Dagblaðið Vísir - DV - 07.01.1984, Blaðsíða 7
Hermann Gunnarsson, formaöur Samtaka íþróttafréttamanna, sést bér afhenda Einari hina glæsilegu styttu.
DV-mynd Bjarnleifur Bjarnleifsson.
EINflR MEÐ FULLT
HÚS ATKVÆÐA
Samtals hlutu 26 íþróttamenn atkvæöi í kosningunni um íþróttamann ársins
1983. Einar Vilhjálmsson hlaut 60 atkvæði af 60 mögulegum en þeir sem urðu í tíu
efstu sætunum voru þessir:
1. Einar Vilhjálmsson, UMSB, frjálsar íþróttir, 60
2. Ásgeir Sigurvinsson, Stuttgart, knattspyrna, 42
3. Atli Eðvaldsson, Fortuna Diisseldorf, knattspyrna, 34
4. Bjarni Friðriksson, Ármanni, júdó, 31
5. Sigurður Lárusson, ÍA, knattspyrna, 26
6. Þórdís Gísladóttir, ÍR, frjálsar íþróttir, 17
7. -8. Kristján Hreinsson, UMSE, frjálsar íþróttir, 13
7.-8. Eðvarð Þ. Eðvarðsson, Njarðvík, sund, 13
9.-10. Kristin Gisladóttir, Gerplu, fimleikar, 11
9.-10. Kristján Arason, FH, handknattleikur, 11
Einar Vilh jálmsson — Iþróttamaður ársins 1983:
„Sjaldan fellur
eplið langt f rá
eikinni”
— sagði Hermann Gunnarsson þegar
Einar var krýndur í hóf i Samtaka
íþróttaf réttamanna og Veltis hf. í gær
„Sjaldan fellur eplið langt frá
cikinni,” sagði Hcrmann Gunnarsson,
formaður Samtaka íþróttafrétta-
manna, þegar hann tilkynnti í gær aö
Einar Vilh jálmsson væri íþróttamaður
ársins 1983 í hófi að Hótel Loftleiðum
sem Samtök iþróttafréttamanna og
Veltir hf. héldu. — Það er kunnara en
frá þurfi að segja að Einar er sonur
Vilhjálms Einarssonar, þess mikla
afreksmanns hér á árum áður sem
meðal annars varð annar í þrístökki á
ólympíuleikunum í Melbourne árið
1956. Skömmu eftir fæðingu Einars,
áriö 1960 (1. júní), fagnaði faðir hans
þessum stæðilega, rauðbirkna víkingi
með því að verða fimmti á ólympíu-
leikunum í Róm, sagði Hermann og
hann benti á að það væri örugglega
einsdæmi í heiminum að feðgar hefðu
verið kjörnir íþróttamenn ársins í
heimalandi sinu.
— Eg hef verið svo lánsamur aö geta
fylgst meö og kynnst Einari á síöustu
árum, sannari íþróttamann og heil-
brigöari félaga hefi ég ekki þekkt.
Einar er reglumaður á áfengi og
tóbak, fullkomin fyrirmynd æskufólks
á öllum sviðum, hreinlyndur, heiöar-
legur, ákveðinn og jákvæöur og vinnur
markvisst aö öllu sem hann tekur sér
fyrir hendur. Þetta er ekki orðagjálfur
á stund sem þessari heldur stór orö og
sönn sem sæma þessum unga og sanna
afreksmanni. Einar, viö erum stolt af
afrekum þínum, framkomu og árangri
og þú hefur veriö þjóö þinni til sóma
jafnt innan vallar sem utan. Þaö er
mér sérstakur heiöur aö fá tækifæri til
aö afhenda þér þennan veglega verö-
launagrip og sæmdarheitið íþrótta-
maöur ársins 1983 áttu sannarlega
skiliö kæri vinur. Eg vil þá biðja þig
um að koma hér upp sem íþróttamaður
ársins 1983, sagöi Hermann.
„Mikil hvatning
fyrir mig"
— Eg er aö sjálfsögöu í sjöunda
himni yfir þvi aö vera kjörinn íþrótta-
maöur ársins — og það er mikil hvatn-
ing fyrir mig aö gera enn betur á kom-
andi árum, sagöi Einar Vilhjálmsson
þegar hann var búinn aö taka viö hinni
glæsilegu styttu sem fylgir sæmdar-
heitinu íþróttamaöur ársins, en þaö
var einmitt faðir hans sem handlék þá
styttu fyrstur íslenskra íþróttamanna.
Einar, sem er 23ja ára, stundar nám
í læknisfræði í Bandaríkjunum — jafn-
hliöa því sem hann æfir af fullum
krafti spjótkast og undirbýr sig af
kappi fyrir ólympíuleikana í Los
Angeles sem veröa haldnir í sumar.
Haraldur Hjartarson, fulltrúi hjá
Velti hf. — umboösaöilum Volvo á
Islandi, færöi Einari eignarbikar að
gjöf frá fyrirtækinu og tilkynnti aö
Veltir hf. myndi kosta ferðir og uppi-
hald Einars til aö hann gæti verið viö-
staddur þegar allir íþróttamenn ársins
á Noröurlöndum kæmu saman þegar
íþróttamaöur Norðurlanda væri út-
nefndur en sá íþróttamaöur fær hinn
veglega Volvobikar. -SOS
Tveir af stofnendum Samtaka íþróttafréttamanna —
Sigurður Sigurðsson. Hinir stofnendurnir voru Frímann Helgason og Hallur
Símonarson.
Aðeins fjórir íþróttamenn, sem vorn í efstu tíu sætunum, gátu mæti — þegar íþróttamaður ársins var útnefndur.
Hér á myndinni eru Steinunn Guðnadóttir (eiginkona Atla Eðvaldssonar), Sigurður Lárusson, Kristín Gisladóttir,
Bjarni Ág. Friðriksson, Einar Vilhjálmsson og Þorgerður Gunnarsdóttir (Eyjólfssonar, leikara — unnusta
Kristjáns Arasonar). Þorgerður leikur handknattleik með IR.
' DV-mynd Bjarnleifur.