Dagblaðið Vísir - DV - 31.03.1984, Síða 21
DV. LAUGARDAGUR 31. MARS1984.
21
áhrif á nágrannana. Þeir komu þvert á
móti reglulega í húsið og hlýddu á
herra Thompson skemmta með fiðlu-
leik og upplestri.
Gripinn
Það komu auðvitað kvöld þegar
Thompson gat ekki tekið á móti
gestum. Þá var hann í ránsferðum á
léttivagni sínum í suðurhluta Lundúna.
Hann var alltaf ákaflega vel klæddur á
ferðum sínum. „Lögreglan trúir því
ekki aö maður sé innbrotsþjófur ef
maöur er nógu vel klæddur,” sagði
hann. Hann var að öðru leyti ólíkur
rammagyllaranum frá Sheffield. Hann
var búinn að lita hár sitt svart, raka af
sér skeggið og notaði gleraugu. Ráns-
ferðimar urðu æ arðbærari og Peace
varð æ áræðnari. Blöðin skrifuðu mikiö
um hann og enginn vissi hver þessi
meistaraþjófur var. En þetta gekk
ekki þegar til lengdar lét. Svo virtist
sem einhver hefði kjaftaö í lögregluna
— kannski önnur konan, að minnsta
kosti var allt fullt af lögreglumönnum í
útbænum Blacheath að kvöldi fimmtu-
dagsins 10. október 1878. Um tvöleytið
um nóttina tók lögregluþjónninn
Edward Robinson eftir ljóskeilu í
húsinu St. Johns Park 2. Hann gerði
félögum sínum viövart og lögreglan
knúði dyra. Ljóskeilan hvarf og út um
gluggann kom Charles Peace. Hann
hljóp í gegnum garðinn og lögreglan á
eftir. Peace sneri sér við og öskraði:
„Til baka eða ég skýt!” Hann skaut
fjórum skotum og eitt þeirra lenti í
handlegg Robinsons. En leiknum var
lokið. Robinson og félögum hans tókst
að yfirbuga hinn baráttuglaða Peace.
Hann var með silfurvasa á sér,
ávísanahefti og veski sem hann hafði
haft upp úr krafsinu. Að auki var hann
með þjófalykla og tvo meitla.
Réttarhöld
Þegar Peace kom fyrir rétt í Old
Bailey 19. nóvember 1878 var hann
ákærður undir nafninu John Ward.
Hann var ákærður fyrir að hafa reynt
að drepa Robinson lögregluþjón sem
fengið hafði 25 punda verðlaun fyrir
dáð sína. Kviðdómurinn dæmdi hann
sekan á fjórum mínútum. Aður hafði
Peace haldið ákafa vamarræðu sem
næstum snart taug í hjarta allra nema
dómarans. Dómurinnhljóöaðiupp á aö
hann skyldi lokaöur inni í fangelsi ævi-
langt. Lögreglan hafði loks fengið
vitneskju um það hver Peace raun-
verulega var. Og kærunni á hendur
honum var fylgt eftir með því að ákæra
konu hans fyrir yfirhylmingu. Hún var
dæmd saklaus á þeim grundvelli að
hún hefði verið neydd sem eiginkona
hans til aö gera eins og hann vildi.
Föstudaginn 17. janúar 1879 var
Peace fluttur hlekkjaður og í fanga-
búningi frá Pentonville til Sheffield
þar sem yfirheyrslur fóru fram vegna
morðsins á Arthur Dyson. Frú Dyson
kom frá Ameríku til að bera vitni fyrir
réttinum. Sama dag var Peace fluttur
aftur til London.
Klukkan 5.15 á miðvikudagsmorgni
22. janúar fór Peace með morgunlest-
inni til Sheffield í fylgd tveggja
lögregluþjóna. Hann var mjög erfiður
á leiðinni og krafðist þess stanslaust að
fá að fara á klósettið. I einni slíkri
heimsókn kastaði hann sér skyndilega
í gegnum gluggann, áreiðanlega í þeim
tilgangi að svipa sig lífi. Annar varð-
anna náði taki á öörum fæti hans en
missti takið. Peace féll úr lestinni,
slasaðist á höfði og lá hreyfingarlaus í
snjónum þegar verðimir fundu hann.
Þeir þurftu að hlaupa tvo kílómetra
eftir teinunum.
Fleiri dráp
Þrátt fyrir þetta var málið tekið upp
strax föstudaginn 24. janúar. Réttur
var settur í fangelsisganginum fyrir
framan klefa hins illa leikna
morðingja. Hann var allur reifaður og
taföi í sífellu réttarhöldin með athuga-
semdum eins og: „Hvers vegna erum
við hér?” „Mér er kalt.” og „Eg vildi
að ég væri dauður. Akveðið var að
Ijúka málinu endanlega fimmtudaginn
4. febrúar 1879 í Leeds. Fanginn var
fluttur í Armley-fangelsið þar sem
hann fór strax að skrifa langa og upp-
byggilega pistla.
I réttarhöldunum var frú Dyson
aftur leidd fram sem vitni. Henni var
greinilega illa við það þegar ákærand-
inn fór út í smáatriði í samskiptum
hennar og Peace. Hún varðist með
ósvífnum svörum og dómarinn varð
margoft aö biöja hana að hafa sig
hæga.
Kviðdómurinn var tólf mínútur að
komast að niðurstöðu. Peace var
dæmdur til dauða. Þegar hann var
spurður hvort hann hefði eitthvað við
það að athuga sagði hann: „Hvaöa
gagn ætti það að gera?”
I dauðaklefanum í Armley-fang-
elsinu létti Peace nú á hjarta sínu fyrir
J. H. Littlewood prófasti. Hann sagði
meðal annars að hann heföi skotið og
drepið lögregluþjón í Manchester
fyrsta ágúst 1876, áður en hann skaut
Alfred Dyson. Lögregluþjónninn, sem
hét Nicholas Cook, hafði ásamt félaga
sínum komið Peace á óvart þar sem
hann var að fremja innbrot í hverfinu
Whally Range. „Hann var ákveöinn
maður eins og ég sjálfur,” sagði
Peace, „og hann lét sér ekki segjast þó
að ég miðaði á hann byssu. Eg skaut og
hitti hann í brjóstið. Annaö gat ég ekki
gert.”
„A að hengja
ykkur eöa mig?"
Tveir írskir bræður, sem báru eftir-
nafnið Habron, voru ákærðir fyrir
morðið á lögregluþjóninum. Annar
þeirra, William Habron, 18 ára, var
dæmdur til dauða fyrir morðið. Það
átti sér stað 28. nóvember, daginn fyrir
morðið á Arthur Dyson. Peace fylgdist
með öllum réttarhöldunum af
áheyrendapöllunum og var ákaflega
spenntur, sagði hann seinna. Skyldi
það hafa orðið honum að falli að hann
slapp frá þessum dauðadómi og reyndi
því annaðmorð?
Habron var veitt uppreisn æru eftir
þessa játningu Peace en það hjálpaöi
honum lítið þar sem hann var kominn
undir græna torfu. Fjölskylda hans
fékk 800 pund í miskabætur.
Charles Peace var hengdur í
Armley-fangelsinu í Leeds klukkan
átta að morgni 25. febrúar 1879.
Síðustu stundum ævi sinnar eyddi hann
við iðkan bæna og iðrunarskrif. Það
risti þó varla sérlega djúpt, að minnsta
kosti kvartaði hann ákaft yfir síðasta
morgunverði sínum og sagði við
verðina: „Hvers vegna í andskotanum
liggur ykkur svona á. A að fara að
hengja ykkur eða mig? ”
Snaran
I gálganum neitaði hann að vera með
hvíta hettu yfir höfðinu. „Eg vil sjá
hvað er að gerast,” sagði hann. Loka-
orð hans voru: „Nú gæti ég hugsað
mér einn gráan:” „Vill einhver gefa
mér drykk?” Hann hafði varla sleppt
síðustu orðunum þegar hlerinn var
látinn falla og endi var bundinn á líf
hans.
Eftir dauða hans var sent út sorgar-
kort með áletruninni:
„I minningu um Charles Peace sem
tekinn var af lífi í Armley-fangelsinu
fimmtudaginn 25. febrúar 1879 fyrir
þaö sem ég gerði en vildi ekki.”
Hann hafði látið prenta það sjálfur í
fangelsinu.
Char/es Peace varþrátt fyrir sérkenni/egt út/it snil/ingur i að búa sig i dular-
gervi. Þannig lék hann á yfirvöld svo árum skipti. Lögreglan lýsti honum
þannig að hann líktist apa og væri Ijótur og lævís og mikið kvennagull.
rstæð sakamál — Sérstæð sakamál — Sérstæð saka
Samtimateikning
frá yfirheyrslunni í
Sheffield þar sem
Katherine Dyson
var kölluð fyrir sem
vitni. Hún bar vitni
standandi.
DAGS FORSKOT
A ÍÞRÓTTAFRÉTT1R HELGaMiNNAR
H VARTA
__ OFURKRAFTUR -
“ ÓTRÚLEG ENDING
FRAMLEIÐENDUR
BETRI BÍLA í EVRÓPU
VELJA
VARTA RAFGEYMA
í BÍLA SÍNA
Það segir meira en mörg orð.
Framleiðendur Mercedes Benz, BMW, Volkswagen
og fleiri, velja VARTA rafgeyma,
enda hefur reynslan sýnt að VARTA rafgeymum
má treysta. Þeir bjóða upp á meira kaldræsiþol,
eru viðhaldsfríir og einnig ódýrir.
60 AMP-stundir kr. 1.494.00.
70 AMP-stundir kr. 1.788.00.
Hentar flestum gerðum bifreiða.
Á OLÍS stöðvum færðu VARTA rafgeymi,
og ísetningu á staðnum.
VARTA GÆÐI Á GÓÐU VERÐI
ávallt í leiðinni