Dagblaðið Vísir - DV - 31.03.1984, Síða 3
DV. LAUGARDAGUR 31. MARS1984.
3
BORGARLYKLAR
Þrír eftirlifandi meðlimir hljóm-
sveitarinnar Bítlanna, sem leyst var
upp fyrir 14 órum, hafa þegiö boð frá
heimabænum um að koma á hátíð
sem haldin verður í sumar og taka
við borgarlyklum.
15 metra löng útgáfa af hinum
fræga gula kafbáti Bítlanna verður
viö festar í einni af hinum mörgu
yfirgefnu hafnarsvæðum borgar-
innar. Báturinn á aö vera aðal-
aðdráttaraflið á Bítlasýningu sem
halda á í sambandi við hátíöina.
Talsmaður borgarráðs sagði að
Paul McCartney og Ringo Starr
hefðu þegið boðið og að sendimaður
Georges Harrisons hefði gefið það til
kynna að hann myndi einnig mæta
við afhendinguna. George hefur
annars mikið dregið sig í hlé og
sagnir herma að hann sé ákaflega
hræddur við aö hljóta sömu örlög og
John Lennon.
I desember 1980 var John skotinn
fyrir framan heimili sitt í New York.
Ekkja hans, Yoko Ono, hefur þegið
að vera viðstödd afhendinguna á
mestu viöurkenningu sem borgin
veitir tilhanslátins.
Meðlimirnir í borgarráði, þar sem
Verkamannaflokkurinn er í meiri-
hluta, hafa í 14 ár beitt sér gegn því
að Bítlarnir fengju þessa viður-
kenningu. Að lokum varð þó
úthlutunin viðurkennd. Þessi viður-
kenning er veitt þeim sem gert hafa
eitthvað sérstakt f yrir borgina.
Paul McCartney, fíingo Starr og George Harrison ætia allir að taka á
móti borgarlyklum Liverpool á sumarhátið. Myndin er frá þeim tima
þegar Bitlaæðið var ialgleymingi.
Mjósta
vindubrú
I heimi
Þessi vindu-
brú er sú
mjósta í heimi
samkvæmt 1984
útgáfunni af
heimsmetabók
Guinness. Hún
er ekki nema 45
sentímetrar á
breidd. Brúin
er á Bermúda-
eyjum og er
akkúrat nógu
breið til þess að
segl þessa litla
báts komist í
gegn.
mm
S
Ekki miðað við eldspýtna-
stokk
Þetta mjóa stykki sem gín ógnandi
mót filtersígarettunni á myndinni er
kveikjarl og hann heldur af þynnri
gerðinni. Hann er 13,8 mOlímetrar á
þykkt og fer því auðvitað afar vel í
vasa.
Það þarf ekki að taka það fram að
kveikjarinn er eins og fis við hliðina á
eldspýtnastokk.
Kveikjarinn fæst á tslandi.
Passar, passar ekki