Dagblaðið Vísir - DV - 31.03.1984, Page 4
4
DV. LAUGARDAGUR 31. MARS1984.
Texti: Stefán Kristjánsson
„Hef gaman af tónlist
Þorbjörn Jensson, Val. ErHöasti
audstæöingur Viggós í bandknatt-
leiknum.
Viggó Sigurösson asamt konu sinni og börnum.
er laglaus með öllu”
„Eg er búinn að reka þennan leik-
tækjasal í rúmt ár og þetta gengur
bara vel. Maður nær alla vega aö lifa
af þessu,” sagði Viggó Sigurösson
handknattleiksmaöur en hann er
viðmælandi okkar aö þessu sinni og
við munum reyna aö sýna lesendum
hina hliðina á þessum kunna hand-
knattleiksmanni sem verið hefur í
fremstu röö hér á landi og ytra í ára-
raðir.
„Mér finnst sú gagnrýni sem leik-
tækjasalir hafa fengið dálitiö hörð.
Sú kynslóð sem gagnrýnir þetta mest
hefur um árabil stoliö sparifé
unglinganna og mér finnst aö þetta
sama fólk eigi að minnast þess.
Stærsta vandamálið í dag er
Hlemmur. Það hefur mikiö veriö
rætt um fíkniefnasölu á þessum
stööum en aldrei verið reynt að
komast fyrir þetta hvimleiða vanda-
mál, aldrei reynt að komast að
rótum vandans. Aðaláhersluna ætti
að mínu viti að leggja á þá hliö
málsins sem snýr að innflutningi
þessara efna. Þau verða ekki til á
leiktækjasölunum. Þessum óþverra
er smyglað til landsins í stórum stíl
og þaö þarf að stoppa. ”
Lærður íþróttakennari
Hvaða menntun hefur þú, Viggó?
„Eg er lærður íþróttakennari en
starfa ekki sem slíkur. Astæðan er
einfaldlega sú að ég vil ráða mér
sjálfur sem stendur. Vera minn eigin
húsbóndi. Eg tók einnig próf frá
Verslunaskóla Islands og það hefur
komið sér vel. Varðandi íþrótta-
kennaraskólann þá get ég sagt þér aö
þar voru með mér margir skemmti-
legir félagar. Eg get nefnt Leif
Harðarson, Hauk Ottesen og Janus
Guðlaugsson. Þetta voru allt saman
miklir skapmenn og drógu ekkert úr
því. Það var alltaf hart barist og þá
sérstaklega í körfunni. Ekkert gefið
eftir og ekki hætt fyrr en flautan gall.
Var í framboði
Helstu áhugamálin, Viggó?
,,Eg hef alla tíö haft mikinn áhuga
—Viggó Sigurðsson handknattleiks -
maður sýnir á sér hina hliðina
Viggó Sigurðsson i leik með Vikingi.
á tónlist. Eg hef aldrei iært á
hljóöfæri sjálfur en hef hlustað þeim
mun meira. Eg er laglaus með öllu.
Eg hef líka lengi haft áhuga á
stjómmálum og hef verið í framboöi
fyrir Alþýðuflokkinn í kosningum.
Eg gæti þó aldrei hugsað mér að
hella mér út í stjórnmálabaráttuna.
Eg hef ekki áhuga á því. ”
Hvað finnst þér um stöðu Alþýðu-
flokksins í dag?
„Eg er að sjálfsögðu mjög
óánægður með hana. Flokkurinn ætti
að vera mun stærri en hann er í dag.
Það gefur augaleið að þegar fylgi
flokksins minnkar með hverjum
kosningum er eitthvað að en ég vil
ekki tjá mig nánar um þaö.”
Eitthvað sérstakt sem þú munt
einbeita þér að eftir að íþrótta-
mannsferli þinum lýkur?
„Nei, ekki get ég sagt það. Eg á að
visu mín áhugamál, svo sem golfið.
Eg hef lítið spilaö þaö en ætla að
reyna að bæta úr því þegar hand-
boltaferlinum lýkur. Eg hlýt að geta
náð einhverjum árangri í því fyrst
Eysteinn vinur minn hjá Samvinnu-
ferðum er þokkalegur golfari.”
Mesta trú á FH
Að lokum, Viggó. Vilt þú spá fyrir
um úrslit i islandsmótinu í handknatt-
leik?
„Eg er alveg viss um aö ef FH-
ingar byrja vel í úrslitakeppninni
verður erfitt fyrir hin liðin að stööva
þá. En ef þeir tapa fljótlega leik eöa
leikjum þá verðum við í Víkingi
Islandsmeistarar. Eg er alveg eins á
því að FH-ingar fari að tapa. Þeir
mega ekki við miklu. Að lokum
langar mig til aö koma þeirri skoðun
minni á framfæri að það að fækka
liöunum í 1. deild í sex væri skref
aftur á bak. Sérstaklega hvað varðar
félögin úti á landi. Handboltinn hefur
verið mjög slakur í vetur, hverju
sem um er að kenna, og það myndi
gera hann enn verri ef liðunum yrði
fækkað,” sagði ViggóSigurösson. -SK.
„Sætur,
glaður
kátur
strákur”
segir Eva Haralds-
dóttir, eiginkona
Viggós Sigurðssonar
„Eg kynntist Viggó í Sjallanum á
Akureyri og það er nú svolitið
spaugilegt að segja frá því,” sagði
Eva Haraldsdóttir, eiginkona
Viggós Sigurðssonar, er við
ræddum við hana.
„Þetta var í fyrsta skipti sem við
fórum í Sjallann og vorum sex
saman, vinkonumar. Við sátum
allar í röö. Eg sat á öörum end-
anum en Viggó byrjaði samt að
bjóöa upp á hinum endanum. Allar
vinkonur mínar neituöu boði hans
en þegar kom að mér kenndi ég svo
mikið í brjósti um strákinn að ég
sagöi já og síðan hef ég dansað við
hann.”
Hvað var það sem svo síðar vakti
áhuga þinn á Viggó?
„Viggó var og hefur alltaf veriö
mjög glaður og kátur. Mér fannst
hann strax mjög skemmtilegur og
sæturstrákur.”
Nú hafið þið lengi dvalið á Spáni
og í Þýskalandi?
„Já, þaö voru alveg ógleymanleg
ár. Viö vorum mjög ung og óreynd
þegar við héldum utan og þetta var
erfitt til aö byrja með en þegar við
f órum að venjast þessu fór þetta að
verða mjög skemmtilegt og fróö-
legt.”
Hvemig er Viggó á heimilinu?
„Eg myndi segja að hann væri
mjög góður. Hann hefur gaman af
því að láta stjana svolítið viö sig, fá
kaffiö inn í stofu og þess háttar. En
hann á það líka til að hjálpa mér
við uppvaskið, taka til og hjálpa
mér við heimilisstörfin almennt.
Hann leynir á sér,” sagði Eva
Haraldsdóttir. -SK.
Móðir Teresa, sú persóna sem Viggó
langar mest til að hitta.
FULLT NAFN: Viggó Valdimar
Sigurðsson.
HÆÐ OG ÞYNGD: 191,5 cm og 86,2
kg.
BIFREIÐ: Golf árg. ’75.
GÆLUNAFN: Gói.
VERSTU MEIÐSLI: Olnbogabrot í
4. flokki.
UPPAHALDSFELAG, ISLENSKT:
Víkingur.
UPPÁHALDStÞROTTAMAÐUR,
ISLENSKUR: Atli Eðvaldsson.
UPPAHALDSÍÞROTTAMAÐUR,
ERLENDUR: JohnMcEnroe.
MESTA GLEÐISTUND I IÞRÖTT-
UM: Islandsmeistari ’75 og Spánar-
melstari ’80.
MESTU VONBRIGÐI: Tap fyrir Val
í úrslitaleik ’79.
ÖNNUR UPPAHALDSIÞROTT:
Knattspyrna.
UPPÁHALDSMATUR: Kjötspúpa a
la Eva Haraldsdóttir.
UPPÁHALDSDRYKKUR: Kók.
SKEMMTILEGASTI SJONVARPS-
ÞATTUR: Kastljós.
SKEMMTILEGASTI LEIKARI,
ISLENSKUR: Laddi.
SKEMMTILEGASTILEIKARI, ER-
LENDUR: Anthony Quinn.
SKEMMTILEGASTA BLAÐ: Al-
þýðublaðið.
UPPAHALDSHLJOMSVEIT:
LeonardCohen.
SKEMMTILEGASTA KEPPNIS-
FERÐ: Með Barcelona um baska-
héraðin á Norður-Spáni.
BESTIVINUR: Konan.
ERFEDASTI ANDSTÆÐINGUR:
Þorbjörn Jensson, Val.
HELSTA METNAÐARMAL I
LlFINU: Að sjá fjölskyldunni far-
borða.
HVAÐA PERSONU LANGAR ÞIG
MEST TIL AÐ HITTA: Móður
Teresu.
RÁÐ TIL UNGA FÖLKSINS: Láta
fíkniefni eíga sig.
STÆRSTIKOSTUR ÞINN: Skapið.
STÆRSTI VEDKLEIKI: Stundum of
fljótfær.
LEIKMAÐUR FRAMTiÐARINNAR
1HANDKNATTLEIK: KristjánAra-
son, FH.
FALLEGASTA MARK: UrsUta-
markið gegn IR ’75, tveim sek. fyrir
leikslok.
UPPAHALDSLDD1ENSKU KNATT-
SPYRNUNNI: Manchester United.
BESTIÞJALFARISEM ÞU HEFUR
HAFT: Bogdan.
YRÐIR ÞU HELSTI RAÐAMAÐUR
ÞJOÐARINNAR A MORGUN,
HVERT YRÐI ÞITT FYRSTA
VERK? Stofna íþróttaráðuneyti.
ANNAÐ VERK? Veita ákveðinni
upphæð til íþrótta og skipa sjálfan
mig íþróttaráðherra ævilangt.