Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.1984, Page 19
DV. LAUGARDAGUR 25. FEBRUAR1984:
Texti: Kristín Þorsteinsdóttir
ilivndir: Loftur,
Sveinn og Rikisskip
Þetta skip, Esjan II, var selt úr landi árið 1969. Það var
selt um langan veg eða alla leið til Bermúdaeyja. Varla
væri það í frásögur færandi, nema fyrir það að í kaupbæti
fékk kaupandinn tólf krítarmyndir eftir Gunnlaug Schev-
ing og f jögra til fimm fermetra málverk eftir Jón Þorleifs-
son af hÖfninni í Reykjavík málað árið 1939. í augum
íslendinga var hér um mikil verðmæti að ræða en sam-
kvæmt heimildum algjört drasl í augum útlendinganna.
En hvað réð því að myndirnar og málverkið fóru með?
Var það hugsunarleysi seljandans? Gerði hann sér ekki
grein fyrir því að slíkar myndir eru oftast verðlausar í
augum útlendinga? Og gerði hann sér heldur ekki grein
fyrir gildi þessara verka hér heima? Var það heiðarleiki
hans, sem réð ferðinni, sá að í samningi var gert ráð fyrir
að allt fylgdi með í kaupunum nema áhöfnin?
Við segjum frá þessari undarlegu sölu á næstu síðum. _KÞ