Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.1984, Blaðsíða 34
34
DV. LAUGARDAGUR 25. FEBRUAR1984.
MarkvarðaþjáKun
verður æ mikilvægari
Markvörðum hefur löngum reynst erfitt
aö fá vinnu í knattspyrnunni eftir aö þeir
eru hættir að leika hana sjálfir. Sérstök
markvarðaþjálfun þekkist ekki víða í knatt-
spyrnunni, a.m.k. til skamms tíma,og því
hefur markvörðum reynst erfitt að fá vinnu
sem leiðbeinendur. Það kemur líka örsjald-
an fyrir að markverðir eru skipaðir fram-
kvæmdastjórar og í svipinn man ég ekki
eftir neinum sem er starfandi núna.
En á undanförnum árum hefur
liðunum í ensku deildinni aukist
skilningur á réttri þjálfun mark-
varða og er nú mikiö um aö sér-
stakir markvarðaþjálfarar séu
ráðnir til liðanna í lengri eða
skemmri tíma. Þessi þjálfun hefur
skilað árangri því að líklega hafa
Englendingar á að skipa bestu
markvörðum heims og eru senni-
lega sú þjóð sem á hvað flesta í 1.
klassa.
Nægir í þessu tilliti að nefna
menn eins og Gary Bailey, Nigel
Spinks, Chris Woods, Peter Huck-
er, Alan Knight, Les Sealy o.fl o.fl.
En hverjir eru mennirnir á bak
við þessar stjörnur, gömlu mark-
verðirnir sem kennt hafa þeim
allar sínar brellur?
Fyrstan ber að nefna Alan
Hodgkinson sem er eiginlega sá
fyrsti sem fékk fast starf sem
markvarðarþjálfari. Hann hóf
starf sitt hjá Gillingham og var hjá
fleiri félögum áður en hann var
fenginn til liðs við enska landsliðið
þar sem hann hjálpar til viö þjálfun
hinna ýmsu liða. Sjálfur lék
Hodgkinson fimm landsleiki fyrir
England. Það var árið 1957, en þá
var hann ungur leikmaður með
Sheffield United, þar sem hann lék
allan sinn leikferil, sem endaöi árið
1969.
Aöstoðarmaður Hodgkinson er
Mike Kelly, sem í eina tíö þótti mik-
ið markmannsefni sem aldrei varö
Gary Bailey — eínn efnilegasti
markvörður Englands.
mikið úr. Hann þjálfar einnig hjá
WBA.
Fleiri markverðir sem nú eru
framariega í þjálfuninni eru menn
eins og Bob Wilson sjónvarpsþulur,
sem stóð í Arsenalmarkinu, þegar
liðið vann „double", deild og bikar
árið 1970— ’71. Wilson lék tvo lands-
leiki með skoska landsliðinu, en fer
Gordon Banks — fyrrum markvörður enska landsliðsins.
nú á dögum oft í þjálfunarferðir
ásamt tveimur öörum markvörð-
um. Leiöbeina þeir hjá hinum
ýmsu liðum og eru mjög vinsælir.
Ernie Gregory heitir einn leik-
maður fyrrverandi og lék hann aö
mestu með West Ham. Hann hefur
nú aldrei yfirgefið þaö félag að
fullu og sér um að gera markmenn
úr þeim ungu strákum sem á Upton
Park koma og vilja veröa stjömur.
Gordon Banks þarf ekki aö kvíöa
atvinnuleysinu þar sem hann
hendist fram og aftur um England
og þjálfar grimmt. Hefur hann
þjálfaö á stöðum eins og Sheffield
(Wednesday), Stoke og Norwich og
segja þeir sem hafa æft undir hand-
leiðslu þessa gamla meistara aö
það sé ómetanlegt. SigA
Af enskri
og ítalskri
knattspyrnu
Þetta er stutt í dag en þess í stað komið
víða við. Allt frá Gordon Banks og alveg
fram í sóknina til Zbignew Boniek. Raunir
eins af efnilegustu miðvörðum Englend-
inga fyrr og síðar raktar og græðgi ítala í
þá bestu gerð skil.
Ef lesendur þessara dálka vilja lesa um
eitthvað öðru fremur þá er um að gera að
senda línu.
Utanáskriftin er:
Knattspyrausíðan
Helgarblað DV
Síðumúla 12—14
104 Reykjavík.
Bob Wilson
markvörður Arsenal
felagið vann bæði deiid og bikar.
1971. þegar
a komið
fyrir Kevin
Beattie
Hann var hérna í eina tíð besti miðvörður
sem Englendingar áttu. Hann lék níu lands-
leiki og var kjörinn „Young player of the
Year”. Bobby Robson sagði hann vera
besta leikmann sem hann hefði séð spila í
sinni stöðu. Núna er hann handlangari hjá
múrsteinahleðslumanni. Hann er Kevin
Beattie.
Já, knattspyrnan er ekki alltaf
dans á rósum fyrir knattspyrnu-
menn og óvissan um hvað tekur við
þegar ferlinum lýkur er algjör.
Nokkrir komast í þjálfun og örfáir
ná svo langt aö verða fram-
kvæmdastjórar. Aðrir hafa aurað
saman og geta keypt sér lítinn
„pöb” eða fyrirtæki, en aðrir eiga
ekki eyri þegar upp er staðið.
Þannig er einmitt komið fyrir
Kevin Beattie sem hefur þurft að
leggja skóna á hilluna vegna þrá-
látra meiðsla í hægra hné. Hann
hefur bætt við sig mörgum kílóum
og er kominn með vömb á því að
hanga niðri á pöb. Hann leikur .
knattspyrnu með litlu utandeildar-
liði sem venjulega tapar með 4—5
marka mun og hnéð á honum þolir
það varla. Samt streitist hann við.
I raun rétti hefði Beattie átt að
vera búinn aö leggja skóna á hill-
una fyrir löngu, er læknar sögðu
honum að hann gæti ekki leikiö út
af hnénu.
Beattie hætti hjá félaginu sínu,
Ipswich, en var stuttu síðar farinn
að leika meö Colchester í fjórðu
deild. Eftir nokkra leiki þar haföi
Malcolm Allison hjá Middlesbro
samband við hann og sagðist vilja
fá hann til liðs við sig. Beattie tók
því boöi en hafði aöeins leikið
nokkra leiki er hnéð gaf sig og hvíld
var fyrirskipuð. Beattie byrjaði
aftur í upphafi keppnistímabilsins
og kannski hefði allt verið í lagi ef
han hefði ekki asnast til að skrópa í
vinnunni til að geta flutt til
Middiesbro. Allison varð æfur og
Beattie var sagt upp samningnum
og hann gat hætt við að flytja.
Og nú stendur hann uppi gjör-
samlega peningalaus með konu og
þrjúbörn. -SigA.
ivevm ueauie — poiu einnegasu
leikmaður Englands fyrir nokkr-
um árum.