Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.1984, Side 2

Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.1984, Side 2
2 DV. LAUGARDAGUR 23. JUNl 1984. „Leysirósköp lítinnvanda” — segirÓlafur Gunnarsson, forstjóri Síidarvinnslunnar íNeskaupstað „Þetta fiskverö leysir ósköp litinn vanda, þaö er verið aö auka tap fiskvinnslunnar og minnka tap útgerðarinnar. En víð teljum aö út- gerðin sé enn rekin meö 10 prósenta tapi,” sagöi Olafur Gunnarsson, forstjóri Síldarvinnslunnar hf. í Neskaupstað í gær. „Það sem ég cr óánægðastur meö er að um engan tekjuauka er að ræða í sjávarútveginum. Hundraö miiljónirnar, sem við eigum að fá úr Aflatryggingasjóði, fara beint til að mæta þeim olíu- verðshækkunum sem urðu fyrir nokkrumdögum.” Olafur sagði ennfremur að það ætti eftir að koma í ljós á næstu fjórum vikum hvernig útgerðar- menn myndu bregðast viö þessu fiskverði. „Þá á til dæmis eftir aö koma á daginn hvernig skuld- breytingamar koma út og hvernig að þeim verður staðið.” — Nú talar þú um 10 prósenta tap á útgerðinni. Hvers vegna sam- þykkti þá fulltrúi ykkar í yfir- nefndinni þetta fiskverð? ,,Ætb staðan hafi ekki veriö metin þannig að menn kæmust ekki lengra í þessari lotu.” — Ætiið þið útgerðarmenn á Austurlandi að sigla í land eftir mánuö, eins og þið hafið rætt um? „Það verður að koma í ljós hvernig þetta allt saman þróast og menn taka ákvaröanir þegar þar aðkemur.” -JGH. Ríkid tekur hagstættlán Albert Guömundsson fjármála- ráðherra undirritaði fyrir hönd íslenska ríkisins samning um lán að upphæð 2,7 milljarðar króna síðastliðinn miðvikudag. Lánið er tekið til aö fjármagna ýmsar fram- kvæmdir á vegum ríkisins í samræmi við heimildir í lánsf jár- lögum og viöbótarheimildir í lögum um ráðstafanir í ríkisfjármáium, peningamálum og lánsf jármálum. I frétt frá fjármálaráðuneytinu segir að lánskjör séu hin hag- stæðustu sem íslenska ríkið hafi notið til þessa á sambærilegum lánum. Lánið er til tíu ára meö breytilegum vöxtum sem eru 3/8 úr prósenti yfir millibankavöxtum í London fyrstu sex árin en hálft prósent síðustu f jögur árin. Lánið verður greitt með sjö jöfnum afborgunum, hinni fyrstu árið 1991. Heimilt er að endurgreiöa það aö hluta eða í heilu lagi áður en upphaflegur iánstími er liðinn. Seðlabanki Islands annaðist undirbúning lántökunnar fyrir hönd fjármálaráðuneytisins. Lánið er tekið hjá f jórtán bönkum í Japan og Evrópu. ‘EA- FLUGMENNIRNIR VORU AÐVARAÐIR Flugvél Bretanna á toppi Eiríksjökuls. DV-mynd Eirikur Jónsson Bresku flugmennirnir sem bjargað var af Eiríksjökli höfðu fengið aðvar- anir frá einum þremur aðilum um lé- leg sjónflugsskilyrði áöur en þeir lögöu upp í för sína til Grímseyjar. Pétur Einarsson flugmálastjóri sagði í samtali við DV að þeir hefðu fengið aðvörun er þeir öfluöu sér upplýsinga um veðriö á leiðinni og hann haföi talað við tvo aöila sem höfðu varað bresku mennina viö að mjög lágskýjað væri á þeirri leið sem þeir hugðust fljúga og sjónflugsskil- yrðin mjög léleg. Hvað það atriði varðar að flugvél þeirra hafi verið illa búin tækjum sagði Pétur að það væri ekki alls kostar rétt. Þeir hefðu að vísu ekki veriö með sjálfvirkan neyðarsendi en hins vegar neyðarsendi í gúmmí- björgunarbát um borð í vélinni og hefði þeim tekist að ná honum úr brakinu eftir slysiö en hins vegar hefði hann ekki virkað. Flugvélin var útbúin radarsvara þannig að flugumferðarstjórn sá hana stöðugt á skerminum hjá sér. ”Þeir virðast hafa brotlent ör- stuttu eftir að þeir hurfu af radarn- um og gaf það vissar vísbendingar um hvar þeirra væri að leita sem hjálpaði mikið til við leitarstarfið,” sagði Pétur. -FRI ff Veinaði af sársauka og kallaöi á hjálp” ,,Ég veinaði af sársauka, er strák- amir skelltu mér harkalega í götuna. Ég kallaði á hjálp en það virtist svo vonlaust. Þaö voru engir aðrir á ferli. Eftir aö ég hafði legiö hjálparvana í nokkrar mínútur bar að ungan mann á bíl. Hann rétti mér strax hjálpar- hönd.” Sú er þessi orö mælir heitir Halldóra Gröndal. Hún er 85 ára aö aldri og býr við Bergstaðastrætið. A leið heim til sín gekk hún í rólegheitum eftir Berg- staðastrætinu um klukkan fjögur á fimmtudag. Hún átti smáspöl eftir þegar tveir piltar réöust á hana. ,,Ég var niðri í miðbæ og var svona að dóla mér heim, ætlaði að laga kaffi handa mér og manninum mínum er strákamir réðust á mig. Þeir komu hlaupandi aftan að mér þannig að ég sá aldrei framan í þá. Þeir kipptu í veskið, sem ég var með, en tókst ekki að ná því. Ég var með ólina um höndina. I leiðinni skelltu þeir mér harkalega í götuna svo aö nú get ég varla gengið. Eg marðist á fótum og tognaði, auk þess sem ég er meö sár á öðrum hand- leggnum. En ég er sem betur fer ekkert brotin.” harkaleg árás tveggja pilta á85 árakonu Strákamir tveir, sem réðust á Halldóru, hlupu strax upp Barónsstíg- inn og hurfu á brott. ,,Ég skil ekki hví svo röskir piltar gera svona lagað.” — Hvemig líöur þér núna? „Það tekur greinilega tíma að jafna sig. Eg sit mest en reyni samt að staulast áfram annað slagið með hjálp.” -JGH. SÍS svíhar á hestakaupmanni „Mér þykir þetta heldur dýr fyrir- greiðsla, ég get ekki sagt annað,” sagði norski hestakaupandinn Svein Svarthaug sem var hér á landi fyrir skömmu, keypti 8 skagfirska gæðinga og flutti með sér í bíl með Norrænu til Noregs. „Ég keypti hestana 8 á sem svarar 260.000 krónur og greiddi út í hönd. Þá borgaði ég fraktina, sem kostaði 23.000 krónur, og ýmsa aðra smáreikninga, s.s. fóður og annað. Eg hafði beðið búvömdeild Sambandsins um að útfylla fyrir mig útflutnings- skjöl því að þeir eru vanir slíku í sínum hestaviðskiptum. En þegar ég fékk frá þeim reikninginn brá mér heldur betur í brún: 12000 norskar krónur eða 45000 íslenskar kr. og það fyrir smávægilega pappírsvinnu,” sagði Svein er DV ræddi við hann í Noregi. Sagði hann hestana viö góöa heilsu, þeir heföu komiö til Noregs í fyrradag og matarlystin væri góð. Benti Svein Svarthaug á að reikningar Sambands- ins vegna útfyllingar tollskjala jafn- giltu verði f jögurra ótaminna hesta úr Skagafiröi sem mikil eftirspurn væri eftir. „En verölagning sem þessi hækkar hrossin svo í verði hér í Noregi að illa gengur að selja. Og ég sem hélt að það væri allt of mikið af hestum á ls- landi,” sagðiSvein. -EIR. IMÝ ÞJÓNUSTA MEIRA FYRIR PENINGANA KOMDU MEÐ FILMUNA OG ÞÚ FÆRÐ MYNDIRNAR SAMDÆGURS í FALLEGU ALBÚMI ÁN AUKAGJALDS. LJOSMYNDAÞJONUSTAN HF LAUGAVEGI 178 OG NÝJA HÚSINU LÆKJARTORGI. ......

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.