Dagblaðið Vísir - DV - 31.03.1984, Síða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 31.03.1984, Síða 22
* •aW»: isite uelifi ian u5s.i ðiU 'u T.íð f)':Cio Y' taaráljlhahijéa 22 DV. LAUGARDAGUR 31. MARS1984. Bflar Bflar Bflar Bflar Bflar Bflasýningin Auto 84 opnuð um næstu helgi Um næstu helgi veröur opnuð bíla- sýningin Auto ’84 í Húsgagnahöllinni á Artúnshöföa. Þaö er Bílgreina- sambandiö sem stendur fyrir þessari1 sýningu og verða þar til sýnis margir nýir bílar sem ekki hafa sést hér á landi fyrr. Þama munu allir bifreiðainnflytjendur sýna þaö markveröasta sem þeir bjóöa upp á á þessu ári og hafa margir þeirra lagt mikiö á sig til að geta gert sýninguna sem glæsilegast úr garöi. Auk bifreiöainnflytjendanna verða fjölmargir aðrir innflytjendur og aöilar i bílaiönaöinum meö sýningar- bása. Sýningarsvæöiö veröur á báöum hæðum Húsgagnahallarinnar og einnig í húsi Ama Gíslasonar sem er næsta hús noröanl Sýningahallar- innar. I húsi AG verður Fombílaklúbbur- inn með stóra sýningu á gömlum bílum og gefur þar að líta margan glæsivagninn sem hefur nú hlotiö nýja reisn. Einnig verðurKvartmílu- klúbburinn þar meö sýningarsvæði til kynningar á starfsemi sinni. I húsi AG veröa bílainnflytjendur meö sýn- ingu á vöra- og sendibílum en fólksbílarnir veröa í Sýningahöllinni. Ymis önnur ökutæki veröa einnig til sýnis á Auto 84 svo sem mótorhjól og dráttarvélar svo eitthvaö sé nefnt. Bílgreinasambandiö stendur fyrir ýmsum uppákomum til skemmtunar á meöan á sýningunni stendur. Alþjóöleg bilasýning - international motor show Rall veröur haldiö helgina 7. og 8. apríl í samvinnu viö Bifreiöaíþrótta- klúbb Reykjavíkur, Auto-Rall 84. Fyrsti bíllinn verður ræstur frá sýningarsvæöinu kl. 15.01 á laugar- dag og reiknað með aö bílamir ljúki fyrri degi rallsins kl. 20.55 á laugar- dagskvöld. A sunnudagskvöld lýkur síöan Auto-Ralli 84 kl. 17.30. Ymislegt annaö veröur til skemmtunar alla daga sýningarinn- ar og meðal annars má nefna aö strax þegar sýningin verður opnuö á sunnudagsmorgun veröa þau Bryndís Schram og Þóröur húsvörö- ur mætt á staðinn til að skemmta yngstu kynslóöinni. Sýningin veröur formlega opnuö kl. 16 á föstudaginn 6. apríl fyrir gesti sýningarstjómar, en síöan verður dyrum lokiö upp fyrir al- menning klukkan 19. Opiö veröur virka daga frá klukkan 16 til 22, laugardaga 13 til 22 og sunnudaga frá klukkan 10 aö morgni til kl. 22. Sýningunni lýkur síöan á pálma- sunnudag, 15. apríl. Sérstakt bílablað ítilefni Auto84 Fyrir rúmum mánuði lauk alþjóðlegu bílasýningunni í Genf í Sviss. Þessi árlega sýning vekur ávallt mikla athygli og er venjan sú að þar séu kynntir í fyrsta sinn nýir bílar frá ýmsum framleiðendum. A þessari sýningu kenndi ýmissa grasa og margir nýir bilar litu þar dagsins ljós. Hér á síðunni eru nokkrar svipmyndir en frekari grcin veröur gerö fyrir því sem markvert kom fram í Genf síðar. -JR I tilefni bílasýningar Bíl- greinasambandsins, Auto 84, fylgir sérstakt bílablaö DV um næstu helgi. Þar verður reynt aö gera grein fyrir því helsta sem er að gerast í bílaheiminum og sagt frá því sem bifreiðainnflytjendur bjóöa upp á á sýningunni. Eitt af þvi markverðasta sem sást í Genf var þessi sportbíll frá Toyota FX Frá Ford Ghia var þessi fjölskyldubill sýndur. Hann er meö þremur sæta- röðum og mjög góöu rými. VW Passat meö fjórhjóladrifi. Tetra heitir þessi nýja gerö og kemur á markað með haustinu. Stjarna 54. bilasýningarinnar í Genf var að margra mati hinn nýi Renault 25. Þetta nýja flaggskip Renault er með, eins og fyrirrennaramir, stóran bakhlemm svo að hann lítur út sem skutbíll. Alls sýndu 1156 sýningaraðilar frá 30 löndum á sýningunni. Frést hefur að von sé á hinum nýja Renault 25 á Auto ’84. Hekla hf. tók örlítið forskot og kynnti hinn nýja Mitsubishi Space Wagon á bilasýningu um síðustu helgi. Þar vakti þessi fjölskyldubill mikla athygli, ekki sist fyrir pláss, en hann er með þremur sætarööum og sætum fyrir sjö manns. Nánar verður fjallað um Space Wagon hér á síðunni síðar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.