Dagblaðið Vísir - DV - 26.03.1984, Síða 7
DV. MANUDAGUR 26. MARS1984.
7
Gosdrykkjaframleiðendur eru ekki ánægðir með þau gjöld sem eru lögð á
verð gosdrykkja og vilja að úrþvi verðibætt.
> .
Neytendur Neytendur
hattar
IMY SENDING
Filthattar - angóruhattar - alpahúf-
ur, 3 stærðir - angóruhúfur, 15 litir -
fashionhúfur, 11 litir.
Höfuðklútar - fermingarslæður -
krep- og leðurhanskar
Refa- og minkaskottin komin.
HATTABÚÐIN
Frakkastíg 13, sími 29560.
Drykkjarvörur:
Gjaldjöfnun
fyrirhuguð
„Það er mjög misjöfn skattlagning
á drykkjarvönun hér. Sumar hafa 17
prósent og 24 prósent vörugjald og að
auki söluskatt. Aðrar hafa hluta af
þessum gjöldum eða ekki neitt af þeim.
Þaö er nú verið að vinna að því að
þessi gjöld verði jöfnuð á þann veg að
allir sitji við sama borð hvað snertir
markaöinn og aö eðlileg samkeppni
geti átt sér stað,” sagði Geir Haarde,
aðstoðarmaður fjármálaráðherra, er
DV spurði hann hvernig málin stæöu í
sambandi viö fyrirhugaöa jöfnun
gjalda á gosdrykkjum.
Ríkisstjórnin hefur nú heimilað
fjármálaráðherra að ja&ia gjald á
drykkjarvörum. Ástæðurnar fyrir
þessu eru þær að nokkur óánægja hef-
ur ríkt meðal aðila sem framleiða og
flytja inn slíkar vörur. Sérstaklega ,
hafa gosdrykkjaframleiöendur verið
óánægöir með það fyrirkomulag sem
þeir verða að fara eftir. Þeir verða að
greiöa tvöfalt vörugjald, 17 og 24 pró-
sent, og einnig söluskatt. Geir sagöi aö
ekki væri búið að ákveða hvaða leið
yrði valin til lausnar á þessu máli.
Margir valkostir lægju fyrir. Búast
mætti við því að ákvörðun um þetta
yrði tekin á næstunni.
-APH
Er samráð
bankanna um
gjaldheimtu
óheimilt?
Að sögn Eggerts Olafssonar, lög-
fræðings hjá Verðlagsstofnun, hefur
verðiagsráð nýlega sent bréf til bank-
anna. 1 þessu bréfi er gerð athuga-
semd viö núgildandi verðskrá bank-
anna. Allir bankar hérlendis standa
sameiginlega að gerð verðskrár. Þessi
verðskrá hefur að geyma tvenns konar
gjöld. Gjöld sem eru tengd vöxtum og
gjöld sem eru tekin fyrir þá þjónustu
sem bankarnir veita viöskiptavinum
sínum. Verðlagsráðhefurgertathuga-
semd viö þau gjöld sem snúa að gjald-
töku fyrir þessa þjónustu sem bank-
arnir veita. Verðlagsráð telur að slíkt
samráð sem bankamir hafa um þessa
gjaldtöku brjóti í bága við 21. grein
laga um verðlag, samkeppnishömlur
og óréttmæta viðskiptahætti, sen þar
segir: Samningar, samþykktir og ann-
að samráð milli fyrirtækja um verð og
álagningu er óheimilt, þegar verðlagn-
ingerfrjáls.
Eggert sagði að óskað hefði verið
eftir áliti bankanna á þessu atriði.
Þess ber þó að gæta að Verðlagsstofn-
un hefur ekki meö höndum eftirlit meö
gjaldskrám bankanna. Bankarnir
hafa samráð sín á milli við gerð þess-
ara gjaldskráa.
Hjá Seðlabankanum fengum viö
þær upplýsingar aö þessi mál hefðu
verið rædd og yrði svar sent til verð-
lagsráös von bráðar. Að svo stöddu
var ekki hægt að fá upplýsingar um
efnislegt innihald svarsins. -APH
FKRRAR
SNORRABRAUT 56 SIMI 1 35 05 GLÆSIBÆ
SIMI 27211
Vesti kr. 595.--------
Buxur kr. 990.-
Ullarjakki kr. 1.690.-
Jakkaföt kr. 2.450.-
Skyrtur kr. 595.-
Leðurbindi kr. 295.-
Skór kr. 895.---------