Dagblaðið Vísir - DV - 31.03.1984, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 31.03.1984, Blaðsíða 13
DV. LAUGARDAGUR 31. MARS1984. dómar víkja og málamiðlun fær stærri sess.” — Þú sagðir 1981 að horfur væru slæmar en ekki á sama hátt og þú hefðir áður haldið. „Já. Hér áöur fyrr stafaði ótti minn af hinum ósýnilegu stjómvöldum. Það sem ég óttast nú er fjölmiðlun, sjónvarp og plast sem ég held að geti ýtt okkur lengra í átt til alræðis- stjórnarfars heldur en bandariska leyniþjónustan eða alríkislögreglan.” — Hvaða öfl eru að baki þessari þróun? „Jæja, nú erum viö komnir yfir í draumaheiminn. Stundum held ég að það séu ill öfl laus úr læöingi í alheim- inum sem eru félagsleg hliðstæða við krabbamein í likama og þau eru úr plasti. Þetta plast smýgur í gegnum allt — það er í sérhverri smugu í fram- leiðsluferlinu. Aðu en langt um líður verður allt orðið úr plasti. Vegir verða „plastikaðir”. Annars vegar dýrkum við alheiminn — við gerum það öll meðvitaö eða ómeðvitað. Hins vegar býr þessi andúð á alheiminum í okkur. Alheimurinn er miklu meiri en við sjálf og þaö þolum við ekki. Egó okkar, eða 20. aldar, endurspeglun þess, blossar upp í okkur. Við veröum að gera eithvað við þennan heim — við verðiun eiginlega að sýna honum í tvo heimana. Plastið er ein góö leið — því það er ónáttúrlegt efni sem jörðin getur ekki melt.” — Robert Frost sagði að það skorti hógværð hjá fólki eins og þér sem væri alltaf að spá ragnarökum? „Eg hef aldrei haldiö því fram að Itobert Frost ætti að falla við mig og mínarskoðanir.” — En heldurðu að allt stefni í óefni hér í þessum heimi? „Eg held að ég sé nú ekki einn um að halda það. Otölulegur fjöldi fólks hefur þungar áhyggjur. Heimurinn stendur á miklum tímamótum núna. Eg held að 9. áratugurinn verði ótrúlegur þar sem súrrealiskari og stórkostlegri breytingar eigi eftir að eiga sér stað en á 7. áratugnum. — Síðasta spurning — sumir hafa gagnrýnt þig fyrir að þú viljir þröngva lífsviðhorfum þínum, trú, starfi og Lífs- stíl upp á aðra. Hverju svararðu því? „Það er alger misskilningur. Eg hef svo oft rétt fyrir mér og svo rangt fyrir mér sama daginn að mig dreymir ekki einu sinni um aö fá aðra til aö hugsa éins og ég. Hins vegar teldi ég æskilegt að fólk næði meiri árangri i því sem það er á annaö borð að pæla í. Það er mjög mikilvægt í sambandi við starf manns. Verk góðra höfunda, ef bók er nógu góð getur enginn sagt fyrir um hvemig henni verður tekið. Enginn ætti aö geta sagt fyrir um slikt. Ef eitthvað er nógu gott þýðir það að það er ekki uppáþrengjandi. Ef einhverjar af mínum bestu hug- myndum ná því að hafa áhrif á einhverja persónu sem er betur gefin en ég sjálfur — þá er það fínt. Eg held að ef maður heldur einhverri hugmynd statt og stöðugt fram, þannig aö sá er hefur verið á öndverðum meiði meðtekur þá hugmynd, þ.e. skiptir um skoðun — þá hefur manni tekist að betrumbæta hugarfar andstæðings síns. Síöan kemur þriðji aðilinn og hakkar hugmyndina í sig sem and- stæðingurinn var loks búinn að sætta sig við og fær nú aðeins að sjá rang- hverfuna á. Eg trúi engu ef ég trúi ekki á díalektíkina. Að því leytinu til geri ég það besta sem ég get.” 7 TEGUNDIR 1 ARS ABYRGÐ l ! ð yjí I" : |í :j|. W ÝÍ i P ;í| Mál: hæð 74 mm, breidd 25 mm, þykkt 3,8 mm. Þynnsti kveikjari í heimi frá MARUMAIM UTSÖLUSTAÐIR: Reykjavík: Verslunin Bristol, Verslunin Casio, Garðar Ólafsson úrsmiður. Kópavogur: Verslunin Tröð. Akureyri: Blómabúðin Akur, Gullsmíðastofan Skart. ísafjörður: Verslunin Seria. Umboð K. EYMUNDSSON VIKAN EITTHVAÐ FYRIRALLA Við höfum orð hófsamra sælkera fyrir því að notir þú SÉRSALTAÐ SMJÖR ofan á grófa brauðið - og ekkert annað, njóti hið ljúffenga smjörbragð sín til fulls, og ekki aðeins það, brauðið verður jafnvel enn betra. Hvernig væri að fá sér eina með SÉRSÖLTUÐU SMJÖRI - og engu öðru? Osta og smjörsalan. AUGLÝSINGASTOFA KRISTÍNAR HF. 9.114

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.