Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.1984, Qupperneq 4
4
DV. LAUGARDAGUR 23. JUNI1984.
menn vegna James Bond mynd-
arinnar. Þeir hafa meöferöis ýmsan
tækjabúnað, þar á meöal 3 fjarstýrö
þyrlulíkön, hvert á stærð við
garðsláttuvél. Þessi líkön eru nákvæm
eftirlíking af alvöruþyrlu sem vænt-
anleg er til landsins næstu daga.
Þyrlulíkönin verða sprengd í loftinu
yfir Breiðamerkurlóni. Hrúga af
gömlum dekk jum og nokkrar tunnur af
bensíni sjá til þess aö báhð og
reykurinn verði nóg þegar þyrlan
hrapar.
Kvikmyndatökumennirnir gera ráð
fyrir að dvelja í 10 daga hér á landi við
tökur.
Kristján Már Unnarsson,
Höfn Hornafirði — EIR.
Milljónaskuldir útgerðar við olíufélögin:
Yndisf ögur stúlka í ísjaka og þyrlur á stærð við garðsláttuvélar:
James Bond í lífsháska
á Breiðamerkurlóni
spyrja sjálfan sig aö því hvernig olíu-
félögin hafi ráð á að lána útgerðinni
svo mikla peninga.
Ljóst er aö þau taka lán hérlendis og
erlendis til að mæta skuldum útgerðar-
innar. Einnig virðist vist að oliufélögin
gangi í varasjóði sína, eigið fé, vegna
þessa.
Fróðlegt er að skoða ritin Hagtölur
mánaðarins og Ársskýrslu Seðlabank-
ans þar sem minnst er á stöðu olíu-
félaganna gagnvart lánastofnunum.
Þar kemur fram, ásamt viöbótar-
upplýsingum hjá Seðlabankanum, að
olíufélögin skulduðu viðskiptabönkum
sínum 723 milljónir króna í lok apríl
síðastliðins. Fjórum mánuðum áður,
um áramótin, nam þessi skuld 628
milljónum.
Af þessu sést að olíufélögin juku
skuldir sínar gagnvart viðskiptabönk-
um sínum um hundrað milljónir á
þessu fjögurra mánaða tímabili í
vetur.
Skuldir olíufélaganna hjá bönkunum
námu í byrjun ársins 1983 alls 562
milljónum króna. Enn jukust því
skuldirnar á árinu 1983.
En hvemig er staöan gagnvart út-
löndum? I byrjun ársins 1983 var er-
lent iánsfé til olíufélaganna 248
milljónir en í lok ársins 914 milljónir.
Veruleg aukning. 1 lok apríl síðastlið-
ins námu skuldirnar 768 milljónum,
höfðu lækkað.
Samkvæmt upplýsinguin DV eru
þessi lán oiíufélaganna engan veginn
eingöngu tilkomin vegna skulda út-
gerðarinnar viö þau. Erlendu lánin eru
til dæmis sögð að mestu til að fjár-
magna kaupin á olíunni og er þessi
fjármögnun í formi gjaldfrests erlend-
is.
Olíubirgðir oliufélaganna eru veru-
legar og þær þarf að f jármagna og þar
kemur gjaldfresturinn erlendis líka
inn í dæmiö.
Þá eru það varasjóöir olíufélaganna,
hluti af svokölluðu eigin fé þeirra.
Fullyrt hefur veriö við DV að olíu-
félögin hafi orðið að grípa til þeirra
vegna vanskila útgerðarinnar við þau.
Jafnvel er talað um aö þessi fjármögn-
un vegi hvað þyngst á metunum.
Mat manna á mikilvægisröð fjár-
mögnunar vegna skulda útgerðarinnar.
er aö fyrst komi eigið fé, síðan erlendi
gjaldfresturinn og þá bankalánin
innanlands.
Otilokað hefur verið að komast að'
því hver hlutur hvers olíufélags er í
þeim lántökum sem Seölabankinn birt-
ir í sínum skýrslum.
Menn sem velt hafa fýrir sér olíu-
málum hérlendis í áraraðir segja að af
heildarsölu olíu sé Olís með um 26 pró-
sent sölu, Skeljungur 31 prósent og
Olíufélagið 43 prósent. Þetta sé hlut-
deild þeirra á innlenda markaðnum.
Itrekað skal þó í lokin að alls ekki er
hægt að setja jafnaöarmerki á milli
þessara talna og talnanna um lántökur
olíufélaganna. Ástæðan er sú að fullyrt
er að olíufélögin taki misjaf nlega mikil
lán.
—JGH
Emil Thoroddsen samdi verðlaunalagið
Þau leiðu mistök urðu i greininni
„Lýöveldisstofnun í slagviðri” í 40 ára
iýðveidisblaði DV að ekki var getið um
verðlaunalag Emils Thoroddsens við
ljóð Huldu „Hver á sér fegra föður-
land”. Það leiðréttist hér með að Emil
samdi verðlaunalag þjóðhátíðarinnar
1944. .tt.
James Bond brunar á vélsleöa á
fleygiferð eftir ísauðnum Síberíu. Á
eftir honum eru óvinirnir, á vélsleöum
og þyrlum. Þeir skjóta í sifellu á
James Bond. Eltingaleikurinn er æsi-
spennandi.
Skyndilega kemur Bond að jökullóni.
Hann stendur á jökulbrúninni og kemst
hvergi. Ovinirnir nálgast. Sprengjur
falla allt í kringum Bond. Þyrla
óvinarms nálgast Bond ískyggiiega.
Hetjan grípur upp neyðarblys og
skýtur að þyrlunni. Blysið fer inn í
flugstjórnarklefa þyrlunnar og veldur
því að flugmennirnir missa stjórn á
henni. Sprenging verður. Þyrlan hring-
snýst til jarðar og brotlendir á ísjaka á
jökullóninu. Mikiö bál gýs upp.
Ovinirnir á vélsleðunum sækja fast-
ar að Bond. Skyndilega opnast einn
ísjakinn á jökullóninu og James Bond
sér í breska fánann. Þetta er þá enginn
jaki heldur dulbúiö far bresku leyni-
þjónustunnar. James Bond stekkur um
borð. Inni í „ísjakanum” eru dúnmjúk
húsgögn en aðeins ein mannvera,
yndisfögurstúlka.
Bond spyr: „Hversu lengi verðum
við á leiðinni til Bretlands?” Stúlkan
svarar: „Fimm vikur.” Þá segir
Bond: ,,Eg bara vona að jakinn bráðni
ekkiáleiðinni.”
Þetta er upphafsatriði næstu James
Bond mýndar sem hlotiö hefur heitið
„A View to Kill”. Þetta upphafsatriði
verður að hluta tekið á Islandi, nánar
tiltekiö á Breiðamerkurlóni.
Þegar DV-menn voru þar á ferð í gær
var verið að undirbúa kvikmyndatöku.
Aðalleikarinn, Roger Moore, kemur
ekki til landsins heldur aöeins
staðgengill hans, Martin Grace. Hann
m------------------------►
Starfsmenn kvikmyndafélagsins
bera hluta af gerviisjakanum aÖ
Breiðamerkurlóni. Fyrir aftan er
verið að hifa fleka af vörubil. Kvik-
myndatökumennirnir munu mynda
af slikum fíekum, fíjótandi á jökul-
lóninu.
DV-simamynd GVA.
er eini leikari myndarinnar sem
veröur fyrir framan myndavélarnar
hérlendis. Upphafsatriðið verður aö
öðru leyti tekiö upp í Sviss og innan-
húss í kvikmyndatökuveri.
Hér á landi eru staddir 30 erlendir
Milljónaskuldir útgerðarinnar við
olíufélögin þrjú hafa vakiö upp
nokkrar spumingar. Skuldirnar nema
hundruöum miiijóna króna og því má
islensku keppendurnir i ólympíukeppninni í eðlisfræði og fararstjórar
þoirra. Frá vinstri, dr. Hans Kr. Guðmundsson, Vilhjálmur Þorsteins-
son, Finnur Lárusson og Viöar Ágústsson. D V-mynd Bj. Bj.
júní til 1. júlí. Aðstandendur keppn-
innar eru sænska eðlisfræðifélagið
og fræðsluyfirvöld Svíþjóðar. Auk Is-
lands taka 17 þjóöir þátt í keppninni.
Það eru Austurríki, Austur-Þýska-
land, Bretiand, Búlgaría, Finnland,
Holland, Júgóslavía, Kúba, Noregur,
Póliand, Rúmenía, Sovétríkin, Sví-
þjóð, Tékkóslóvakia, Ungverjaland,
Vestur-Þýskaland og Víetnam.
Tveir fararstjórar verða með í för-
inni, dr. Hans Kr. Guömundsson,
eðlisverkfræðingur við Háskólann,
og Viðar Ágústsson, kennari í eölis-
fræði við Fjölbrautaskólann i Breið-
holti, en hann hefur annast þjálfun
keppendanna fyrir keppnina. Þeir
Hans og Viðar sitja auk þess í
ólympíuráðinu sem sér um aö leik-
amir fari að settum reglum og hefur
yfirumsjón meðmati úrlausna.
—KÞ
ÍSÍ afturkallar
leikbannsskeytin
— sem sambandið
sendi Þrótti, Fylki, Vestra og Oðni
— ,,Eg á ekki orð yfir þessar
skeytasendingar hjá ÍSl. Maður vissi
ekki hvaöan á sig stóð veðrið þegar
við fengum óstaðfest skeyti frá sam-
bandinu — þaö var eins og atóm-
bomba hefði fallið niður,” sagöi einn
af forráöamönnum Knattspymu-
félagsins Þróttar, en Þróttur var eitt
af þeim fjórum félögum sem fengu
skeyti þess efnis frá ISI á
fimmtudaginn að félagið hefði verið
dæmt í leikbann þar sem þaö hefði
ekki skilað inn kennsluskýrslum
fyrir 1983. Hin félögin voru Fylkir,
Vestri og Oðinn.
— Þeim hefur oröið fótaskortur á
skrifstofu ISI sem sést best á því að
við fengum skeyti frá sambandinu í
gær þar sem okkur var tilkynnt að
búið væri að afturkalla fyrra skeyti
— þ.e.a.s. skeytiðþarsemleikbannið
var tilkynnt, sagði stjómarmaðurinn
hjá Þrótti.
Eins og DV sagði frá í gær voru
Fylkismenn afar óhressir með skeyti
ISI þar sem þeir voru búnir að senda
inn kennsluskýrslur fyrir 1983.
Skýrslurnar frá Fylki fundust niöri á
skrifstofu íþróttasambandsins í gær-
morgun.
Þa er því ljóst aö mistök hafa oröið
og má rekja ástæðuna fyrir mis-
tökunum tii þess að Hermann
Guðmundsson, framkvæmdastjóri
ISI, er pú í sumarfríi.
-SOS.
Ólympíukeppnin
íeðlisfræði:
ÍSLEND-
INGAR
MEÐAL
ÞÁn-
TAKENDA
Island tekur nú í fyrsta sinn þátt í
alþjóðlegri keppni i eðlisfræði fyrir
framhaldsskólanema yngri en
tvítuga, svonefndum ólympíuleikum
íeðiisfræði.
Islensku þátttakendurnir eru tveir
taisins, þeir Finnur Lárusson og Vil-
hjálmur Þorsteinsson, 17 og 18 ára.
Sá fyrmefndi varð stúdent frá
Hamrahliðarskóla nú i vor, sá síðar-
nefndi verður það um næstu jól.
Þessir tveir urðu hlutskarpastir í
landskeppni í eðlisfræöi semhérvar
haldin í ársbyrjun.
Keppni þessi er hin fimmtánda í
sinni röð og verður að þessu sinni
haldin í Sigtuna í Svíþjóð vikuna 24.
Hvemig fara olíufélögin
aö því aö lána útgeröinni?