Dagblaðið Vísir - DV - 07.01.1984, Page 8

Dagblaðið Vísir - DV - 07.01.1984, Page 8
8 DV. LAUGARDAGUR 7. JANUAR 1984. Frjálst.óháð dagbiað Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLÚN HF. Stjórnarformaður og útgáfusfjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON. Framkvæmdastjóriogútgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON. Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM. Aöstoóarritstjóri: HAUKUR HELGASON. Fróttastjórar: JÓNAS HARALDSSON og ÓSKAR MAGNÚSSON. Auglýsingastjó'-ar: PÁLL STEFÁNSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON. Ritstjórn: SIÐUMULA 12—14. SIMI 86AU. Auglýsingar: SIDUMÚLA 33. Sl Ml 27022. Afgreiósla, áskriftir, smáauglýsingar, skrifstofa: ÞVERHOLTI11. SÍMI 27 022. Sími ritstjórnar: 86611. Setning,umbrot, mynda ogplölugerð. HILMIR HF., SÍÐUMÚLA 12. Prentun: Árvakurhf., Skeifunni 19. Áskriftarverð á mánuðí 250 kr. Verð í lausasolu 22 kr. Helgarblað25kr. Neytandinn græðir á frelsinu Samkeppnin í smásöluversluninni á höfuðborgar- svæðinu hefur leitt til lægra vöruverðs. Fjölmargir stór- markaðir hafa risið á undanförnum árum, keppt um markaöinn og boðið neytendum upp á hagstætt verðlag og meiri þjónustu. Sumir kunna að halda því fram að verslanir séu fleiri og stærri en markaðurinn leyfir og að því komi að einhver þeirra fari á hausinn, verði gjaldþrota. En meðan hér ríkir frjáls verslun og einstaklingar eða fyrirtæki finnast sem vilja taka áhættuna af því að reka verslun hlýtur það aö vera á ábyrgð hvers og eins hvort hann leggur stund á þessa atvinnugrein. í þeim efnum gilda lögmál framboðs og eftirspurnar, veltu og sölu, tap eða gróði. Þau lögmál eru jafnframt forsendur þess að verslun verði í þágu neytandans; að hún sé þannig úr garði gerð aö vörur, verð og þjónusta laði viðskiptavini að. Frjálsræði í verslun hefur alla yfirburði yfir einokun í verslun. Frelsiö skapar samkeppni sem kemur neytand- anum til góða. Einokunin hirðir ekki um þjónustu við viðskiptavininn. Einokunin neyðir neytandann til viðskipta þótt honum líki hvorki varan né verðið. Hann á ekki annarra kosta völ. Verslunarfrelsi og samkeppni laöar fram samanburð á gæðum vörunnar og samkeppni í verði þjónustunnar. Þetta hefur ríkisforsjármönnum gengið illa að skilja og þeir hafa verið studdir af einstrengingshætti verkalýðs- forystunnar sem alla tíð hefur haldið því fram að verð- lagshöft og fjarstýrðar verðlagsákvarðanir væru besta vörnin fyrir umbjóðendur sína. Sannleikurinn er hins vegar sá að hagræöi í verslun, stórmarkaðir og nýir verslunarhættir hafa verið umtals- verðasta kjarabótin til handa launþegum. Með tilkomu stórmarkaðanna hafa margir óttast að „kaupmaðurinn á horninu” verði undir í samkeppninni. En hér sem annars staðar, þar sem frjálsræði ríkir, hefur samkeppnin sannað gildi sitt. Litlu kaupmennirnir hafa komið með krók á móti bragði. Þeir hafa sjálfir bundist samtökum um að nýta ekki fulla álagningu og hafa jafn- framt gert ráöstafanir til innflutnings á lægra innkaups- verði en áður. Þeir hafa með réttu bent á að samtök þeirra, K-sam- tökin, verði hér eftir stærsti stórmarkaður landsins. Eiga þeir þá við að verslanir þeirra, þó smáar séu, eru dreifðar um allt höfuðborgarsvæðiö. Það hlýtur að vera til hagræðis fyrir neytendur sem geta þá leitað í næstu versl- un í stað þess aö fara um langan veg í einhverja stór- verslunina. Þannig hefur kaupmaðurinn á horninu mætt harðnandi samkeppni, sjálfum sér til varnar og neytandanum til framdráttar. Neytendur eru betur vakandi fyrir misháu vöruverði, markaðurinn verður fjölbreyttari og samkeppnin verður besta verðlagseftirlitið. Álagningarreglur verða úreltar, opmfcera verðlagslöggjöf dagar uppi og verölagshöft verða hlægileg, einfaldlega vegna þess að þau verða óþörf. Ríkisstjórnin hefur það á stefnuskrá sinni að gefa verö- lagningu frjálsa þar sem samkeppni nýtur sín. Þeirri stefnu er sjálfsagt að framfylgja á sem flestum sviðum án þess að óttast þurfi hækkað vöruverð í kjölfar frjáls- ræðisins. Markaðurinn og samkeppnin munu sjá til þess. Þar sem atvinnurekstur fær að njóta sín án opinberrar íhlutunar og miöstýrðrar ríkisforsjár verður niðurstaðan ávallt sú að almenningur græöir. -ebs. MhhJ er sitthvað RO W og KA II Tölvur eru auövitaö það sem koma skal. Því neita ég ekki. Eg er sannfæröur um þaö aö innan tíöar veröur hvert einasta heimili tölvu- vætt. Nú þegar er málum þannig háttaö á mörgum heimilum aö fjöl- skyldan safnast sama viö tölvu- skerminn en ekki viö matarboröið eöa sjónvarpið. Eg er líka viss um þaö, aö þess veröur ekki langt að bíöa aö tölvan taki viö heimilisrekstrinum. Þá veöur þaö fyrsta verk manns á morgnana aö panta morgunmat og rekstur hjá tölvunni, og meðan maöur boröar sitt tölvuvædda rist- aöa brauö meö sínu tölvuuppáhellta kaffi mun tölvan renna upp á skjáinn fyrir mann helstu fréttum dagsins. Síöan mun tölvan tilkynna manni aö hinn tölvuvæddi leigubíll sé kominn til aö keyra mann á tölvuvædda vinnustaöinn og um leiö og maður kveöur heimilistölvuna meö kossi minnir hún mann á aö það er rigning úti og því ráölegra aö taka regn- stað að koma fram í eldhús og líta út um gluggann, sem sneri út aö ÓlafurB. Guðnason bakgarðinum. „Þarna er nú sjálf- virka þvottavélin mín!” sagöi Þaö voru auðvitaö vandamál. Ljón í veginum, eins og sagt er. Þaö stærsta var konan hans sem hamraði á þeirri einföldu, leiðinlegu meginstaöreynd aö þau heföu ekkert viö tölvu að gera, ekki efni á aö kaupa hana og enga kunnáttu til þess aö nota hana til skynsamlegra nota. Eins og eiginmenn gera oftast, þegar rökum er beitt gegn þeim, varö vinur minn fyrst niðurlútur og siöan þung- lyndur. Það stöövaöi hann þó ekki viö iestur allra þeirra tölvutímarita sem hann kom höndum yfir og seint og snemma kom spúsa hans aö honum þar sem hann sat andvarpandi yfir litprentuðum auglýsingum um Sinclair, Commodore og Atari. Þar kom aö konan gafst upp og leyföi honum aö kaupa ódýra tölvu. Við það tók hann gleði sina aö nýju og hljóp þegar af staö út í næstu búö. Þar stóö hann frammi fyrir nýju vandamáli. Hvaö þýðir allt þetta slangur? Hver er munurinn á ROM frakkann meö ef svo ólíklega vildi til aö tölvuvæddi leigubíllinn bilaöi á leiöinni og maður þyrfti að ganga spottakorn. Þegar svo líöur aö lokum vinnudagsins, en mér skilst að tölvuvæðingin muni stytta hann mjög, hringir maöur í heimilistölv- una og tilkynnir henni, aö í kvöldmat eigi aö vera róstbíf meö ljúffengu salati og frönskum kartöflum. Þegar heim kemur eru engar franskar kartöflur meö matnum af því aö tölvan segir aö maður hafi fengiö meira en nóg af sterkju þessa vikuna. Svo asnast maöur til þess aö tefla eina skák viö hina miklu móöur og hún tekur mann auövitaö í bakarí- iö, í sjaldséöum varianti af kóngs- indverskri. Síöan fer maöur í háttinn og getur ekki sofnað af ergelsi út í tölvuna, sérstaklega af því að hún gafhrókíforgjöf! Þaö var fyrir um þaö bil tuttugu árum, aö sjálfvirkar þvottavélar komu fyrst til sögunnar hér á landi, held ég. (Ef hægt er aö kalla svo mckanísk fyrirbæri sjálfvirk, þegar ekki var í þeim aö finna eina einustu kísilflögu.) Þessar „sjálfvirku” þvottavélar urðu þegar geysivinsæl- ar, og á betur efnuöum heimilum þóttu þær þegar í stað sjálfsagöar. Svo bar til um þessar mundir aö nokkrar húsmæöur voru saman- komnar í heimboöi og ræddu þessi undratæki. Kom þá í ljós aö allar áttu þær „sjálfvirkar” vélar nema gestgjafinn, sem bauð þeim þess í húsmóðirin hreykin og benti á tengdamóöur sína, aldraöa, sem var að hengja upp þvott. ,,Og hún straujar líka,” bætti húsmóöirin viö sigrihrósandi. Þessi ósmekklega saga rifjaðist upp fyrir mér í þessu sambandi vegna þess aö fyrir ekki löngu ræddum viö nokkrir kunningjarnir um tölvuvæöinguna og einn í hópnum lýsti af mikilli innlifun og velþóknun hinni yfirþyrmandi forsjá heimilis- tölvunnar, eins og rakið er hér aö ofan. Einn kunningjanna sagöist hins vegar blása á allartölvur. — Allt þetta sem þú lýstir gerir konan mín og sitthvað annaö líka, sagöi hann. — Nema hvaðkonan mín vinnur mig ekki í skák. Ekki einu sinni þó ég gæfi henni hrók í forg jöf, sem mér dytti þó aldrei í hug aö gera! Viö skulum yfirgefa þessi karlrembusvín nú og reyna aö gleyma þeim. En því megum við ekki gleyma aö mörg vandamál, sem framtíöarspekúlantar ræöa í tengslum viö hina ókomnu tíö, eru þegar oröin alvarleg og aðkallandi. Eitt þeirra er tölvuvandamálið, sem þegar er orðið aökallandi, þó ekki sé þaö í þeirri mynd sem búast má við í framtíðinni. Tökum dæmi af góökunningja mínum, grandvörum greindarpilti, dulítið nýjungagjörnum. Hann langaði í tölvu. Ekkert voða stóra tölvu og ekki meö neinum aukabúnaði. Bara litla heimilistölvu tilþessaðleikaséraðá kvöldin. og RAM? Hvaö þarf maður mörg K, og þá verður aö hafa í huga aö hluti af K er í ROM, en ekki RAM, og hvaö þá? Sumar tölvur hafa bara RAM! Þær hafa fjöldann allan af K-um! Er það betra? Eöa verra? Og svo er það Basic? Ekki er allt Basic eins! Hvaö meöþaö. Vini mínum sló niöur og þunglyndiö ágerðist. Aö lokum fór kona hans út í búö og keypti tölvu! Hún hlustaði ekki á hjal sölumanna um ROM og RAM, K og Basic af- brigði. Hún valdi ódýrústu tölvuna sem hún fann og fór með hana heim. (Hún heitir Alexandra) þ.e. konan heitir Alexandra, ekki tölvan.) Vinur minn varð ákaflega þakklátur og lét þaö veröa sitt fyrsta verk aö setja heimilisbókhaldið inn á tölvuna. Tekjur heimilisins sam- viskusamlega inn færöar og út- gjöldin sett á sinn stað. Vikulegt upp- gjör úr ávísanaheftinu var fært inn og gjalddagar allra víxla og skulda- bréfa. Síðan var bara að slá á takka og tölvan gaf upp hvaða upphæð stóö .eftir af laununum, sem sagt á hverju þau hjónináttuaö lifa. Sú tala var neikvæð! Hann kallaði skelfingu lostinn á konuna sína og benti þegjandi á töluna á skerminum. Hún brosti góölátlega og sagði: — Þú hefur gleymt aö draga skattana frá. Vinur minn vinnur nú svo mikla aukavinnu að hann hefur ekki tíma til þess aö leika sér með tölvuna sem rykfellur inniískáp.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.