Dagblaðið Vísir - DV - 31.03.1984, Qupperneq 5

Dagblaðið Vísir - DV - 31.03.1984, Qupperneq 5
DV. LAUGARDAGUR 31. MARS1984. 5 Gullni haninn tf @ ® @ Bezt er að hafa sem flestar kokkahúfur og fæstarkrónur Alúðlegur gestgjafi Birgir Jónsson veitingamaður tekur alúðlega á móti gestum fyrir innan lítið anddyriö, er hirðmann- legur viö konur og leyfir börnum að sjá, hvernig hann sprautar gosi í glösin inni á bar. Að fara í Gullna hanann minnir helzt á kunningja- heimsókn, enda virðist Birgir þekkja furðu marga gesti. Höfuðtromp staðarins felst einmitt í, að eigand- inn er á ferðinni í salnum til að sjá um góða þjónustu. Fallegur matsalur Haninn er fallega hannaður veit- ingasalur. I lofti eru viðarverk og speglar, sem víkka rýmið. 1 vegg jum skiptast á innhvelfdir bogar og hálf- súlur úr tré, skreyttar þurrkuðum blómum. Neðst eru veggirnir þiljaðir, en ljósir að ofanverðu. Á götuhliðinni er stór bogagluggi. Innst er vínrekkur við skenk, ekki geymslustaður, sem er til fyrir- myndar. Á gólfi er parket í miðju og rautt teppitilhliðanna. Borðin standa ánægjulega dreift, með góðu rými milli stólanna, sem alls eru um 40. Þeir eru renndir og bera ullaráklæði. Meiri þrengsii eru á pínu-barnum með roðalitum þiljum og djúpum hornsófa. Á borðum eru ljósköflóttir dúkar og hvítur borð- búnaður. Innréttingar og hús- búnaöur eru í heild alger þverstæða hins dimma Halta hana, sem hér var áöur. Tveir í einum Á kvöldin eru klæðisþurrkur á boröum, en úr pappír í hádeginu. Sá munur endurspeglar, að Gullni han- inn er í raun tveir veitingastaðir. I hádeginu eru á boöstólum ódýrir réttir dagsins, sem mundu flokkast undir tvo krónupeninga í skilgrein- ingu þessa greinaflokks, en á kvöldin er rekinn hér dýr f jögurra krónupen- inga veizlusalur. Vatn er óðar komiö í glösin, meðan viö erum að stilla eyrun af niðursoðinni kvöldverðartónlistinni. Hinn fasti matseðill kvöldsins hefur að geyma sjö forrétti, tvær súpur, sex smárétti, fjóra fiskrétti, sex kjötrétti og þrjá eftirrétti. Á þeim tíma dags- ins eru engir réttir dagsins í boði. I hádeginu er hins vegar súpa, salatvagn, eftirréttur og átta réttir dagsins, sem breytast á tveggja daga fresti. Frammi er matreiðslumaöurinn Brynjar Eymundsson. Hann er einn margra góðra kokka, sem hafa að nokkru losað sig undan áhrifavaldi Hótel- og veitingaskólans, sem ný- lega hélt sýningu á óhugnanlega ólystugum matarskrautverkum, sem þóttu fín í Danmörku fyrir rúm- lega hálfri öld, en er nú hlegið að í hinum siðmenntaöa heimi. En eins og flestir hinir góðu kokk- arnir kemst hann aðeins hálfa leið frá forneskjunni og heldur áfram aö hlaða á diskana öllu því, sem hann finnur í eldhúsinu, svo sem kartöfl- um, rósakáli, gulrótum, baunum og maís, flestu af því úr dósum. Þetta er einkum áberandi í hádeginu. A kvöldin fær dósahnífurinn meira aö hvíla sig og hliöaratriðin skyggja síður á fiskinn eða kjötið, sem gest- irnir báðu um. Það er slíkum kvöld- mat, sem verður iýst í þessari grein. Karrirjómuð fiskréttasúpa reyndist ágætur matur. Með henni var boriö fram tvenns konar brauð, hveitibrauð og volgt trefjabrauð. Graflaxinn var góður eins og yfir- leitt í veitingahúsum landsins. Sinnepssósan, sem fylgdi, var óvenju mild, nánast dauf. Einnig fylgdi spergill og sérstaklega góðar, sýrðar gúrkur með dálítið óvæntu bragði. Slíkar gúrkur fýlgdu flestum réttum Hanans þetta kvöld. Konunglegir humarhalar Ristaðir humarhalar með stein- seljusmjöri vom konunglegur matur. Halarnir voru hinir myndarlegustu og þurftu aðeins lítinn kreisting úr sítrónu. Smjörið var óþarft, en sem betur fer borið fram sér og ekki sull- að á matinn eins og sums staðar er gert. Hörpudiskur, borinn fram í skel, með rækjum, papriku og hrísgrjón- um, var ekki nógu góður, því að hann var dálítið seigur. Hörpudiskur er gott dæmi um mat, sem þarf að þiðna varlega og fá afar milda eldun. Ekki veit ég, hvort örbylgjuofn er í eldhús- inu, en mér fannst eins og fiskurinn hefði bæði verið þíddur og eldaður í slíku tæki. Almennt gildir um íslenzka veitingamennsku, að hætta er á of- notkun og misnotkun hinna þægilegu örbylgjuofna, alveg eins og lengi hefur veriö hætta á ofnotkun hinna þægilegu, rafknúnu dósahnífa. Með aöalréttunum var borið fram skemmtilegt og óvenjulegt hrásalat, sem meðal annars bjó yfir olífu, hreðkum og baunaspírum, auk hins hefðbundna ísbergs-káls og gúrku. Leginn karfi, með miklu af rækjum og alls óþörfum gulrótum og rósakáli úr dós, var fullmikið eldaður og farinn að þorna. Hann var samt með þægilegu bragði. Sinneps- sósan reyndist vera þykk hveitisósa með sveppum. Rjómasoöin smálúða með hörpuskelfiski í hvítvínssósu var bor- in fram með hrísgrjónum, svo og sama rósakálinu og gulrótunum og aðrir aðalréttir Hanans. Lúðan var ágætis matur, en hörpudiskurinn var því marki brenndur, sem lýst hefur verið hér að framan. Innbakaðir sjávarréttir í smjör- deigsbotni komu á óvart og voru góðir á bragðið. Kryddleginn lambavöðvi með steiktum ananas og kryddsósu var miölungi steiktur og meyr. Kjötið var gott. Sósan var sem betur fer ekki úr hveiti. Tumbauti aö hætti hússins, meö ristuðum sveppum og bernaise sósu, var ekki hrásteiktur eins og beðið haföi verið um, heldur miðlungi steiktur. Að öðru leyti var hann hinn bezti matur. Hversdagsiegur salatvagn Salatvagninn í hádeginu var fremur hversdagslegur. Þar mátti meðal annars finna sveppi, tómata, hreðkur, sýrðar smágúrkur, blandað hrásalat hvítkáls og gulróta, olífur, kokkteilsósu og salatolíu. Þar var einnig eins konar búðingur, sem ætlaður var til eftirréttar. Bæði salatið og búðingurinn fylgdu meö í veröi aöalrétta. Vínlistinn í Gullna hananum var lítt spennandi, en stendur til bóta. Helzt mátti nýta þar rauðvínin Chi- anti Antinori og Chateauneuf du Pape og hvítvínið Gewiirztraminer. A kvöldin er miðjuverð á forrétt- um 215 krónur, súpum 100 krónur, smáréttum 195 krónur, fiskréttum 332 kr., kjötréttum 577 kr., eftir- réttum 115 krónur, vínglasi 60 krónur og kaffi 40 krónur. Þríréttuð veizla með hálfri flösku af víni á mann og kaffi ætti aö meðallagi að kosta 867 krónur á mann. I hádeginu kostar súpu dagsins 50 krónur. Þá er miðjuverð aðalrétta með salatvagni og eftirrétti dagsins 205 krónur. Að súpunni viðbættri yrði verðiö 255 krónur, sem er auðvitað ekki hátt. Athugið, að krónupening- amir f jórir hér að ofan tákna kvöld- verðið í Hananum. Hádegisverðið er aftur á móti aðeins upp á tvo krónu- peninga, en þá yrðu kokkahúfurnar líka hálfri færri eða þrjár alls. Að lokum má útskýra, aö kokka- húfumar, sem tróna með greina- flokki þessum, eru aðeins að hálfu leyti veittar fyrir matargerð. Hinn helmingurinn er fyrir ytra umhverfi, það er innréttingar (20%), þjónustu (20%) og vínlista (10%). Sumir staðir lyfta sér á matnum og aðrir á umhverfinu. Gullni haninn er búinn fínum inn- réttingum og góðri þjónustu, svo og sómasamlegum mat, sem auðvelt ætti aö vera að bæta til samræmis við ánægjulegan umbúnað staðarins. Jónas Kristjánsson. Arkitektar - Verkfræðingar - Byggingameistarar - Húseigendur A ÍSLAIMDI 1. Cementa gólfílagningarefni sem stenst allar þær gæðakröfur er til þarf i íbúðarhúsum og öðrum mannvirkjum. 2. Með þessu efni þurfa múrarar ekki að bogra við að strauja gólf eða að skríða á fjórum fótum við að pússa þau. 3. Fljótandi efni sem leggur sig sjálft og verður algjörlega lárétt (spegilslétt). 4. Mun ódýrara en gamla aðferðin. 5. Þornar á 24 tímum. 6. Fyrir ný sem gömul gólf (getum rétt af gólf allt út í 1 mm). 7. Hagstæðir greiðsluskilmálar á efni og vinnu. Dæmi: Þú greiðir 30% út og eftirstöðvar á allt að 6 mánuðum. Allar upplýsingar gefur Gunnar F.E. Magnússon múrari í síma 20623 kl. 12-13 og 18-22. [EmEiiTH im ab Svíþjóð er eitt elsta fyrirtækið í Evrópu með þessa nýjung.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.