Dagblaðið Vísir - DV - 26.03.1984, Qupperneq 44
44
DV. MANUDÁGUR 26. MARS Íá84.
Dæmalaus Veröld Pæmalaus Veröld Pæmalaus Veröld
LEIÐARLJÓS
Allterbetra
íútlöndum
Það er dæmalaust hvað
getur gerst þegar Islendingar
leggja land undir fót og
bregða sér til útlanda.
Engu er líkara en fólk
umhverfist, veröi nær því|
óþekkjanlegt. Þá er ekki átt
við að fjarlægöin geri fjöllin
blá og svo framvegis, heldur
frekar hitt sem lesa má um
hér á síðunni til hliðar.
Fiskverkunarkona hjá
Bæjarútgerðinni þarf ekki
nema 6 tíma flug vestui um
haf til að breytast í stórglæsi-t
legan mótorhjólatöffara og
bruna á milli skotæfinga-
staða.
Oli blaðasali, sem vanur
er að standa í Austurstræti
hvemig sem viörar og selja
dagblöð, líkist einna helst
húfulausum, arabískum sjeik
þegar hann bregður sér í dag-
stund til Afriku.
Veitingamaður í Lúxem-
borg, sem sá sér hag í |
að starfa utan heimalands-
ins, gerir sér lítið fyrir,
bruggar islenskt brennivín og j
setur í h'kkistur með þeim
árangri að Evrópa stendur!
nær því á öndinni.
Það er sárgrætilegt til
þess aö vita að Islendingar
þurfi alltaf að fara til útlanda j
til að kreista það besta úr líf-
inu og tilverunni.
Hvers vegna geta fisk-
verkunarkonumar hjá J
Bæjarútgerðinni ekki mætt á |
mótorhjólum til vinnu og,
skotiö hausana af þorsknum
með skammbyssum?
Hvers vegna getur Oli
blaðasali ekki selt DV af
úlfaldabaki í Austurstræti?
Og hvers vegna má ekki j
drekka brennivín úr lík-
kistum á Islandi?
Svarið er einfalt: Kaupiö
er of lágt, veðrið of vont og
áfengislöggjöfin vitlaus.
Fjölmennum til sólar-
landa.
-EIR.
Dagfríöur Pétursdóttir vinnur hjá BÚR og er...
Besta skyttan í Bæjar-
ÚtS —:
Dagfríður
Pétursdóttir
i villta
vestrinu á
reiðskjóta
sinum og
með byssu i
belti. Svona
er ekki lifið i
Bæjarútgerð-
inni.
DV-mynd
Sveinn.
Hún Dagfríður Pétursdóttir er
örugglega besta skyttan sem vinnur í
fiski hjá Bæjarútgerðinni í Reykjavík.
Daglega handfjatlar hún þorska og
frændur hans af mikilli leikni en í
sumarfríum tekur hún til höndum á
öörum sviöum og ekki af minni leikni.
Meðfylgjandi mynd tók Sveinn Þor-
móðsson í Tuscon í Arisonafylki í
Bandaríkjunum af Dagfríði á stærstu
og dýrustu gerð af Harley Davidson
mótorhjóli með byssu í belti og reynd-
ar á hún byssuna sjálf. Dóttir Dag-
fríðar býr í Tuscon þar sem hún rekur
skartgripaverslun á flugvelli staöarins
og i landi frelsisins reka menn ekki
slíkar verslanir án þess að vera með
byssuleyfi. I sumarleyfum Dagfríðar
þeysa þær mæðgur um á mótorhjólum
og taka gjarnan stefnuna á skotæfinga-
svæði skammbyssuklúbbsins þar sem
þær reyna með sér í skotfimi. Að sögn
kunnugra er dóttirinn frábærlega
snögg upp á lagið en sú gamla úr
Bæjarútgerðinni gefur henni lítið eftir.
Dagfríður keypti skammbyssuna í
verslun í Tuscon en þar í bæ getur hver
sem komist yfir slíkan grip án
mikillar fyrirhafnar. Að vísu er
tveggja daga afgreiðslufrestur og það
kallar Kaninn „Cool Off Day”, þ.e.a.s.
viðskiptavinum er gefinn kostur á að
renna bræðin áður en glappaskot hvína
í lofti.
Skammbyssa Dagfríðar er að öllu
jöfnu í öruggri geymslu hjá dótturinni í
Arisona og hefur því aldrei í Bæjarút-
gerðina komið — sem betur fer. -EIR.
BRENNIVÍN í LÍKKISTUM
—Evrópa stenduralltaöþví á öndinni
Óli og
úlfaldinn
„Ég skrapp til Afríku eina
dagstund sl. sumar og leit þá við
í Marokkó,” segir Oli blaðasali,
aðspurður um Spánarferð sína í
fyrra. n
„Ég varö m.a. þeirrar á-
nægju aðnjótandi aö fá að ríöa
úlfalda og það verður að segjast
eins og er að það var ágætt.
Verst er að ég sat eitthvað svo
asnalega en svoleiðis á það
kannskiaðvera.”
Myndin er tekin er Oli stígur
af úlfaldabaki eftir ánægjulegan
reiðtúr í Afríku.
Valgeir Sigurðsson veitingamaður í
Lúxemborg hefur aö undanförnu stað-
ið yfir heitum potti í Móseldalnum og
blandað eigin útgáfu af íslensku
brennivíni. I frístundum dundar hann
svo við að smiða litlar, svartar lík-
kistur, sem brennivínsflöskumar eru
svo settar í, og allt er þetta merkt á
smekklegan hátt: Biack Death,
Pleasure of the North. Styrkleiki
mjaðarinser45%.
,,Ég er þegar búinn að blanda 2000
flöskur og vinn baki brotnu við kassa-
smiðina. Að vísu verða ekki allar
flöskumar í líkkistu, aðeins lúxusút-
gáfan, og ég hef hugsað mér að hafa
þetta í öllum stærðum: 1000 cl, 750 cl,
500 cl og svo miniútgáfuna í 100 cl,”
segir Valgeir veitingamaður alls
óbanginn enda hef ur hann þegar fengið
pantanir frá Þýskalandi, Bretlandi og
danskt fyrirtæki hefur óskaö eftir
einkarétti á dreifingu Svarta dauðans í
Skandinavíu.
Valgeri er ófús að ljóstra upp leynd-
armálinu um innihald „dauöans i lík-
kistunni” en segist hafa prófaö sig
áfram þar til hann náði endanlegu
bragði. Smakkdeild DV játar aöspurð
að Svarti dauðinn nái allt að því bragöi
íslenska brennivínsins — gott ef ekki
rúmlega það.
„Eg hef áhuga á aö staösetja þessa
Valgeir Sigurðsson með brennivinið í líkkistunni: — Hef nóg að gera við
blöndun og smiðar. DV-mynd GVA.
starfsemi hér á Islandi,” segir Valgeir
og strýkur likkistinum sínum, „og hef
sent viðskiptaráðherra svo og öllum
þingmönnunum bréf þar að lútandi.
Það er staðreynd að hvergi í veröldinni
er betra aö fást viö þessa iðju en á
hverasvæði þar sem hitinn er nógur og
vatnið gott.”
Aðspurður hvers vegna vínið sé selt
á likkistum, segir Valgeir það gert til
að þóknast templurum...
-EIR.
HEIMSLJÓS
Lennoní
Central Park
I síöustu viku var opnaður
minningarreitur um John Lenn-
on í Central Park í New York,
gegnt Dakotabyggingunni þar
sem hann bjó og var myrtur.
Reiturinn, sem er þríhyrndur,
hefur hlotið nafniö Strawberry
Fields og í gangstéttina sem um-
lykur hann er greypt oröið Imag-
ine, nafn á einu þekktasta lagi
Lennons.
„Hér gengum við okkar síð-
asta spöl rétt fyrir morðið,”
sagði Yoko Ono er reiturinn var
vígður að viðstöddu miklu fjöl-
menni sem lét hellirigningu og
kulda ekki aftra sér f rá þátttöku.
Nureyev
í fíkjublaði
Rússneski ballettdansarinn,
Rudolf Nureyev, sem er Ustrænn
stjómandi Parisarballettsins,
flaug til New York í fyrri viku til
að dansa í nýjasta balletti Mörtu
Grahams, Phaedra’s Dream, og
var einungis um þessa einu sýn-
ingu að ræða. Rudolf, sem nú er
45 ára, er í góðu ásigkomulagi
eins og öllum var ljóst sem sýn-
inguna sáu því að hann dansaöi í
gylltu fíkjublaði einu klæða. „Eg
hef aldrei dansað jafnfáklædd-
ur,” sagði hann eftir sýninguna
Yoko Ono, Woody Allen og Mia
Farrow voru meðal sýningar-
gesta.
Nena fölsk
Söngkonan Nena missti svo
sannarlega niður um sig buxurn-
ar í sjónvarpsútsendingu fyrir
stuttu fyrir augunum á 15
miUjónum áhorfenda. I miðju
lagí hvarf undirleikur og söngur,
allt var á bandi, og Nena stóð á
sviðinu og söng falskt áður en
hún hafði vit á því að þagna s jálf.
Eitrad
fyrirapa
Það ríkir nánast neyðar-
ástand í dýragaröinum í Mexico-
borg vegna þrengsla. Ljónin geta
sig vart hrært og apamir eru að
verða vitlausir. Sá vinsælasti af
þeim, sjimpansi einn sem enginn
gestur lætur fram hjá sér fara,
hefur verið fluttur á sjúkrahús í
þrigang vegna eitrunar. Gestir
lögðu það í vana sinn að skjóta
sígarettustubbum og öðm inn tU
hans og apagreyið þoldi ekki alf-
an reykinn. KaUcúnarnir, sem
era látnar ganga óheftir um
garðinn innan um gestina, hverfa
nú einn af öðrum. Gestirnir stela
þeim, smygla framhjá dyra-
vörðum í mestu þrengslunum og
nota þá síðan sem gæludýr heima
fyrir.
Blár
kafbátur
Mikil kafbátaleit hefur staðið
yfir úti fyrir Karlskrona í Svíþjóð
að undanförnu. Djúpsprengjum
kastað í gríð og erg á grunsam-
lega staði. I ljós kom að nokkrar
djúpsprengjur höfðu hafnaö á
þaki gamals Volvo bíls. Var sá
blár að lit og ekki vitað hvað
hann var að gera á hafsbotni.
Frelsis-
styttan
hverfur
Það verður ekki sjón að sjá
Frelsisstyttuna í hofninni í New
York næstu vikumar. Verið er að
reisa vinnupaUa upp eftir henni
aUri og er ætlun að gera við hana
fyrir 40 miUjónir dollara.