Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.1984, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.1984, Blaðsíða 16
 vr 16 Spurningin Kemurðu til með að sakna Dallas? Guðmunda Reynisdóttir: Já, já, ef- laust á maður eftir að gera það. Kristín Hraundai: Nei, ég held ekki. Þó eru þetta orðnir hálfgerðir vinir manns. Maður passar að hafa það rólegt á miðvikudagskvöldum svo maður geti fylgst með. Magnea Lilja Haraldsdóttir: Nei, og ég efast um að þjóðin geri það yfirleitt. Jón örn Stefánsson: Eg horfi stundum á Dallas en mér finnst hann leiðinlegur og á ekki eftir að sakna hans. Vigdís Viðarsdóttir: Nei, alls ekki, ég er búin að fá hundleið á þessu og ég held að svo sé um flesta. Einar Ásgeirsson: Nei, hlífið mér við því. Þjóðinni er alveg sama held ég. Lesendur Lesendur Lesendur Lesendur DOPtÐ, TILHVERS? Guðjón Bragi Benediktsson skrifar: Undanfarna mánuöi hefur fólkið á eyjunni okkar rætt fíkniefnavanda- málið af miklu kappi. Eftir umræðun- um aö dæma viröist vandamáliö einna helst vera síaukið framboð ólöglegra vímugjafa á landinu. Fáum hefur dottið í hug að spyrja hver sé orsök sívaxandi eftirspumar eftir ólöglegum fíkniefnum, þó vita allir að ekkert þýöir að berjast viö vandamálin ef orsök þeirra er óþekkt. Það er augljóst mál að eftirspurnin mun haldast hvort sem notast verður við læknadópiö, áfengið, sniffefni eða ólöglega vímugjafa. Þess vegna er til- gangslítiö aö fást sífellt viö afleiðingar vandans, sem er síaukið framboð, og fólk sem hefur farið illa á neyslu sinni. Ti/ hvers? Vímugjafar hjálpa unga fólkinu okkar að flýja þann tómleika sem það finnur vaxa innra með sér. Þessi tóm- leiki er til staðar vegna þess að sú kyn- slóð sem er að vaxa úr grasi í dag sér ekki tilgang í neinu. Þaö finnur von- leysið og óhamingjuna aukast í kringum sig og finnst það litil áhrif geta haft til aö bæta umhverfi sitt. Þar er allt í föstum skorðum. Einangrun og sambandsleysi eykst og lítið er oröið um raunveruleg mannleg tengsl og hlýj u í garö náungans sem er þó grund- vallaratriði þess að fólki geti liðið vel saman. Nei, þaö er ekki að furöa þótt unga fólkið í dag sé aö gefeast upp á þessu öllu saman og leiti auðveldra und- ankomuleiða í draumaheimi vímunnar. Hvað getum við gert? Hvað þyrftum við Islendingar að gera til þess að veröa fyrsta þjóöin í heimi sem ræðst að orsök vímugjafavand- ans? I fyrsta lagi þyrftum viö að hugsa um hvað það er sem færir okkur raunverulega hamingju og miöa gjöröir okkar út frá því (íhugið þetta nánar). Frá hasspartíi. Lesandi segir fólk leita á náðir vimugjafa til að fíýja tóm- leika. I öðru lagi: Við þurfum að gera okkur grein fyrir því að ef fólkiö í landinu getur ekki leyst vandamáliö þá gerir þaö enginn fyrir það. Hvorki sál- fræðingar, tollgæslumenn, hasshund- ar, félagsfræðingar, AA-menn, lögg- urnar, meðferðarstofnanir SAA eöa neinn annar sem tekst á við afleiöingar vandans. Við öll saman getum leyst vanda- málin meö því aö sjá orsakirnar, finna lausnir og framkvæma þær síðan öll saman. Ekki bara tala um hlutina hver í sínu horni eða fást við afleiðingar eins ognúer gert. Virðum okkur sjálf og aðra í verki og sköpum þjóðfélag þar sem öllum líður of vel til þess að þurfa að flýja á náðir vímunnar. Byrjum strax í dag. Byrgjum brunninn — lesandi vill námskeið áður en til skilnaðar kemur Ein tvískilin hringdi: Eg rakst á grein í blaðinu ykkar þann 27. febrúar um skilnaðarnám- skeið sem á að hleypa af stokkunum í Reykjavík á næstunni. Mér datt svona í hug viö lestur þess- arar greinar hvort ekki væri sniöugra að koma af stað námskeiði í upphafi sambúðar um fyrirbyggjandi aðgerðir fyrir fólk sem er að byrja sambúð. Það er staðreynd að upp koma vandamál sem fólk á í erfiðleikum með að leysa vegna reynsluleysis. Þarna kæmu þessi námskeið að góðu haldi og hægt væri til dæmis að fá fólk til að vitna sem lent hefur í vandræðum í sínu hjónabandi og tekist aö leysa úr þeim. Við sætum ábyggilega uppi með færri hjónaskilnaði heldur en raunin er í dag ef fólk vissi fyrirfram hvernig ættiaðleysa vandamálin. A þessum námskeiðum væri hægt að fá uppeldisfræðinga til að gefa góð ráð um uppeldi barna og hvernig hægt er að samræma mismunandi uppeldis- hugmyndir í stað þess að foreldrar fari að rífast um hvernig best verður að því staöið. Eg veit um dæmi þess að fólk hefur endað með því að rífast fyrir framan barnið um þaö sjálft og svo endar allt með skilnaöi og þar höfum við örugglega ranga uppeldisaðferð. Einnig væri hægt að fá einhverja til að ráöleggja fólki hvernig best væri að koma sér saman um hvernig á að eyða þeim litla afgangi sem það hefur á milli handanna þegar búiö er að greiða fyrir alla nauðsynjavöru og þjónustu. Það mætti áreiðanlega hafa mikið gagn af svona námskeiðum því þarna værum við að byrgja brunninn áður en barniö dytti ofan í hann en ekki eftir á eins og í tilfellinu meö skilnaöarnám- skeiðin. Enginn má þó skilja þaö sem svo að þessi námskeið séu ekki góöra gjalda verð úr því fólk er á annað borð búiö aö ákveða aö skilja. Eg er núna i minni þriðju sambúö og mín reynsla í þessum málum er að framtíð sam- búðarinnar ráðist á þriðja og fjórða ári en svona námskeið gætu örugglega hjálpaö fólki. Fórnarlamb óveðursins Fyrirbyggjandiaðgerðir kæmu sér vel. allt sem því fylgir. Það eru nefnilega við á litlu bílunum sem gerum það. Sjáið til, í ófærö um daginn vildi svo illa til aö ég festi mig í götu sem ekki var búið að ryðja svo ég varð að ná í hjálp. Eg kom svo aftur eftir um þaö bil 3 tíma en þá var bíllinn horfinn. Eg hélt að enginn myndi nenna að stela bO sem væri fastur í miðjum snjóskafli. Svo ég hringdi ekki til lög- reglunnar til aö tilkynna bílstuld heldur til að grennslast fyrir um hvort þeir vissu eitthvað um bílinn. Þá kom það upp úr kafinu að lög- . reglan hafði látið flytja bílinn burt af veginum og hann væri niðri á lög- reglustöð. Svo kom ég að ná í bílinn en það kostaði mig 700 krónur sem ég þurfti að borga í flutningskostnaö. Eg borgaði eftir miklar mótbárur sem voru gagnslausar svo ég fékk bílinn að lokum. En þaö var ekki nóg. Eftir 3 vikur fæ ég reikning upp á rúmar 500 krónur fyrir að leggja ólöglega og er hann dagsettur sama dag og ég festi mig. Eg varð aö borga svo að það kostaöi mig, fátækan skóladreng, í lokin rúmar 1.200 krón- ur aö festa bílinn í ófærðinni sem við Islendingar búum viö. Gylfi Þór Þórisson, nemi í Fjölb. í Breiðh., skrifar: Við Islendingar búum við miklar vetrarhörkur og oft teppast vegir svo að ekki er hægt að aka á þeim. Allur þessi snjór kostar talsvert í sam- bandi við snjómokstur og salt- dreifingu á vegum en þaö er allt í lagi því að ríkið er búið að finna góða leið til að fjármagna snjómokstur og Nemi i FB þurfti aðstoð við að losa bil sinn úr snjó og brá sér frá. Er hann kom tilbaka varbillinn horfinn. Afbrotaunglingar ofvemdaðir Konahringdi: Mig langar að koma á framfæri fyrirspurn til ráðamanna þjóðarinnar hvort ekkert sé hægt að refsa afbrotaunglingunum sem ganga lausir um götur og stræti. Það viröist ekkert vera hægt aö gera því þessir afbrotamenn ganga um algerlega vemdaðir af lögum í samfélaginu. Það er til að mynda ekki hægt að kæra þá, ekki hægt að gera foreldr- ana ábyrga og þeir geta gert þaö sem þeim sýnist vitandi þaö að þeim mun ekki verða refsað. Eg hef sjálf orðið fyrir aðkasti þessara unglinga og verandi búinn að lifa af þá reynslu tel ég réttast að loka þetta hyski bak við lás og slá, þetta gengur um.slasar fólk og brýst inn í ibúðir með því hugarfari einu að stela og eyðileggja húsgögn. Sennilega væri þó besta lausnin aö krakkarnir væru látnir vinna sjálfir fyrir því sem þeir skemmdu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.