Dagblaðið Vísir - DV - 26.03.1984, Side 23
DV. MÁNUDAGUR 26. MARS1984.
23
íþróttir
íþróttir
Iþróttir
Er búið að ákveða
hverjir fara á OL
í Los Angeles?
F rjálsíþróttafólk íslands, sem æfir íBandaríkjunum, eróánægt með
vinnubrögð ólympíunef ndar íslands og stjómar FRÍ
Frá Jónl Þór Gunnarssyni — frétta-
manni DV í Bandaríkjunum: — Mikil
óánægja er meðal okkar bestu frjáls-
íþróttamanna sem dveljast nú við æf-
ingar í Bandaríkjunum. Frjálsíþrótta-
fólkið er óánægt með vinnubrögð ólym-
piunefndar íslands og stjórnar Frjáls-
íþróttasamband Islands sem vinna
markvisst að því að brjóta frjáls-
iþróttafólk niður og útiloka marga i
sambandi við þátttöku i ólympíuleik-
unum í Los Angeles.
Vinnubrögð ólympíunefndar í
sambandi við lágmörk þau sem frjáls-
i íþróttamenn þurfa að ná til að komast
tÚ Los Angeles eru vægast sagt
furðuleg þvi að mikið misræmi er í
þeim. Frjálsíþróttafólkið er mjög
óánægt með að því var ekki tilkynnt
um lágmörkin áöur en mót í Banda-
ríkj unum hóf ust fy rir stuttu.
Sigurður Einarsson kastaði t.d.
spjótinu 82,76 m á dögunum í Aiabama
og var að sjálfsögðu yfir sig ánægður
því að lágmark Alþjóðafrjálsíþrótta-
sambandsins (IAAF) er 82 m. Hann
taldi sig hafa náð OL-lágmarki en fékk
síðan þær fréttir frá Islandi að
I '.
Lothar Matthaus.
Matthaus!
fertil !
Bayern j
Miðvallarspilarlnn snjalli, ■
Lothar Matthaus hjá Borussia I
Mönchengladbaeh, tilkynnti i gær I
að hann myndi ganga til liðs við *
Bayern Miinchen eftir þetta I
keppnlstimabil í V-Þýskalandl. I
Matthaus, sem er talinn einn |
snjallasti knattspyrnumaöur V-.
Þjóðverja, á að fylla það skarð I
sem Karl-Heinz Rummenigge I
kemur til með að skllja eftir sig ■
þegar hann fer til AC Milanó. I
Matthaus er 23 ára. Hann sagðist *
myndi skrifa undir þriggja ára |
samning en það er enn ekki búið að _
að gefa upp kaupverð hans. |
•SOSjj
ólympíunefnd Islands hefði ákveöið að
lágmarkið væri 83 m.
Kristján Harðarson stökk 7,80 m í
langstökki sem er yfir alþjóðalág-
markinu. Hann fékk síðan þær fréttir
frá ólympíunefnd Islands aö lágmark
nefndarinnar væri 7,90 m.
Iris Gröndal hefur æft mjög vel að
undanfömu og stefndi hún að þvi að ná
lágmarkinu — 56 m í spjótkasti. Hún
fær síðan þær „gleðifréttir” að
ólympiunefnd Islands hafi hækkað lág-
markið í 61 m sem er fimm metrum
lengra en aiþjóöalágmarkið er. Þess
má geta að spjótkast kvenna vannst á
70,82 m á HM í Helsinki sL sumar.
Svona má lengi telja.
Olympíunefndin hefur leikið sér með
lágmörkin í mörgum greinum á sama
tíma og litlar sem engar breytingar
hafa verið gerðar á öðrum greinum.
Þvi vaknar spurningin — er verið að
útiloka að sumir frjálsíþróttamenn nái
OL-lágmörkum? Hefur ólympíunefnd
Islands nú þegar ákveðið hverjir fara
til Los Angeles? -jþg/-SOS.
Sigurður Einarsson.
„Stjói nFRl r 1
Ó ' geriri uppá r \
milli m lanna 11
segir Sigurður Einarsson, spjótkastarinn efnilegi
Frá Jóni Þór Gunnarssyni — frétta-
manni DV í Bandaríkjunum: — Það
kom mér ekkert á óvart að OL-lág-
markið hefði verið hækkað úr 82 m í 83
m í spjótkastinu. Mér finnst það
sanngjarat. Aftur á móti er ég ekki
sáttur við vlnnubrögð ólympíuncfndar
tslands og Frjálsiþróttasambands
tslands. Það hefði átt að vera búið að
tilkynna okkur um OL-Iágmörkin áður
en keppnistímabilið hófst hér í Banda-
ríkjunum, sagði Sigurður Elnarsson,
spjótkastarinn efnilegi, sem kastaðl
82,76 m á dögunum.
Sigurður sagði að það væri greinilegt
að stjórn Frjálsíþróttasambandsins
gerði upp á milli frjálsíþróttamanna.
Það mætti sjá í lágmörkum þeim sem
hafa verið sett. — Vinnubrögð stjómar
FRI eru vægast sagt furðuleg — það er
eins og það sé verið að útiloka vissa
frjálsíþróttamenn frá OL í Los Angel-
es, sagði Sigurður.
Þá sagði Sigurður að almenn
Dómaranámskeið
í alþjóðareglum
á vegum Fimleikasambands íslands
sækja námskeiðið. Þátttökutilkynn-
ingar þurfa að berast til Þóris
Kjartanssonar sem kennir á
námskeiðinu ásamt Kínverjanum Bao
Naging.
Dómaranámskeið í alþjóðareglum í
fimleikum karla verður haldið i
Ármannshúsi 30. og 31. mars og 1.
apríl. Þá verður tekið próf á æfinga-
móti. tþróttakennarar, kennarar og
aðrir áhugasamir eru hvattlr til að
óánægja væri hjá íslenskum frjáls-
íþróttamönnum í Bandaríkjunum, með
styrkveitingu ólympíunefndar Islands
sem er veitt í samráði við stjórn FRI.
— Styrkjum hefur verið úthlutað of
snemma. Margir hafa fengið styrki
áður en þeir hafa náð lágmörkum og
áður en lágmörk voru sett. Það er eins
og þeir menn sem standa að FRI hafi
verið að flýta sér að úthluta
styrkjunum en aftur á móti flýttu
stjómarmenn FRI sér ekki að setja
OL-mörkin. Þau eru greinilega sett nú
þegar hægt er að sjá hvernig staðan er.
Hefði ekki verið rétt að úthluta
styrkjunum rétt áöuren lokaundir-
búningur fyrir OL hæfist þannig að það
frjálsíþróttafólk sem keppti í Los
Angeles gæti undirbúið sig sem best
fyrir ólympíuleikana, án þess að þurfa
að hafa áhyggjur af peningaleysi?
sagðiSigurður.
-jþg/-SOS.
r — — — — — i
Frost varð
i Frostvarð ■
J sigurvegari |
IMorten Frost frá Danmörku varð I
sigurvegari í All England badmin-
I tonkeppninni sem fór fram í Lond-1
1 on um helgina. Hann sigraði Liem ■
I Swie Klng frá Indónesiu í úrslita-1
■ leik 9—15,15—10 og 15—10.
| Li Lingwei frá Kína varð slgur-1
Ivegari í elnliðaleik kvenna — vann I
löndu sina, Han Aiping, 11—5 og "
111—8 í úrsiitaielk.
-SOS. I
SPARTA INGÓLFSSTRÆTI 8, SÍM112024
SPARTA LAUGAVEGI 49, SÍMI 23610
TANGO
Besti malarskórinn frá Adidas,
nr. 37 - 44, kr. 1.170,-
PROFESSIONAL
Besti malarskórinn frá
Patrick, nr. 36-45, kr. 1.326,-
PATRICK SOCCER
nr. 35—46, sterkir á mölina, kr.
1.114,-
PATRICK KEEGAN 7,
nr. 28 - 43, kr. 680,-til 822,-
FRJÁLSÍÞRÓTTASKÓR,
nr. frá 36, margar tegundir.
ADIDAS jogginallround,
nr. 40 - 47, kr. 1.955,-
■ -
UNIVERSAL, nr. 36-48, kr.
1.219,-
TORINO,
nr. 30 - 35, kr. 714,-
TRX TRAINING,
nr. 36 - 47, kr. 1.343,-
TRX COMPETITION,
nr. 38-46, kr. 1.343,-
Fyrir islandsmótið i borð-
tennis:
gúmmí — lím, grindur, net,
kúlur, skór i nr. til 39.
30% afsláttur af öllum vetrarvörum og skíða-
fatnaði — út mars —
stretchbuxur,
skíðajakkar,
úlpur,
vatthúfur,
hanskar,
lúffur,
skautar,
skiðasett,
80 — 90 — 100 Top ten
— ogllOcm körfuboltaskór
nr. 36-49.
Verðkr. 1.734.
Við rýmum til
fyrir vorvörunum
Póstsendum —
opið laugardaga.
EUPOCARD
Póstsendum.
SPORTVÖRUVERSLUNIN
eeúmti}
Laugavegur 49, simi 23610. Ingólfsstrseti 8, sími 12024
íþróttir
Iþróttir