Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.1984, Síða 5
DV. LAUGARDAGUR 23. JONI1984.
YFIRSEX ÞÚSUND
SJÓMENNÁ FISKI-
SKIPAFLOTANUM
Fjöldi sjómanna á íslenska fiski-
skipaflotanum var að meðaltali 6207 á
síðasta ári. Það er mun meiri fjöldi en
á síðustu árum.
Fjórðungur sjómanna var á skuttog-
urum, eða alls um 1500 talsins. A opn-
um vélbátum voru um þúsund sjó-
menn, á vélbátum 100 brúttólestir og
smærri voru um 1830 og á vélbátum 100
brúttólestir og stærri voru um 1850.
Arið 1981 voru sjómenn rúmlega
5900, árið 1981 um 6040 og árið 1982 um
6140.
-JGH
Sýning á verkum
10 gesta listahátíðar á
Kjarvalsstöðum:
Framlengd
vegna
aðsóknar
Ákveðið hefur verið að framlengja
sýningu 10 gesta listahátíöar aö Kjar-
valsstöðum vegna mjög góörar að-
sóknar og mun sýningin standa til júlí-
loka.
I næstu viku er síöan áformaö að
efna til raf- og tölvutónleika á Kjar-
valsstöðum. Flutt verða verk -eftir
Gunnar Reyni Sveinsson, Hjálmar
Ragnarsson, Kjartan Olafsson, Lárus
Grimsson, Magnús Blöndal Jóhanns-
son, Snorra S. Birgisson, Þorkel Sigur-
björnsson og Þorstein Hauksson.
-FRI
HALLDÓR
HEIMSÆK-
IRSOVÉT
Halldór Ásgrímsson sjávarútvegs-
ráðherra og frú Sigurjóna Sigurðar-
dóttir hafa þegið boð J. M. Kamentsev,
sjávarútvegsráðherra Sovétríkjanna,
um að koma í opinbera heimsókn dag-
ana 24. júní til 1. júlí nk.
Mun ráðherrann eiga viðræður við
Kamentsev sjávarútvegsráðherra um
samskipti landanna á sviði sjávarút-
vegs og einnig mun hann kynna sér
eftir föngum fiskveiðar og vinnslu í
Sovétríkjunum.
1 för með ráðherranum verða Þor-
steinn Geirsson ráðuneytisstjóri og
María Haraldsdóttir.
Jónsmessunótt:
STYRKTAR-
SÝNING„Á
HJARA
VERALDAR”
Klukkan tólf á miðnætti í kvöld 23.
júni 1984, Jónsmessunótt, gangast
Vinir Völuspár fyrir stuðningssýningu
á kvikmyndinni Á hjara veraldar eftir
Kristinu Jóhannesdóttur i Háskólabíói.
Hátíðin hefst á miðnætti með ávarpi
og tveimur skemmtiatriðum en að því
búnu verður kvikmyndin sýnd. Þá
verður gengiö út í magnaöa Jóns-
messunæturdöggina.
Blettabókin
Ot er komin hjá Iðunni ný handbók
um hreinsun bletta, Blettabókin. Þar
er til dæmis að finna leiðbeiningar um
hvað gera skuli þegar rauðvín fer í ný
föt, þegar hellist úr kaffibolla í gólf-
teppi eða þegar bleksletta lendir í hæg-
indastól.
Blettabókin er 32 síður og prýdd
fjölda mynda. Leifur Franzson og
Margrét Ormslev þýddu.
EA ;
\/INSÆLU HÚSGÖGNIN
ÍBARNA- OG UNGUNGA-
HERBERGIN í ÚRVALI
HUSGAGNA
Gpið laugardag
sunnudag kl. 2-5 e.h. Ici'. 10-12 ug 14-17
TM-HUSGÖGN
Síðumúla 30 — sími 68-68-22.
Til alniennii'gg:
• /
í IÖnaÖaibanka felands hf
Iðnaðarráðherra hefur ákveðið að selja hlutabréf
ríkissjóðs í Iðnaðarbanka íslands hf. Sala á hlutabréfum
var samþykkt á Alþingi þann 18. maí 1984.
Með bréfí, dagsettu 16. apríl 1984, bauð iðnaðarráð-
herra hluthöfum bankans að kaupa hlutabréf ríkissjóðs
í hlutfalli við hlutafjáreign þeirra hinn 31. des. síðast-
liðinn. Frestur til að skrifa sig fyrir hlutabréfum
samkvæmt ofangreindu, rann út 1. júní 1984.
Hlutafjáreign ríkisins þann 31. desember 1983 var um
27% af heildarhlutafé í bankanum, að nafnverði samtals
kr. 10.391.700. Söluverð hlutabréfanna í heild er
kr. 32.000.000., auk hæstu lögleyfðra útlánsvaxta frá
1. janúar 1984 til greiðsludags.
Áskriftir samkvæmt framangreindu, bárust frá 323
hluthöfum, að nafnverði kr. 7.170.778. Óselt hlutafé
ríkissjóðs í bankanum er því að nafnverði
kr. 3.220.922., sem er nú boðið almenningi til kaups.
Jafnframt hefur iðnaðarráðherra samið við Iðnaðar-
banka íslands hf. um framkvæmd sölu hlutabréfa
ríkissjóðs í samræmi við neðangreinda skilmála:
1. Bréfín eru nú boðin almenningi til kaups og er
hverjum heimilt að kaupa hlutabréf fyrir allt að
30.000. að nafnverði. Jöfnunarhlutabréf sem gefin
verða út í samræmi við ákvörðun síðasta aðalftindar,
71,1%, fylgja hlutabréfunum.
2. Verð hlutabréfanna og greiðsluskilmálar eru þeir
sömu og hluthöfum bauðst og eru sem hér segir:
2.1 Verð.
Söluverð bréfanna er 3,080-falt nafnverð miðað við
31. desember 1983 auk hæstu lögleyfðra útlánsvaxta
frá 1. janúar 1984 til greiðsludags.
2.2 Greiðsluskílmálar.
A) Útborgun, að minnsta kosti 50% af söluverði,
sem greiðist þannig:
1) Að minnsta kosti 25% af söluverði staðgreiðist.
2) Greiða má 25% með útgáfu á skuldabréfi með
þremur afborgunum á 9 mánuðum, 1. nóvember
1984, 1. febrúar 1985 og 1. maí 1985. Skulda-
bréfín beri hæstu lögleyfða vexti frá 25. júlí 1984
(nú 21% p.a.) til greiðsludags.
B) Lán, allt að 50% af söluverði.
Eftirstöðvar má greiða með vísitölubundnum
skuldabréfum (lánskjaravísitala) til 3ja ára, með
gjalddögum 1. júní ár hvert. Skuldabréfin beri hæstu
lögleyfða vexti af verðtryggðum lánum frá 1. júní
1984 til greiðsludags (nú 5.0% p.a.)
Fyrir framangreindum skuldabréfum skal setja
tryggingar, sem metnar verða gildar. Skuldabréfin
skulu gefin út fyrir 1. september 1984 og áskilur
ríkissjóður sér rétt til að rifta kaupunum hafi skulda-
bréfin ekki verið gefin út fyrir þann dag.
3. Aðilar öðlast rétt til að kaupa hlutabréfin í þeirri röð
sem áskriftir, ásamt greiðslu fyrir að minnsta kosti
25% af söluandvirði, berast bankanum.
4. Sölutilboð þetta stendur til 25. júlí 1984.
Frekari upplýsingar eru veittar í Iðnaðarbanka Is-
lands hf„ hlutabréfadeild, í síma 20580.
Iðnaðarbanki (slands hf
|I
11