Dagblaðið Vísir - DV - 26.03.1984, Side 2
2
DV. MANUDAGUR 26. MARS1984.
Dagsbrún og ríkið
gengu frá samningum
ígærmorgun:
Getur
þýtt
fimm
flokka
hækkun
Verkamannafélagiö Dagsbrún
og fjármálaráðherra undirrituöu
formlega samkomulag sín á milli í
gærmorgun. Að sögn Guðmundar
J. Guðmundssonar, formanns
Dagsbrúnar, verður áfram unnið
að nánari samningum við ríkið og
taldi hann vel geta komið til greina
að Dagsbrúnarmenn hjá ríkinu
fengju hækkun um einn flokk eftir
þrjú ár í starfi, annan eftir fimm.
ár, þann þriðja eftir 9 ár og svo
fjórða og fimmta eftir 15 ár.
Þetta verða þá betri samningar
en Dagsbrún náði við VSI og Vinnu-
málasamband Sambandsins þar
sem aðeins samdist um tveggja
flokka hækkun eftir 15 ár hjá sama
vinnuveitanda.
-GS.
Austurbæjarbíó var um þaö bil hálf-
setið og kenndu ýmsir góðviðrinu eða
enska boltanum um.
DV-mynd S.
„Við höíum sprengt ASt samningana
og það verður að hreinsa tíl i ASt-
forystunni,” sagði Pétur Tyrfingsson.
DV-mynd S.
Guðmundur J. Guðmundsson, formaður
Dagsbrúnar, á f élagsf undi í gær:
Enginn friður eftir
fyrsta september
— ef ekki næst árangur f endurskoðun f lokkaskipunar
A félagsfundi Dagsbrúnar í gær,
þar sem samningar Dagsbrúnar við
VSI, Sambandið og ríkið voru
kynntir, lýsti Guðmundur J.
Guömundsson, formaöur Dags-
brúnar, gangi samninga á áhrifa-
ríkan og á stundum harmþrunginn
hátt.
Þar fullyrti hann að ríkisstjórnin
hefði gripið inn í samningana og
harðbannað VSI og Sambandinu að
semja við Dagsbrún aðeins til 1.
september: „Þar sórust Vinnumála-
samband Sambandsins, VSI og ríkis-
stjómin í fóstbræðralag gegn Dags-
brún,” sagði hann.
Þá vék hann aö þætti ASI-
forystunnar og stjómar Verka-
mannasambandsins og lýsti undrun
sinni á aögeröaríeysi þessara aöila í
baráttu Dagsbrúnar. Sendi hann
þeim nokkur vel valin orð og sagði að
Dagsbrúnar
þaö sky ti nokkuð skökku við aö þegar
Dagsbrún hefði náö fram
samningum um afnám sérstakra
taxta fyrir 16 til 18 ára verkafólk að
ASI hefði þá komiö eftir á og beðið
um að fá það líka eins og Dagsbrún.
Dagsbrúnarsamningarnir em
hliðstæðir samningum ASI og VSI
hvað áfangahækkanir, gildistíma og
uppsagnarákvæði varðar. En þar
fyrir utan samdist um afnám lægri
launa til handa 16 til 18 ára ungling-
um. Þá samdi Dagsbrún nú í fyrsta
skipti um afturvirkni kauphækkana.
Þær verða 5 prósent frá 21. febrúar.
Eftir 15 ára starf hjá sama
vinnuveitanda hækka viðkomandi
um tvo launaflokka. Tveir neðstu
launaflokkar, 7. og 8. flokkur, eru
felldir niöur og 9. flokkur verður
lægsti flokkur. Sex mánaða
reynslutími vegna tekjutryggingar
verður felldur niður. Ymsar sér-
kröfur á mörgum vinnustöðum
náðust fram. Má þar nefna að fram-
vegis verða kvenmenn í Mjóikur-
samsölunni á sömu launum og karl-
menn, steypustöðvar leggja starfs-
mönnum til aukinn vinnufatnað
o.s.frv.
Síðast en ekki síst samdist svo um
að öll flokkaskipan Dagsbrúnar skuli
endurskoðuð og þeirri endurskoðun
lokið eigi síðar en 31. ágúst. „Eg lofa
engu um niðurstöður þessarar
endurskoðunar nú en ef ekkert já-
kvætt kemur út úr henni verður hér
enginn friður eftir 1. september,”
sagöi Guðmundur J. Austurbæjarbíó
var um það bil hálfsetiö og var hvað
eftir annað geröur góöur rómur aö
máliGuðmundar. -GS.
„16 til 18 ára verkamenn fé nú sömu
laun og aðrlr og þar með er barnasalan
afnumin,” sagði Guðmundur J. og
klappað var í salnum. DV-mynd. S.
Pétur Tyrf ingsson, trúnaðarráðsmaður í Dagsbrún:
Þurfum að sparka Asmundi
Stefánssyni úr stjóm ASÍ
— ASÍ f orystan hef ur af hjúpað veikleika sinn
„Meö þessum samningum hefur
verið afsannað það sem forysta ASI
hefur haldið fram í níu mánuði aö
fólk væri ekki tilbúið til harðra
aðgerða og að ekki væri hægt að ná
meiru fram en ASI náði nema með
höröumaðgerðum.
Þessar fullyrðingar voru
grundvöllur undanhalds ASI-
forystunnar viö samningsgeröina.
En viö náðum hins vegar fram mun
betri samningum án teljandi að-
gerða svo þessar röksemdafærslur
ASI-forystunnar eru bara hreint
píp,” sagði Pétur Tyrfingsson
trúnaðarráðsmaður á Dagsbrúnar-
fundinumígærdag.
Reyndar gagnrýndi hann
ýmislegt við framkvæmd Dags-
brúnarforystunnar við samningana
og þá sérstaklega ýmsa
leynisamninga við einstaka vinnu-
veitendur en lagði þó til aö þeir yrðu
samþykktir.
Hann sleppti ASI-forystunni ekki
með upphafsorðin hér ein: „Það
verður aftur farið af stað í haust og
þar sem við höfum þegar sprengt
ASI-samningana og sýnt fram á
veikleika ASI-forystunnar þurfum
við að sparka Ásmundi Stefánssyni
og öðrum fulltrúum sjálfstæðis- og
framsóknarmanna úr stjórninni á
ASl-þinginu í vetur. ”
-GS.
Twin Otter Arnarflugs í flugtaki af Blönduósflugvelli.
DV-mynd: Kristján Már Unnarsson.
Fljúgum áfram innanlands
— segir forstjóri Arnarflugs
„Eins og staðan er í dag tel ég yfir-
gnæfandi líkur til þess að við höldum
innanlandsflugi áfram,” sagði Agnar
Friðriksson, forstjóri Amarflugs, í
samtali við DV í gær.
„Flest bendir til þess aö flugi verði
haldið áfram til allra þeirra staða sem
við fljúgum nú til, að minnsta kosti
fyrst í stað,” sagöi Agnar.
Hann sagði að í ráði væri aö fækka
þeim flugvélategundum sem félagið
notaði nú í innanlandsflugi. Þrjár flug-
vélar eru nú notaðar, hver af sinni
tegund. Slikt væri óhagkvæmt. Agnar
sagði að stefnt væri að því að nota ein-
vöröungu vélar af gerðinni Cessna 402
og hugsanlega eina Twin Otter á staði
þar sem um væri að ræða stutta flug-
braut og þröngt aðflug.
-KMU.
FLUGLEIÐAÞOTUM
SKIPT í FARRÝMI
Farrýmisskipting veröur tekin upp í
áætlunarvélum Flugleiða á
Evrópuleiðum frá 1. april næst-
komandi. Farþegar, sem ferðast á
hæsta fargjaldi, sitja fremst í vélinni í
aðskildu farrými sem hlotið hefur
nafnið Saga Class.
Farþegar á Saga Class fá aukið rými
með því móti að ekki fleiri en tveir
sitja í þriggja sæta röð þegar vélin er
ekki þéttsetin. Ekki verður meira rými
milli sæta. Drykkjarföng verða inni-
falin í fargjaldi. Þessum farþegum
verður auk þess heimilt að taka með
sér þyngri farangur en aðrir án auka-
gjalds.
Flugleiðir taka fram að ekki verði á
neinn hátt dregið úr þjónustu við aðra
farþega.
-KMU.
Vestmannaeyjar:
Nýi báturinn tók niðri
Nýr og glæsilegur bátur kom til Vest-
mannaeyja fyrir helgina frá Póllandi
þar sem hann var smíðaður. Ber
báturinn nafið Gideon VE og er hið
glæsilegasta skip.
Þegar farið var í smáprufusiglingu
á bátnum tók hann niöri rétt viö
norðurkantinn á Friðarhöfninni. Þar
er sandbotn svo báturinn skemmdist
ekkert og losnaði hann af strandstað
skömmusíðar.
-klp-