Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.1984, Page 11

Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.1984, Page 11
DtukÁWú^ÁÓÚÍtYMÁfe'sfÍ984'' ff „Sjáum aldrei peninga í þessu starfi” — segir Eiríkur Guðnason, nýr forstöðumaður hagdeildar Seðlabankans Eiríkur Guðnason viðskipta- fræðingur tók við starfi forstöðumanns hagdeildar Seðlabankans þann 1. mars síðastliðinn. Hann var spurður hvernig honum litist á nýju stööuna. ,,Mér líst vel á hana,” sagði hann. ,,Eg þekkti deildina vel og hef unnið hér nokkuð lengi, eða síðan í júní 1969.” Hagdeildin annast m.a. skýrslu- söfnun og skýrslugerð um peningamál og lánamál, svo og rannsóknir sem því tengjast. Sem forstöðumaður verður Eiríkur tengiliður á milli deildarinnar og bankastjórnarinnar. En verður starf hans þá eingöngu stjómunarlegs eðlis? ,,Eg vonast til aö geta verið eitthvað sjálfur í skýrslugerð, kannski ekki ít- arlegum rannsóknum en sem sam- starfsaðili. Og ég vonast til að hafa tímatil aðskrifa.” — Er þessi skýrslugerö skemmtileg? „Bæði og. Auðvitað væri maöur ekki í þessu ef manni leiddist mikið. Það er margt fróðlegt sem sést í gögnunum sem viö söfnum og stundum gerast spennandi hlutir.” — Er gaman að hugsa um peninga allandaginn? „Maður hugsar kannski ekki um peninga daginn út og inn þó að maður vinni hér. Við sjáum aldrei peninga í þessu starfi, bara tölurnar. ” — Er þá ekki „frústrerandi” að sjá aldrei neitt nema tölumar? ,,Eg held að enginn geri kröfur til þess að sjá neitt í líkingu við þessar tölur í seðlabúntum. En þaö er ekki hægt að neita því aö stundum er, ,frúst- rerandi” aðsjáþessartölur.” Eiríkur útskrifaðist úr Háskóla Islands árið 1970, eða ári eftir að hann hóf störf í Seðlabankanmn. Hann var spurður hvort þetta þýddi að það væri gottaðvinnaþar. „Já, ég er mjög ánægöur. Eg þekki best mína deild og hér er mjög góður vinnuandi.” — Hefðirðu ekki gott af því að breyta aðeins um umhverfi? „Eg vil ekkert útiloka það. Það getur vel verið að ég hefði gott af því og það getur komið að því að fleiri hefðu gott af því. En eins og er líkar mér nægi- lega vel til að halda áfram og ég vona að öðrum líki það einnig nægilega vel,” sagði Eiríkur Guönason. Eiríkur er kvæntur Þorgerði Láru Guðfinnsdóttur og þau eiga 4 börn. -GB „Ég held að enginn gerí kröfur til að sjá neitt i likingu við þessar tölur i seðlabúntum," segir Eirikur Guðnason, forstöðumaður hagdeildar Seðla- bankans. DV-myndEÓ fáir standast SMIÐJUVEGI 9 - SÍMI 43500 Hönnuður Pétur B. Lúthersson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.