Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.1984, Page 10
10
Vegna mikilla anna hefur verið erfitt að ná
símasambandi við skiptiborð Útsýnar og
biðjum við viðskiptavini okkar velvirðingar
á því en bendum á beinar línur.
HÓPFERÐIR, 22100 OG 27209.
EINSTAKLINGSDEILD, 23510 OG 24106.
Mitsubishi 4x4 árg. 1982, blár.
Daihatsu Charmant árg. 1979,
blár.
Toyota Cressida árg. 1978, 5 Cortina 1600 árg. 1978, brún.
gira, skipti á Range Rover.
Saab 96 árg. 1973, góður bíll, Benz Unimog til sölu, 6 cyl.,
blár. d'sil.
Krómbrettabogar á Benz og
BMW. (Ath. úrjárni.)
Nauðungaruppboð
sem auglýst var i 76., 79. og 85. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1982 á
eigninni fiskgeymsluhús, lóð við Garðaveg, Hafnarfirði, þingl. eign
Olafs Oskarssonar, fer fram eftir kröfu Hafnarf jarðarbæjar á eigninni
sjálfri miðvikudaginn 29. febrúar 1984 kl. 14.00.
Bæjarfógetinn i Hafnarfirði.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 103., 106. og 109. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1983 á
eigninni Miðbraut 3, 1. hæð, Seltjarnarnesi, þingl. eign Sigurðar
Hermannssonar, fer fram eftir kröfu Baldurs Guðlaugssonar hrl. og
Jóns Halldórssonar hdl. á eigninni sjálfri miðvikudaginn 29. febrúar
1984 kl. 16.00.
Bæjarfógetinn á Seltjarnamesi.
DV. LAUGARDAGUR 25. FEBRUAR1984.
«***■'" W
Anna ásamt félaga sínum.
I Sjallanum á Akureyri er verld ad sýna Siikkuladi handa
Silju eftir Aínu Björk Arnadöttur — Guölaug María
Bjarnadöttir er Silja í leikritinu
Ætlaöl að taka
á möti börnum
en varö leikari
Hún er borinn og bamfæddur Akur-
eyringur og lék norðan fjalla frá því
hún var 14 ára og þangað til leiklistar-
námið hófst í Reykjavík, fjórum áram
síðar. Hún var í tvö ár í SAL-skólanum
en útskrifaðist úr Leiklistarskóla Is-
landsáriö 1977.
Síðasta leikritið sem Guðlaug María
Bjamadóttir lék í með Leikfélagi
Akureyrar var Klukkustrengir eftir
Jökul Jakobsson. Af öörum verkum
þar áður má nefna Sandkassann,
Gullna hliðið, Stundum bannað og
stundum ekki og Kardimommubæinn.
Eftir leiklistamámið hefur hún meðal
annars verið i fjórum verkum með
Pæld’íðí leikhópnum, Flugleik og Ama-
deusi hjá Þjóðleikhúsinu. Þar lék Guö-
laug eiginkonu Mozarts, Constönzu.
Gulla, eins og hún er kölluð, var
heldur þreytuleg þegar við settumst að
spjalli, tveimur dögum fyrir frumsýn-
ingu. Hún sagði að þetta væri búin að
vera mikil törn enda stuttur æfinga-
tími, aðeins 6 vikur. Svo haföi einhver
kvefskítur hlaupið í hana. Annars hafði
allt gengið vel nema ef vera skyldi
þetta með aðra hljóðhimnuna í henni.
Það óhapp haföi nefnilega hent á einni
æfingunni, að í átakasenu milli mæðgn-
anna í leikritinu fékk hún högg á eyrað
og hljóðhimnan sprakk. Það kom
þriggja millímetra rifa á himnuna en
sem betur fer á þetta að lagast allt.
Heyrnin á vinstra eyranu er samt lítil
eins og er.
„Já, já,” svaraði Gulla þegar ég
spurði hana um hvort hún hefði ekki
ung ætlað í leiklistina en bætti við að
hún hefði reyndar ætlað að fara í ljós-
móöurnám líka. „Eg ætlaði fyrst í það
og svo í leiklistina en fékk ekki inn-
göngu því þaö var tuttugu ára aldurs-
takmark í Ljósmæðraskólann. Ég
ákvað því að fara fyrst í hitt og sjá svo
til. Nú er búiö að loka skólanum svo
þaðverðuraldrei.”
Við snerum okkur aö Súkkulaðinu,
hvers konar verk er þetta? „Það
fjallar um mæðgur, önnu sem er
verkakona og Silju. Anna fer að rekast
á ýmsar hindranir í lífi sínu í gegnum
dótturina sem vill ekki lenda í sama
farinu og hún. Leikritið er um þaö
hvernig þær reyna að vinna sig út úr
þessu hvor í sínu lagi. Silju líkar ekki
hvemig mamma hennar lifir, henni
finnst hún vera notuð alls staðar. Anna
er í erfiðisvinnu í verksmiðju og fær
lítið kaup, reynir að láta skemmta sér
og hittir misgóða menn. Stelpan tekur
nærri séraðhorfa upp á þetta.”
Nú þegar Gulla kemur aftur norður
til að leika, er þaö ekki gamla góöa
Samkomuhúsið sem hún kemur fram í
heldur Sjallinn. Hann er víst þekktur
fyrir flest annaö en aö vera leikhús, í
hefðbundnum skilningi þess orðs.
Hvemig leikhús er Sjallinn? „Eg held
að það sé gott. Reyndar hef ég tals-
verðar áhyggjur af áhorfendum,
hvemig þeir komi til meö að sjá. Það
er að vísu búið aö smíða einhverjar
upphækkanir á stólum og boröum sem
eru næst sviðinu. Húsið gefur annars
góða möguleika og fellur mjög vel að
þessu stykki. Þama kemur meðal
annars fyrir skemmtistaður og hann er
tilbúinn á staðnum með bar og öllu.
Hljómburður held ég að sé góður, alla-
vega hefur ekki verið kvartað yfir því
ennþá aö það heyrist ekki.”
Aftur á heimaslóö eftir 10 ár og for-
frömun, er þaö góö tilfinning? „Já,
mér finnst það bara mjög notalegt að
vera komin aftur. Það er svo gott fólk
héma í leikhúsinu, maður.” Hvað
hefurðu grætt mest á þessum tíu
árum? „Bara lífsreynsluna, vissulega
er manni líka búin sú aðstaða að geta