Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.1984, Page 18
18
DV. MANXJDAGUR 5. MARS1984..
Rakarastofan Klapparstíg
Sími 12725
Hárgreiðslustofa Klapparstíg
Tímapantanir
13010
Magnús E. Baldvinsson
Laugavegi 8 — Sími 22804
/ímebajl—
Verðlaunagripir
og verðlaunapeningar
i mikiu úrvali
i *
FRAMLEIÐI OG UTVEGA
FÉLAGSMERKI
POSTSENDUM
SMÁAUGLÝSINGAÞJÓNUSTA
VIDGETUM
LETT ÞER SPORIN
OG AUDVELDAD DÉR FYRIRHÖFN
Við viljum vekja athygli á að þú getur látið okkur sjá
um að svara fyrir þig símanum. Við tökum á móti
upplýsingum og þú getur síðanfarið yfir þær í góðu tómi
virka daga kl. 9—22
OPIÐ: laugardagað—14
sunnudaga kl. 18—22
Tekið er á móti myndasmáauglýsingum og
þjónustuauglýsingum virka daga kl. 9 — 17.
SÍMINN ER 27022.
ATHUGIÐ
Ef smáauglýsing á að birtast i helgarblaði
þarf hún að hafa borist fyrir kl. 17föstudaga.
SMAAUGLYSINGADEILD,
ÞVERHOLT111, SÍMI27022.
• Afsöl og sölutilkynningar bifreiða
• Húsaleigusamningar (löggiltir)
• Tekið á móti skriflegum tilboðum
EINSTÆÐAR MÆÐUR
0G SAMNINGARNIR
I tillögum til úrbóta fyrir þá sem
lökust hafa kjörin, sem ríkisstjórnin
hefur samþykkt, er einkum tekiö tillit
til afkomu einstæöra foreldra. Er þaö í
samræmi við niðurstöðu láglauna-
könnunar kjararannsóknamefndar.
Aögerðir ríkisstjómarinnar eru í
heild taldar kosta um 330 milljónir
króna, þar af er tekjutengdur bama-
bótaauki talinn kosta um 130 til 145
milljónir króna á þessu ári. Þessi
tekjutengdi barnabótaauki getur
numiö mest 12 þúsundum krónum á ári
fyrir bam. En fullan barnabótaauka
fær þaö foreldri sem hefur lágmarks-
tekjur eöa innan viö 150 þúsund í árs-
laun. Barnabótaaukinn lækkar síðan
hlutfallslega í samræmi viö hærra
kaup og er enginn hjá þeim sem hafa
yfir 300 þúsund í árslaun á síöasta ári.
Barnabætur koma nú til frádráttar á
skatti en eru greiddar út ef þær nýtast
ekki til frádráttar. I tillögunum er
einnig gert ráð fyrir aö óendurkræfur
barnalífeyrir og meölög veröi hækkuö
um 400 krónur þannig aö þau veröi nú
2.015 krónur á mánuði. Mæðra- og
feðralaun, sem greidd eru til allra
einstæöra foreldra, veröa hækkuö um
750 krónur á mánuði fyrir hvert barn
þannig að þau yröu nú 1263 krónur á
mánuöi. Þessar greiöslur eru inntar af
hendi hjá Tryggingastofun ríkisins.
Meðlag með barni á mánuöi hækkar
úr 1.615 krón um í 2.015.
Meö tilliti tii þess aö aögerðir ríkis-
stjómarinnar miöa aöallega aö úr-
bótum fyrir bamafólk og einstæða for-
eldra sneri DV sér til þriggja
einstæðra mæöra sem blaöiö átti
samtal við fyrir nokkrum vikum um
kjör þeirra og voru þær nú inntar eftir
áliti á væntanlegum breytingum.
-HÞ.
Halldóra Jónasdóttir:
Samningarnir
breyta litlu
Lifi sínu lýsti Halldóra Jónasdóttir,
fertug einstæö móöir, sem „hringiðu
afborgana” i viötali viö DV þann 10.
febrúar sl.
Halldóra Jónasdóttir er engu að
síður tiltölulega best sett af þeim
þremur konum sem rætt var viö. Hún
er starfsmaður kjararannsóknar-
nefndar og hefur gegnt því starfi sl. 17
ár. Hún á tvær dætur, 11 og 19 ára.
Móðir Halldóru heldur heimili með
henni og dætrunum í hundrað fermetra
íbúö sem Halldóra er nú aö festa kaup
á.
Tekjur heimilisins eru laun Halldóm
hjá kjararannsóknarnefnd sem eru 19
þúsund, ellilífeyrir móöur hennar og 8
þúsund krónur sem hún og eldri dótt-
irin vinna sér inn meö skúringum. Viö
þetta bætast síöan meölög og mæöra-
laun.
„Miöaö við mitt kaup breytir þessi
nýjung, sem tekjutengdi barnabót-
aukinn er, litlu hjá mér. Mér reiknast
svo til að ég muni fá um 3 þúsund á ári
eöa 250 krónur á mánuöi í bamabóta-
auka. Þá fæ ég aöeins mæðralaun meö
yngri dótturinni sem nemur um 750
króna hækkun. Eg held aö þessir
samningar breyti afskaplega litlu.
Kaupmáttur hefur fariö stööugt þverr-
andi og kaupið hefur ekki hækkaö
síöan 1. október. Eg á von á
áframhaldandi rýmun kaupmáttar,”
sagöi Halldóra.
Kvaöst hún ennfremur vilja gera
meölögin aö umtalsefni. ,,Eg skil
ekkert í því aö talað sé um meölögin
eins og tekjur og hækkun á þeim eins
og um tekjuhækkun sé aö ræöa.
Meölögin hafa mér alla tíö fundist vera
fyrir neöan allar hellur. Munurinn á
þeim fórnum sem einstæö móöir þarf
aö færa annars vegar og faöir sem ekki
hefur börn sín í sinni umsjá hins vegar
er geigvænlegur. Miöað viö þær fómir
sem einstæð móöir þarf að færa sleppa
feöur yfirleitt mjög vel. Þeir eru oftast
tekjuhærri, ef ekki alltaf. Þaö eina sem
þeir þurfa aö gera er aö greiða
einhvern smáhluta í meölag og þar
meö eru þeir firrtir allri ábyrgö. Það
er móðirin sem þarf að taka sér frí í
vinnunni til að sitja heima hjá sjúku
barni. Þaö er móöirin sem þarf aö láta
enda ná saman og hafa áhyggjur af því
hvemig hún fer aö því. Eldri dóttir mín
var alltaf mjög lasin á fyrsta ári og þá
þurfti ég aö sitja heúna með þeim af-
leiöingum aö ég missti vinnuna. Á
heildina litið er ekki tekiö tillit til að-
stæöna kvenna, alla vega ekki á sama
hátt og karla.
Þegar afkvæmin ná 18 ára aldri eru
feöur lausir viö „fjárhagsbyröar” eöa
meölagskvöö nema samkvæmt nýjum
lögum nú aö unglingurinn sé enn viö
nám. Þá gefst viökomandi tækifæri til
að fara fram á áframhaldandi
meðlagsgreiöslu af hálfu fööur. Geri
ég mér í hugarlund aö margur ungling-
urinn veigri sér viö slíku ef dæma á frá
reynslu minni meö dóttur mína sem er
enn viö nám. Þegar hún varö 18 ára og
faðir hennar ekki lengur meðlags-
skyldur þurfti hún aö fara niöur í Saka-
dóm meö skólavottorö. En í dóms-
málaráöuneytinu höföu okkur verið
gefin þau svör aö hún myndi fá áfram
meðlag en upphæðin yröi háö f járhag
fööur. Hvenær eru aöstæöur móöur
metnar í þessu sambandi?
-HÞ.
Alda Jónsdóttir:
Vart til mik-
illabóta
„Þetta er vart til mikilla bóta. Ætli
þetta fari ekki allt í sama horf aftur,”
sagöi Alda Jónsdóttir, 34 ára, tveggja
bama móöir um samningana og fyrir-
hugaðar aðgeröir ríkisstjórnarinnar.
Fyrir nokkrum vikum sagöi Alda í
samtali við DV að hún væri hálfan
sólarhringinn í burtu frá börnunum, á
saumastofu á daginn og skúrandi á-
kvöldin til aö hafa fyrir brýnustu nauð-
þurftum. Alda hefur unniö á sauma-
stofunni Scana í tvö ár. Hún hefur um
11 þúsund í grunnlaun en fær með
bónus útborguð tæpiega 14 þúsund.
Fyrir rúmum mánuði fór hún aö skúra
á saumastofunni til að endar næðu
saman. „Eg hygg að ég muni áfram
treysta á skúringarnar. Afkomuvonir
mínar eru bundnar viö aukna vúinu en
ekki svona samninga sem ég held aö
fæstir í svipaðri aöstööu og ég er séu
ánægðir með.
Eg held aö ég nái endum saman nú,”
segú- Alda sem borgar um 8 þúsund
krónur í leigu á mánuöi en hún þurfti
að taka lán til aö borga 70 þúsund fyrir-
fram í leigu.
Fyrir skúringamar fær Alda 6
þúsund krónur á mánuði. Meö fyrir-
huguöum aögeröum ríkisstjómarúinar
mun hún fá um 8500 á mánuöi í mæðra-
laun, bamabótaauka og meölög í staö
4256 króna. „Þetta gengur,” segir hún
og bætir viö „en ekki meira en svo.”
-HÞ.
Kristín Sigurðardóttir:
Ef stjórnvöld
vilja borga
fyrir feðuma...
„Langvarandi peningaleysi veldur
því að maður hættú að hafa áhyggjur,
lætur bara slag standa og verður
næstum kærulaus,” segir Kristúi
Siguröardóttir, þrítug þriggja barna
móðir, sem vinnur hálfan daginn í
verslun. „Ef ég ynni ekki í búð vissi ég
ekki hvemig fúnm hundruð kailúin liti
út,” segir hún og kveðst hafa átt
hundraö kall í viku sem hún vonist til
aö halda í fram aö mánaðamótum.
Kristín kveður húin tekjutengda
bamabótaauka, sem fyrúhugaður er,
■verða hina mestu búbót. En fyrir hana,
meö þrjú börn, þýöir þetta þrjú þúsund
krónur á mánuði aukalega eða 36
þúsund á ári. „Ef ríkisstjórnin vill
borga fyrú feðuma þá hef ég ekkert á
móti því,” segú Kristín sem geröi
meðlögin aö umtalsefni viö DV fyrú
nokkrum vikum.
Tekjur Kristínar nú em rúmlega 8
þúsund krónur og meðlög og mæöra-
laun nú um 8500 krónur. Um síðustu
mánaöamót fóru tekjur hennar og
meölög sem og helmingur dagvist-
unargjalda frá fyrra mánuöi, sem hún
fær endurgreitt, beint í afborganú af
reikningum. „Eg þurfti að greiða
gjaldheúntunni, súna- og rafmagns-
reiknúig, afnotagjöld af sjónvarpi,
dagvistun fyrir tvær dæturnar (móöú
hennar gætir þeúrar elstu) og smá-
reikninga en matarreikninginn skulda
ég enn og hef gert í nokkra mánuði. Þá
fékk ég lánaöan fúnm hundruö kall hjá
mömmu sem ég keypti strætómiöa
fyrir og hef ekki haft annaö reiöufé
undir höndum þennan mánuð nema
hundraö kaliinn sem ég hef átt í viku.
Sígarettur og mat fæ ég skrifað. Og um
næstu mánaöamót fæ ég ekki súna- og
rafmagnsreikning.”
Hækkun mæðralauna, meðlaga og
hinn tekjutengdi barnabótaauki mun
nema um 6500 krónum fyrú Kristínu,
eða veröa tæplega 15 þúsund á mánuöi
miöaö viö 8500 nú.
-HÞ.