Dagblaðið Vísir - DV - 07.01.1984, Qupperneq 9

Dagblaðið Vísir - DV - 07.01.1984, Qupperneq 9
DV. LAUGARDAGUR 7. JANUAR1984. 9 Upp9 upp9 mín sál9 og aUt mltt geö Miöaö viö allt umstangiö fyrir jól og áramót er hátíöin fljótt um garö gengin. I rauninni voru áramótin eins og hver önnur helgi og skyndi- lega vorum viö mætt til vinnu enn einn mánudaginn og allt yfirstaðið. Jólin, liöin, nýtt ár hafið. Enda þótt fríiö hafi verið stutt og hvíldin af skornum skammti, fer ekki hjá því, aö einhvers konar uppgjör fari fram í huga flestra viö þessi tímamót. Menn líta aftur, rifja Upp atburöi liðins árs, minnast mis- jafnra stunda, ánægju og áfalla. Hver á sína ævi, með hæöum og lægðum, meö skini og skúrum. Auðvitað hefur hiö liöna ár verið mörgum erfitt eins og gengur. Minnkandi vinna, fjárhagserfiöleik- ar, fráfall vandamanna, sambúöar- slit, veikindi og þar fram eftir götun- um. Slíkt fólk minnist ársins meö döprumhuga. Aðrir geta minnst skemmtilegra ferðalaga, aukins frama og vel- gengni, nýfæddra barna, betri afkomu. En hvort heldur er, þá fer ekki milli mála, aö persónulegir hagir, einkalif og eigin aðstæöur eru ofar í huga hvers og eins heldur en hitt, hvort veröbólga fari minnkandi, afU dragist saman eöa þjóðartekjur rýrni. Það eru Utlu hlutirnir, sem veröa stórir. Það eru þeir, sem fyUa upp í lífsmunstriö og skipta máli. Söknuðurog eftirvænting Og þaö er í þessum efnum, sem fólk tekur sinnaskiptum viö áramót, gleðst yfú- góöu gengi eða herðir upp hugann í andstreymi. Aramót boöa kaflaskipti, sem vekja vonir, tími heitstrenginga um bætt líferni. Hvort sem viö höfum þolað mótlæti eöa notiö meðlætis á Uönu ári, takast á í okkur andstæöur saknaöar og eftir- væntingar. Viö söknum ársins, sem aldrei kemur aftur. Viö söknum þess tíma, sem hefur ýmist farið tU spiUis eöa leitt tilgóös. Viö söknum þess aö vera oröin einu árinu eldri, án þess aö nýta tímann sem skyldi. Arin líða framhjá hvert af ööru, æskan hverfur, aldurinnfær- ist yfir. Smám saman uppgötvum viö, aö æskudraumarnir ætla ekki aö rætast, aö lífið er styttra en viö héld- um. Viö tregum dagana, mánuðina og árin, sem fljúga framhjá, þarsem viö týndum vrnum og tækifærum og vöknum jafnvel upp viö þaö aö hafa týnt sjálfum okkur. Viö höfum liðið áfram í basU og barningi, látiö hverjum degi nægja sína þjáningu, beöiö eftir morgundeginum. Leiði leysir engan vanda Hvaö meö alla dagana, sem fóru forgörðum vegna leiöinda, túnbur- manna, sjálfsmeöaumkunar og óvin- áttu í garö samferöamanna? Hvaö meö alla dagana, sem viö gleymdum aö brosa framan í tilveruna, gleymd- umaðvera til? Yfirleitt áttum viö okkur ekki á því, hversu tíminn er dýrmætur fyrr en hann er liðinn hjá. Leiöi leysir engan vanda, ergelsi út í náungann bitnar á okkur sjálfum, iöjuleysi er sjálfskaparvíti. Peningar og veraldargengi, upphefð og efnahagsleg afkoma eru góöra gjalda verð. En sú lífsfylUng, sem veitú- hamingju og nautn, felst í því einu að nýta tímann, njóta Uðandi stundar, nota það sem guö hefurgefið manni. Þetta eru engin ný sannindi, en rifjuð hér upp vegna þess, aö í því felst söknuðurmn á áramótum, aö við höfum gleymt aö vera til. Á hverjum degi erum viö minnt á þá staðreynd, að lifiö er of dýrmætt til aö því sé kastað á glæ. GamUr vrnir, samferöamenn af vUmustaö, viðmælandi á götunni, skoðana- bróöU- úr flokksstarfi, gamalgróUin vallargestur, þeir heltast úr lestmni einn af öörum. Dánartilkynningin gerir ekki boö á undan sér. Þú áttæ margt ósagt viö þessi kunnuglegu andUt, og þú veist, að þeir áttu sjálfir margt ógert hérna megin Ufs. Enginn veit, hver verður næstur í röörnni, enginn veit, hvenær kalliö kemur. Þaö er of seint aö iðrast, þegar útförin er afstaöm. Laugardags- pistill Ellert B. Schram ritstjóri skrifar Með bros á vör Þaö er þröngt í búi hjá mörgum heimUum um þessar mundir. Jólin voru dýr í matarkaupum og jóla- bögglum. Kaupið er ekki til skipt- anna. Reikningarnir hlaöast upp, og skammdegið er ekki til uppörvunar. Ekki er alltaf auövelt aö brosa og halda jafnaöargeöi, þegar ekki er til salt í grautinn. Fátækt er böl. En stöndum viö ekki betur aö vígi, ef skapiö er í lagi, ef bjartsýnin og vonin ræöur ríkjum? Og hver ju erum við bættari með því að skella skuld- inni á stjórnvöld, veður, atvmnurek- anda eöa maka? Nú í vikunni skapaöist umferöar- öngþveiti og ringulreiö í höfuðborg- inni vegna illveðurs og ófæröar. Enginn komst þó áleiöis með því aö bölva. Enginn varö bættari viö þaö aö skeyta skapi sínu á veðurhamnum eöa hröktum samborgurum. Frásagnir fólks af minni háttar skakkaföllum voru þvert á móti á þann veg, aö allir voru fúsir til aö leysa hver annars vanda. Bíll festist í skafli og óöara voru margar hendur á lofti til aö kippa honum aftur af stað. Maöur hraktist milli húsa. Honum var tekið opnum örmum, þegar hann leitaöi húsaskjóls. Hundruö manna þurftu aö komast leiðar srnnar til og frá. Lögreglan var boöin og búrn til aöstoöar. Meö hjálpsemi, greiövikni og tUlitssemi, með bros á vör greiddu menn úr flækjunum, hlupu undir bagga. Og þannig má ernnig leysa vanda hversdagsUfsms. Með þolmmæði og þrautseigju, meö rósemi hugans og ofurlítUU uppörvun kemst hver og eUin leiðar sinnar í lífmu. Bara ef hann man, aö geðvonska, sjálfsmeð- aumkun og uppgjöf eru ekki sam- feröa neinum, sem vill komast á leiöarenda. Vonandi hafa sem fæstir gert Ufsleiðann aö förunauti sínum yfiríhiö nýjaár. Látum draumana rætast Nú þýðir ekki lengur aö sakna og syrgja hiö liðna. Viö látum ekki hugarvíl ná tökum á okkur. Við skálum fyrir þeUn, sem hafa kvatt, og sútum ekki þaö, sem aldrei kemur aftur. Nú horfum viö fram á viö, tökum okkur saman í andUtinu og bíöum meö eftirvæntingu og tilhlökk- un þess, sem framundan er. Fram- tíðUi veröur hvorki betri né verri en viö sjálf ákveðum. Viö ráöumst til atlögu gegn basUnu, iðrumst einskis og látum draumana rætast. Ef viö höfum ekki efni á skíöa- ferðalögum eða sólarlandaferðum, getum viö alténd skokkað á morgn- ana til heilsubótar og hressingar. Ef viö getum ekki keypt bíl, getum viö skemmt okkur við aö kynnast öllum karakterunum í strætó. Ef við getum ekki fengiö hærri laun, þá er ekki annaö aö gera en spara viö okkur reykingar og skemmtanahald. Viö getum byrjaö á því aö eiga samræður við nágrannann og kunn- ingjana, í staö þess aö glápa okkur í svefn framan viö sjónvarpið. Viö getum glatt okkur við aö fylgjast meö krökkunum þroskast og gert þá aö jafningum okkar, í staö þess að bölva þeim og skamma. Viö getum kæst yfir því smáa, hlegiö í bíó, skroppið í leikhús, náö okkur í bók á safninu, og lifað í þeirri bjartsýni, aö stóri vinningurinn í happdrættinu hlotnist okkur á árrnu. Samtímamaður i spéspegli Viö getum meira aö segja sest niður og samið gamansögu af nútímamannUium, sem fer öfugt fram úr rúminu á morgnana, boöar veikindi á skrifstofuna, af því honum leiöist í vinnunni, skammar krakkana fyrir sóöaskap og nöldrar út í eiginkonuna fyrir lélega matar- gerö. Hann veit ekki aura sinna tal, en tímir ekki neinu, hann á svo finan bíl, aö ekki má hreyfa hann úr bíl- skúrnum og hann á svo annríkt, aö enginn þorir aö heimsækja hann. Hann skammast út í skattinn og ríkisstjórnina, bölsótast út í sjón- varpiö og kommana. Honum frnnst sinfónían garg og leikhúsiö snobbaö, hann hefur magasár af húsbygg- ingarstriti og aukakíló af vehnegun. Hann er fullur um helgar, timbraður á mánudögum og önugur í skapi þaö sem eftir er vikunnar. Þetta gæti oröiö góð gamansaga, samtímamaöurinn í spéspegli. Skyldi hann vera of sæll af slíku lífi? Skyldi hann una glaður við sitt á ára- mótum, þótt ekki sé fátæktinni fyrir aðfara? Hver er srnnar gæfu smiöur. A þessu ári og næsta ári og öll árin, sem viö eigum eftir ólifað, er mest um vert aö vera sæll af sjálfum sér, umhverfi sínu og athöfnum. Hamingjan felst ekki í húsgögnum eða allsnægtum, ekki heldur í pen- ingum eöa ytra prjáli. Hún gerir ekki greinarmun á höll eöa hreysi, hún fer aldrei í manngreinarálit. Áramótin kalla fram söknuö yfir hinu liöna. Þaö er gott, því þaö þýðir að viö höfum einhvers aö sakna. Slæmrar fortíðar saknar enginn. En áramótin eru ekki síöur tími eftirvæntingarinnar. Það er líka gott. Enginn hlakkar til svartrar framtíðar. Upp, upp, mín sál, og allt mitt geö. EUert B. Schram.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.