Dagblaðið Vísir - DV - 26.03.1984, Side 20
20
DV. MANUDAGUR 26. MARS 1984.
Byggung Reykjavík
Aðalfundur
Byggung, Reykjavík, heldur aöalfund á Hótel Sögu, Súlnasal,
mánudaginn 2. apríl kl. 20.30.
Fundarefni:
Venjuleg aöalfundarstörf.
STJÓRNIN.
Setur þú blöðin þín í safnmöppur?
Það borgar sig.
Safnmöppur undir blöð og tímarit.
SAFNMOPPUR
Fást í næstu bókabúð. tfl y
»Scotch«
SPRAY - LÍM
EINANGRUNARBÖND
PÖKKUNARLÍMBÖND
MÁLNINGARLÍMBÖND
MÁLNINGARGRÍMUR
RYKGRÍMUR - SANDPAPPÍR
PRENTVÖRUR - DISKETTUR
TELEFAX OG LJÓSRITUNARTÆKI
SJÚKRAVÖRUR
ARVIK
Styrkið og fegrið fíkamann
DÖMUR OG HERRAR!
NÝ NÁMSKEIÐ HEFJAST2. APRÍL.
HINIR VINSÆLU HERRATÍMAR Í HADEGINU
Hressandi — mýkjandi — styrkjandi — ásamt megrandi æfingum. Sértimar fyrir
konur sem vilja léttast um 15 kg eða meira. Sértímar fyrir eldri dömur og þær sem
eru slæmar i baki eða þjást af vöðvabólgum. Vigtun — mæling — sturtur — gufu-
böð — kaffi — og hinir vinsælu sólarium-lampar.
Hátt uppi íHótel Húsavík:
VÍN MEÐ MATNUM
í HLIÐSKJÁLF
— nýja veitingasalnum á 4. hæð
Frá Ingibjörgu Magnúsdóttur, frétta-
ritara DV á Húsavík.
Nýr veitingasalur var opnaöur á 4.
hæö Hótel Húsavíkur fyrir helgi.
Salurinn er hinn vistlegasti og tekur
60—80 manns í sæti og auk þess er
rúmgóöur bar fyrir framan. Salurinn
heitir Hliöskjálf og þaöan er gott út-
sýni bæði til fjalls og sjávar. Hönnun
húsnæöisins er mjög smekkleg og var
hún unnin á teiknistofunni Armúla af
Jósep Reynis arkitekt. Ágústa
Rósmundsdóttir annaöist teiknivinnu.
Trésmiðjan Borg h/f sá um trésmíði,
vélaverkstæöið Foss h/f um loftræsti-
kerfi o.fl. Tækniþjónustan, Máiara-
þjónustan og fleiri unnu einnig viö
framkvæmdir. Stólarnir í salnum eru
frá 3K og borðin frá Stálhúsgagnagerö
Steinars.
Salurinn tók áöur um 25 manns í sæti
og var þremur gistiherberg jum fórnaö
fyrir stækkunina. Gistirými hótelsins
mun þó aöeins minnka um eitt her-
bergi því sjónvarpsstofu á þriöju hæð
verður breytt í tvö herbergi.
Góö aðstaða veröur í salnum til
fundahalda, magnarakerfi og
sýningartjald til staðar. Saiurinn
veröur opinn almenningi á föstudags-
og laugardagskvöidum og verður þá
boöiö upp á rétti af matseðli og heimilt
veröur aö veita vín meö mat.
Ekki er áfengisútsala á Húsavík og
hér hefur aðeins verið opinn bar í
lokuðum samkvæmum.
Ef Húsvíkingar hugsa sér aö fá sér í
glas um helgi þarf aö panta vín frá
áfengisútsölunni á Akureyri fyrir há-
degi á miðvikudegi og fá sent meö
pósti. Hefur því margur hér í bæ velt
fyrir sér hvaö yröi taliö matur í nýja
salnum.
Aöspurö sagði Auöur Gunnarsdóttir
hóteistjóri að ekki nægöi að kaupa sér
súpudisk til aö fá aðgang aö barnum en
aðalréttur af matseöli myndi duga.
Einnig veröa ýmsir smáréttir á mat-
seðli.
A sunnudag sótti fjöldi fólks kaffi-
hlaöborö í nýja salnum og líkaöi vel.
Blár opal aftur á markaðnum
Sigtryggur Albertsson, fyrrum hótelstjóri, og Auður Gunnarsdóttir, hótelstjóri á Húsavik, eru greiniiega
ánægð með nýja veitingasalinn, Hliðskjálf, á 4. hæð hótelsins.
D V-mynd Ingibjörg Magnúsdóttir.
Nýr og endurbættur blár opal er nú
kominn á markað eftir eins og hálfsárs
hlé og framleiðir þá Sælgætisgerðin
Opal aftur fjórar gerðir af opali,
rauðan, grænan, gulan og bláan.
Hætt var framleiðslu á bláum opal
vegna óf mikils innihalds af bragöefn-
inu chloroform. Nýi opalinn inniheldur
hins vegar ekki nema 1,4 prósent af
chloroformi og á samt ekki aö hafa
tapað neinu af sínu upprunalega
bragði.
Þennan árangur þakka þeir hjá
Opai samstarfi sínu viö svissneska
fyrirtækið Givaudan í Ziirich sem er
eitt kunnasta fyrirtæki heims í sinni
j grein.
Starfsmenn Sælgætisverksmiðjunnar Opal við pökkun á bláum opal
sem kemur í verslanir á næstu dögum eftír töluvert hló.