Dagblaðið Vísir - DV - 26.03.1984, Qupperneq 1
Galdrakariinn
ábakviSHart
— sjábls. 10
Umferoarongþveitifl leynir sér ekki á þessari mynd enda hafa líklega aldrei komifl fleiri i Bláfjöllin á einum
degi en í gær. DV-mynd GVA.
Umferðaröngþveiti
i Bláfiöllum ígær
— aðsóknin sú mesta í vetur
Allmikill fjöldi íbúa á höfuðborgar-
svæðinu og víöar var sammála um að
bregða sér á skíði á þessum dýrðar-
sólardegi sem var hér í gær. Leið
flestra lá upp í Bláfjöll og var snemma
dags stöðugur straumur bíla frá
Reykjavík þangað upp eftir. Þegar líða
tók á daginn og sumir voru búnir að fá
nóg af útiverunni kom í ljós að það var
hægara sagt en gert aö komast burtu.
Algjört umferðaröngþveiti hafði
myndast á veginum upp í Bláfjöll og
gátu bílarnir sig hvergi hreyft.
Ástæðan fyrir þessari teppu var m.a.
sú að margir bileigendur höfðu lagt
bíl sínum við vegarkantinn með
þeim afleiðingum að erfitt var fyrir
aðra bíla að komast fram hjá þeim.
Um þrjúleytið sá lögreglan þann eina
kost að loka allri umferð upp eftir af-
leggjaranum til Bláfjallasvæðisins.
Eftir að þessar ráðstaf anir höfðu verið
gerðar gekk umferðin strax mun
greiðlegar fyrir þá sem voru á leið
frá svæðinu.
Að sögn manna sem voru staddir
þama var veðriö mjög gott og skíða-
færi hið besta. Einn skiðamaður sagði
okkur að svo virtist sem allir sem ættu
skíöi hefðu dregið þau fram úr pússi
sínu og brugðið sér upp í BláfjöD. Ekki
var hægt að fá nákvæmar upplýsingar
um hversu margir voru staddir þarna
en aðsóknin sem var í gær var sú
mesta sem verið hefur í vetur og lík-
lega sú mesta um árabil. -APH
Tómas Árnason, alþingismaður
og forstjóri Framkvæmdastofn-
unar, var einn þeirra sem lögðu
leið sina í Bláfjöllin i gær.
DV/GVA.
Framkvæmdastjóri VSI um Dagsbrúnarsamningana:
mnan sama ramma
og hjáVSÍ og ASÍ
„Meginatriðið í þessu er að við
höfum náð samkomulagi við
Dagsbrún og að það fellur innan þess
ramma sem ASI og VSI sömdu.
Samiö var um sömu
prósentuhækkanir, sömu dag-
setningar og sama samningstíma,”
sagði Magnús Gunnarsson, fram-
kvæmdastjóri VSl, er DV leitaði áDts
hans á samningi VSI og Dagsbrúnar
sem samþykktur var á félagsfundi
Dagsbrúnar í gær. Var sam-
komulagiö samþykkt með öllum
greiddum atkvæðum gegn átta mót-
atkvæðum. Samkomulagiö viö VSI
og ríkið var borið upp saman.
„Astæða þess að við felldum niður
starfsaldursþrep fyrir 16 til 17 ára
verkamenn er sú andstaöa sem við
höfum orðið varir við bæði úr röðum
verkamannaog vinnuveitenda. Hins
vegar er það nokkurt áhyggjuefni að
hvar sem nokkurt atvinnuleysi er og
byrjendur fá sömu laun og þjálfaðir
menn hefur þaö leitt af sér aukið at-
vinnuleysi unglinganna,” sagði
Magnús. -GS.
Sjá bls. 2.
mmm
Emn
Dallasþáttur
íviðbóttil
— sjábls.3
AmarfSug
flýguráfram
innanlands
-sjábls.2
Laugavegur63
flyturá
Framnesveginn
— sjábls.4
Úrslitískákinni
íNeskaupstaö
— sjá bls.40