Dagblaðið Vísir - DV - 07.01.1984, Qupperneq 17

Dagblaðið Vísir - DV - 07.01.1984, Qupperneq 17
DV. LAUGARDAGUR 7. JANUAR1984. 17 unum þar í stríöinu, svo góö var hún. Neyðarsendir Þá má aö lokum geta þess, aö mikið öryggi er af því að hafa neyðarsendi í bílum, sem fariö er á út í ófærðina. Oftar en einu sinni hefur þaö komiö fyrir aö bíla hefur fennt í kaf, og þá hefur oft reynst erfitt að finna þá aö nýju. Þar kæmi neyðarsendir aö góöum notum, í eftirleitum. Þessar ráðleggingar snerta allar fólk sem er í meira lagi fé- lagslega sinnaö og trúir því aö sameiginlegt skipbrot sé betra en ekkert. Öðru máli gegnir með ein- staklingshyggjumennina, sem aka um á fjórhjóladrifnum trölla- vögnum sínum og leita uppi þá staði af stakri kostgæfni, þar sem snjórinn liggur þykkastur á jöröinni. Og því fjær alfaraleiö, sem ófærurnar er að finna, því glaöari veröa jeppaeigendur. En jeppaeigendur geta líka fest bíla sína svo að ekki er annað aö gera en setjast inn í bílinn og bíða eftir því aö hjálp berist. Þeim er því hollast að búa farartæki sín á svipaðan hátt og hér er lýst að of- an, utan hvað neyöarsendirinn er óþarfur, því flestir þeir sem kaupa jeppa, kaupa i þá farstöðvar svokallaöar, svo þeir geti haldið uppi samræöum við ókunnuga, meðan þeir sitja undir stýri. Þess vegna geta jeppaeigendurnir látiö sér nægja að kalla á hjálp í far- stöðvunum, því enginn jeppaeig- andi myndi nokkru sinni láta þá hneisu henda sig að skilja bíl sinn eftir á víðavangi. Slík uppgjöf fyrir höfuðskepnunum er óhugs- andi fyrir menn, sem á annað borð vilja sýna sjálfstæöi sitt og kjark með því að kaupa jeppa. En best af öllu er að njóta óveðursins í góðu skjóli, vel upp- hituðu, þaðan sem útsýni er gott. Að sitja innan við tvöfalt gter og horfa á höfuðskepnurnar leika sitt sjónarspil, viö undirleik til- kynninga í útvarpi um lokaða skóla, ófæra vegi og áskoranir til fólks um að halda sig innivið. -óbg.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.