Dagblaðið Vísir - DV - 31.03.1984, Síða 8
DV. LAUGARDAGUR 31. MARS1984.
Égerá
hausnum og
vfflta
i'estrid á
Skagaströnd
íhættu
„Eg held aö það heföi ekki átt aö
skipta neinu máli fyrst eftirspum var
eftir plötunni. Hún seldist upp á
sumum stööum strax, ég hef sannanir
fyrir því, en síöan kom hún aldrei
meira þangaö. Og ég held aö þaö séu.
ansi margir staðir. Meira að ségja
núna fyrir jólin ermérsagtaðhúnhafi
víöast hvar um landið ekki veriö til.”
Hvaö heldurðu aö þú hafir tapað
miklum peningum á þessu ?
,,Eg hef ekki reiknaö þetta, ég þori
ekki að reikna þaö og vil ekki reikna
þaö. En ef ég tek inn í þetta dæmi,
skemmtanabransann minn í sumar,
sem er náttúrlega alveg auka viö
þetta, þá er ég sloppinn, sirkabát. ”
Haföú-ðumikið upp úr því?
„Eg haföi eitthvað upp úr því.”
Og þú segist vera á hausnum, er þaö
svo slæmt?
,,Já, ég er á hausnum. Þaö eru
ábyggilega margir sem hafa oröiö
varir viö þaö, aö minnsta kosti þeir
sem eiga eitthvað hjá mér. Þeir vita aö
ég hef ekkert til aö borga meö og
margir þeirra eru búnir aö sýna mér
ofsalega mikla biðlund. Eg er til dæmis
meö skuldabagga á mér síöan ég var
meö verslunina sem ég er ekki laus út
úrenn.”
Hvaða verslun?
„Verslun Hallbjöms Hjartarsonar
sem var bæði matvöruverslun og
gjafavöru- og búsáhaldaverslun. Eg
rak hana í sjö—átta ár en hætti meö
hana fyrir einu og hálfu ári. Þar eru
lán sem ég er aö borga af ennþá, þau
em búin aö vef ja upp á sig. Eg hef ekki
staðið almennilega í skilum meö þau
því ég fæ svo aftur f jármagn til aö út-
búa þennan Kántrýbæ á sínum tíma.
Þaö var byrjað á honum sumariö
1980.”
Og gengur reksturinn á honum illa ?
„Kántrýbær er ekkert rekinn nema
frá maí og fram í september. Sumarið
var stutt í fyrra, bara einn og hálfur
mánuöur sem var góöur en svo
keyri ég alian tímann sem eftir er af
árínu á núlli. Allt þetta fjármagna ég
meö lántökum, ég á engan pening og
hef aldrei eignast pening ööruvísi. Ef
þaö er þá hægt aö kalla aö ég eigi hann,
en sem sagt ég f æ hann aö láni og eigna
mér hann þannig. En þetta gekk illa í
sumar og svo bætist viö aö ég tók mér
lán í aðinnrétta Kántrý II í sumar.”
En þrátt fyrir alit hefuröu hug á aö
taka upp plötuna Kántrý III.
„Já, en mig vantar fjármagn í þaö.
Eg er tilbúinn meö lögin og allt á
plötuna. Þaö vantar bara peninga til
aö byrja. Eg reikna meö aö þurfa
svona 200 þúsundkall í startið, maður
þarf peninga í skurðinn, hljóöfæra-
leikarana og teipið. Hitt er hægt aö fá á
víxlum.”
Er mikil pressa á þig að gefa þessa
plötu út?
„Þaö vantar nú ekki aö fólk hafi
samband bæöi á nóttu og degi.”
Nóttunni líka?
,,Já, þaö er alls konar fólk sem
hringir og því er velkomið aö gera þaö.
Þá er þaö í gleðskap eöa eitthvaö og
spilar plötuna og eitthvað svona og er
þá bara aö lýsa ánægju sinni yfir
plötunni og svona. Það er aö spyrja
hvort ég sé ekki að koma með aðra og
svona eins og gengur og gerist. Þetta
er yfirleitt um hverja einustu helgi en
aöallega á föstudagskvöldum.”
Hallbjörn og Amy Eymundsdóttir, eiginkona hans. Hun er Færeyingur að ætt. ,, Við kynntumst / fíeykja-
vik fyrir 27 árum," sagði Amy. „Ári siðar flutti ég með Hallbirni til Skagastrandar. Ég fer á tveggja ára
fresti til Færeyja en Hallbjörn hefur hins vegar aldrei komið þangað." Aðspurð sagðist hún ekki mikil
tónlistarmanneskja, „en ég hef þó gaman af kántrímúsik '
(D V-myndir G VAI.
Vantar drift í
aðdáendaklúbbinn
Nú átt þú orðið aðdáendaklúbb, var
þaö eitthvaö aö þínu undirlagi?
„Nei, ég átti engan þátt í stofnun
hans. Eg var aö skemmta uppi á Skála-
felli þegar víkur sér aö mér maöur sem
heitir Baldur Bóbó Fredriksen. Hann
heilsar mér, þakkar fyrir góöa
skemmtun og kynnir sig, segist vera úr
KR og þar séu margir aðdáendur sem
séu aö spekúlera í að stofna aödáenda-
klúbb í kringum mig. Nú, ég jánkaöi
því og sagði bara jæja og þetta
orölengdist eitthvað og siðan þakkaöi
ég honum bara fyrir. Hann spurði mig
hvort ég yröi í bænum eitthvað seinna
og ég sagöist gera ráð fyrir þ ' T,a’"'
sagðist mundu þá hafa sanr
mig. Svo gerist lítiö annaö er L
hitti blaöamann sem segist j J
- Morgunblaöinu, hann Sigurður
Sverrisson. Þá fór bara allt af stað hjá
KR-ingum og þetta var stofnað í hvelli.
Mér finnst þetta allt ágætt og hef
gamanaf því.”
Hvaða samband hefur þú viö
klúbbinn?
aö ætti að fara stofna aðdáendaiu.
Jú, ég segist hafa heyrt þaö, og síöan
kemur hann meö þetta þama í
„Ja, þaö er einmitt þaö. Mér finnst
bara ekki nóg aö þaö sé búið aö stofna
þennan aödáendaklúbb og svo sé þaö
ákaflega litið meira'. Maður hefði nú
haldiö að þegar væri búiö aö stofna
svona klúbb þá væri þaö manni til
styrktar. Það má jú segja aö þeir hafi
gert þaö meö því að auglýsa mig en
mér finnst alveg óþarfi aö láta svona
lagað detta niður strax. Eg held aö
málin hafi strandaö, til dæmis voru
búin til mjög skemmtileg skírteini
handa klúbbfélögum en ég held þaö
hafi bara sama og ekkert af þeim
fengiö skírteinin, bara innstu hóparnir
í KR. Þaö er þannig eins og aö vanti
einhverja drift í þetta: Annars eru KR-
ingar ekki þeir einu sem hafa stofnað
aödáendaklúbb í kringum mig.
Nemendurnir í Menntaskólanum á
Egilsstöðum hafa gert þaö, svo er
klúbbur í Samvinnuskólanum í Bif röst,
og ég var aö skemmta í Mennta-
skólanum í Reykjavík um daginn. Þá
viku sér þar nokkrir unglingar aö mér
og sögðust vera aö undirbúa stofnun
klúbbs þar. Þaö virðast því vera svona
smáklúbbar hingaö og þangaö.”
Hvaö geturðu ímyndaö þér aö aödá-
endahópurinn sé stór, ef eru svona
klúbbar úti um allt?
„Eg hef nú ekki mikið pælt í þessu,
mér finnst ágætt að heyra þetta svona
og svona sko en ég veit ekki hvort
fylgir þessu voöalega mikið. Þaö virö-
ist þó benda til þess að maður eigi
stóran aödáendahóp og mér virðist að
hann sé á ansi mismunandi aldri. Eg
veit frá 6 ára aldri og upp úr. Til dæmis
hafa foreldrar hringt í mig og beðið um
mynd handa börnum sínum og einn
Kántrý II, ferðamannaverslun Hallbjarnar á Skagaströnd. Þaðan er innangengt í sjálfan Kántrýbæ,
veitingastaðinn.
faðir í Keflavík hringdi og sagöi að 6
ára sonur sinn ætti afmæli í janúar og
hann væri búinn aö panta afmælis-
gjöfina sem ætti aö vera Kántrý II.
Strákinn langaöi svo óskaplega til að
hringja og tala viö mig en hann þyröi
það ekki. Aramótaskaupiö var þá
nýbúiö í sjónvarpinu og ég held aö þau
hafi átt það á myndsegulbandi. Þaö
var veriö að leika mig þarna og strák-
urinn var voöa hrifinn af mér. Eg sagði
að þaö væri allt í lagi, ég skyldi tala viö
hann en þá verður guttinn litli svona
hræddur og vildi ekki koma í símann.
Viö tölumst svolítiö við svona, pabbi
hans og ég, en á endanum kom
strákurinn og viö röbbuöum svona
pínulítiö saman. Þaö eru mörg svona
sniöug dæmi.sko.”
Reyndi að hneyksla fólk
Þú nefndir aöeins atriöiö í áramóta-
skaupmu þar sem Ami Tryggvason er
að herma eftir þér. Hvaö fannst þér
sjálfum um þaö?
„Bara ágætt. Mér finnst ekkert
athugavert við aö fólk sé aö leika
mig.”
Hvaö finnst þér annars yfirleitt um
þaö þegar veriö er aö tala um þig?
„Það skiptir mig engu máli. Það
hefur aöeins eitt atriöi sært mig
pínulítið en annars er ég voðalega
kaldur fyrir öllu svona löguðu. Þetta
eina atriöi eru skrif Bergþóru Arna-
dóttur á sínum tíma þegar ég var aö
skemmta á Oðali. Það var hreinn
uppspuni og lygi, ekki einn einasti
fótur fyrir því og var boriö til baka í
blöðum aftur seinna. A þeim tíma
særöi þetta mig svo mikið aö ég var að
hugsa um að kasta öllu frá mér. Þaö
munaði ekki nema hársbreidd aö ég
gerði þaö en svo var stappað í mig
stálinu að gera þetta ekki. Þaö hringdi
í mig fólk sem þekkti persónuna og
þegar búiö var aö lýsa því fyrir mér
hvers konar persóna Bergþóra Ama-
dóttir væri þá fór ég aö jafna mig
sjálfuráeftir.”
Hvaö var þaö í skrifum Bergþóru
sem særði þig svona?
„Eg man þetta nú ekki almennilega
en þó meininguna í því. Hún sagöi bara
hreint og beint aö ég hefði hagað mér ó-
sæmilega úti á gólfinu á Óðali. Þaö var
ekki hægt að skilja það öðruvísi. Þarna
var einhver sem lýsti þessu aftur í
blaði og bar á móti þessu. Hitt er aftur
annaö mál að þegar ég var aö kynna
Kántrý I var ég óþekktur. Eg veit þaö
s jálf ur að besta auglýsingin sem ég gat
fengið er aö hneyksla fólk og ég lagði
mig fram um þaö þegar ég var aö
kynna Kántrý I aö hneyksla fólk. Eg
gerði það viljandi, alveg viljandi. Eg
vissi aö ef ég gerði eitthvað sem
hneykslaöi fólk þá myndi þaö lifa á
vörum þess mann fram af manni og
þaö myndi veröa smjattað á því. En ef
ég gerði eitthvað gott, þá myndi veröa
haldið kjafti yfir því, þess vegna
myndi ég gleymast. Ef ég hneykslaði
myndi þaö ganga mann frá manni frá
manni og fólk segja: Manstu hvaö
hann gerði, hann var með svona . . .
ég get bara aldrei gleymt því, ég man
þaö enn í dag. Þá mundi ég lifa og lifa
og lifa á vörum þessara manna og það
myndi veröa til þess aö þegar ég kæmi
meö Kántrý II þá myndi fólk muna
eftir mér. Þá skyldi þaö líka fá að sjá
annað viömótámér.”
Finnst þér þetta hafa tekist?
„Já, þaö tókst hjámér. Mér tókst að
vekja þá eftirtekt á mér sem ég ætlaði
að gera með því aö hneyksla fólk. ”
Þú talar um aö hneyksla, hvernig
hneykslun var það sem þú beittir?
„Ja, ég var með ögrandi hreyfing-
ar, ég neita þvi ekki. Eg kom ofan af
loftinu með beltið spennt frá. Eg lét
þaö líta svo út aö ég væri aö koma frá
pútnahúsi uppi, kom niður stigann og
söng á gólfinu. Eg strauk niður lærin á
mér og annað slíkt af því ég vissi að
þetta myndi hrífa. Bergþóra var þarna
og snýr þessu svona við.”
Ertu frekar aö höfða til kven-
þjóöarinnar en karla með svona
hreyfingum?
„Eg geri þaö alltaf þegar ég er aö
skemmta. Þá höföa ég meira til kven-
þjóðarinnar. Aftur á móti finnst mér
að aödáendur mínir séu alveg jafnt
karlmenn sem kvenmenn. En ég legg
mig miklu meira eftir aö þóknast kven-
fólkinu þegar ég er aö skemmta og þaö
......................
' ... .. ' ■
Texti: Jón Bffldvin Halldórsson