitandi að alltaf þarf að fitja upp á nýjungum og viöburð- um af ýmsu tagi til að laða að ferða- menn og lífga upp á tilveruna. Ekki er endalaust hægt að lifa á frægð fornra kastala. En svona í lokin er rétt aö víkja frá listviðburöum og láta þess getið aö nú blómstra út- sölurnar í London. I Harrods er út- sala til 28. janúar, til sama tíma í Selfridges og Liberty og þannig mætti lengi tel ja. -SG Bretar hafa skipulagt árid 1984með þarfir ferðamanna í huga: Hver viöhurdurinii á f ætur ödrum út allt þetta ár Brcska ferðamálaráðið og aðrir aðilar þar í landi sem simia ferða- málum vænta mikils af því ári sem nú er að byrja. Þema þessa árs er, „Heritage 84”, og hafa mörg þúsund viðburðir af ýmsu tagi verið skipu- lagðir til að minnast ýmissa atburða í sögu lands og þjóðar. Efnt er til list- sýninga af öllu tagi vítt og breitt um Bretlandseyjar, hótel og gististaðir bjóða sérstök kjör á vissum timum, kappleikir verða háðir, sögulegar byggingar opnaðar að nýju eftir endurbætur og þannig mætti lengi telja. Allt þetta er talið ýta mjög undir heimsóknir erlendra ferðamanna auk þess sem þess er vænst að lands- menn láti ekki sitt eftir að liggja, heldur ferðist um eigið land og fylg- ist með því sem er að gerast á þessu ári. Hér á eftir vcrður leitast viö að drepa á eitthvað af því sem boðiö er upp á í Bretlandi á þessu ári í tilefni af „Heritage 84”. Listahátíð í 333 daga Sérstakar listahátíðir fara fram á 25 stöðum frá því í mars til ársloka og standa þær samtals í 333 daga. Inn í þessari tölu er Ustahátíðin í Edin- búrg sem hefst 12. ágúst, en það var einmitt á þeirri hátíð sem Viðar Eggertsson gerði garðinn frægan í fyrra. Listunnendúr sem vilja fá sem gleggstar upplýsingar um þaö sem fram fer í þessa 33 daga ættu aö verða sér úti um eintak af bæklingn- um „British Arts Festivals 1984”, en þaö er British Tourist Authority, 64 St. Jame’s Street, London SWIAINF í London sem gefur bæklinginn út. Fyrsta hátíöin er Camden Festival í London frá 17. til 31. mars, þar sem þrjár óperur verða fluttar. Málverk gömlu meistaranna I Royal Academy of Arts í London stendur nú yfir sýningin „The Genius of Venice, 1500—1600”. Hér er um að ræða mestu sýningu á verkum gömlu ítölsku meistaranna sem haldin hef- ur verið á Bretlandi síðan 1930. Þarna eru tU sýnis um 200 listaverk sýningunni lýkur þann 11. mars næstkomandi. Orwell og 1984 Georg Orwell bjó á eynni Jura, út af vesturströnd Skotlands, meðan hann skrifaði hina frægu bók 1984. Jura hótel í bænum Craighouse á eynni ætlar að efna tU fjögurra Orwells-vikna á þessu ári, í apríl, júní, júlí og ágúst. Gestir fá tækifæri tU aö ræða við eyjarskeggja sem muna höfundinn þá er hann dvaldi í eynni og horfa á kvikmyndir sem hafa verið gerðar eftir verkum hans. Hver gestur borgar 160—170 pund fyrir gistingu í sjö nætur og innifald- ar í verði eru allar máltíðir. Jura er 28 mUna löng eyja, klettótt og fremur hrjóstrug. Vic opnað á ný Hiö 165 ára gamla leikhús Vic í London hefur veriö opnað á ný eftir gagngerar endurbætur sem kostuðu sem svarar 80 mUljónum íslenskra króna. Þær breytingar og endurbæt- ur sem voru gerðar á leikhúsinu mið- uðu annars vegar að því að endur- sem eru í eigu ýmissa kirkna á Italiu, auk verka úr einkasöfnum. Þarna gefst fágætt tækifæri til að skoða verk eftir ekki ómerkari menn en Titian, Vecchio og Veronese. List- George Orwell.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.