Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.1984, Blaðsíða 3
DV. MANUDAGUR 5. MARS 1984.
3
Nordsat-tungl fyrir
7,5 milljarða
— samnorrænt sjónvarp um allt landið
og miðin
Ef marka má tilraunatungl sem
Svíar hafa komiö á loft til sjónvarps-
sendinga meöal annars mun þaö kosta
um 7,5 milljarða íslenskra króna að
skjóta upp tveim samnorrænum tungl-
um eftir svokallaðri Nordsat-áætlun.
Þau myndu meöal annars leysa allan
vanda okkar við aö dreifa sjónvarps-
dagskrám um landið og miöin.
I samtali við Gústav Amar, yfir-
verkfræöing Póst- og símamálastofn-
unarinnar, sagöi hann að ef ákvörðun
heföi verið tekin um Nordsat 1980 væru
þjóðir Norðurlandanna nú í farar-
broddi í fjarskiptum og miðlun út-
varps- og sjónvarpsefnis gegnum
gervitungl. „En nú erum við á eftir og
ekki er búist við að það liggi fyrir fyrr
en seint á þessu ári sem stjómmála-
menn óskuðu síðast eftir til þess að
þeir teldu sig geta byggt á ákvörðun.”
Ljóst er, að sögn Gústavs, að vegna
fjarlægöar okkar frá fjölmennustu
Norðurlöndunum mun þessi hugsan-
lega Nordsat-áætlun kosta meira en
ella, okkar vegna. En þó við lentum að
einhverju marki í hlutfallslega meiri
kostnaði en hinar þjóðirnar, leystu
hnettirnir líklega enn stærri fjárhags-
leg vandamál ef stefna ætti að fram-
tíöarsjónvarpi um allt Island og öll
miðiníkring.
Verði ákveðið næsta vetur að skjóta
upp tveim Nordsat-tunglum koma þau
ekki á loft og aö fullu gagni fyrr en
1989.
HERB
Bæ jarstjórn Dalvíkur:
Fiskvinnsla og utgerð
verði í einu fyrirtæki
Bæjarstjóm Dalvíkur samþykkti a
fundi á fimmtudag að beita sér fyrir
sameiningu þriggja stærstu útgerðar-
og fiskvinnslufyrirtækja á staönum,
Utgerðarfélags Dalvíkinga, Söltunar-
félags Dalvíkur og Upsastrandar.
Hugmyndin er að stofna eitt félag
sem yfirtaki rekstur og eignir þessara
félaga. Beinir bæjarstjómin því til
stjórna fyrirtækjanna að afstaða veröi
tekin til þessarar samþykktar. Einnig
óskar hún eftir því við KEA að inn í
þessa heild komi frystihús KEA á
Dalvík ef umrædd þrjú fyrirtæki ná
samstööu.
Þetta mál hefnr verið til umræðu á
Dalvík í nokkurn tíma. A fundi bæjar-
stjómar 9. febrúar var skipuð nefnd til
að athuga ýmsa þætti útgerðarmála á
Dalvík, þar á meðal þessa hugsanlegu
sameiningu fyrirtækjanna.
Nefndin skilaði áliti í fyrradag og
samþykkt bæjarstjórnar var gerð í
framhaldi af því.
Meginkostur sameiningarinnar er að
mati bæjarstjórnar sá að með því verði
best komið í veg fyrir samdrátt í at-
vinnulífi og atvinnuleysi vegna minnk-
andi sjávarafla. Hagsmunum útgerðar
og fiskvinnslu sé best borgið með sam-
einingu og þar með bæjarfélaginu í
heild. -JBH/Akureyri.
■
Eitthvað fyrir
piá
Við leggjum áherslu á
fjölbreytni í skrifborós-
stólum og vandaóa vöru.
15 ára reynsla hefur
kennt okkur margt og
ennþá vinnum viö aö því
aó bæta framleiðsluna
og auka úrvaliö.
STÁUÐJANhf
SMIÐJUVEGI 5, KÓPAVOGI, SÍMI 43211
Líttu inn til okkar,
viö höfum ábyggilega
eitthvaö fyrir þig.
Það er góð tilfinning að sitja undir
styri í bíl sem leikur í fiöndum
manns. UNO er einmitt slíkur bíll.
UNO er fisléttur,
sprettfiarður, kraftmikill,
framfijóladrifinn og
liggur vel 'a vegi.
UNO fiefur staðið sig frábærlega
vel í snjónum
að undanförnu og liggur
við að jeppar fölni í samanburði
við þennan kattmjuka skaflakljúf.
UNO fékk 9.5 í einkunn
fyrir aksturseiginleika
fijá Auto Motor und Sport
og segir það kannski mest
um fivílíkur gæðingur þessi bíll er.
IEGILL
/ VILHJÁLMSSON HF.
Smiðjuvegi 4, Kópavogi. Símar 77200 - 77202