Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.1984, Page 6
DV. LAUGARDAGUR 23. JUNI1984.
VlKU
Albert Guð-
mundsson og
pólitikin Lúsi
voru enn i frétt-
um í vikunni eftir
að Albert neitaði
dómsátt i máli
sinu fyrir ólög-
legt hundahald.
Sagðist ráðherr-
ann vel geta
hugsað sér að
sitja sektina af
sér, enda væri
slík fangelsisvist
betur borguð en
vist i ráðherra-
stól.
íslendingar héldu upp á 40 ára afmæli lýðveldisins síðastliðinn sunnudag með pomp og
prakt um allt landið. í Reykjavik fóru hátíðahöldin fram meðhefðbundnum hætti og var
mikill mannfjöldi samankominn ímiðborginni frá morgni til kvölds.
Að kvöldi 17. júni lauk Listahátið með heljarinnar dansleik sem jafnframt var þjóðhátið-
ardansleikur. Þusti þangað múgur og margmenni, miklu fíeiri en rúmuðust i höllinni
með góðu móti og fór allt i bál og brand. Meðal þeirra sem héldu uppi stuðinu þetta
ágæta kvöld voru hinir einu og sönnu Stuðmenn sem sjást hér igóðri sveifíu á sviðinu.
Fjalakötturinn
það ágæta eða
slæma hús, allt
eftir þvi hver tal-
ar, komst einn
ganginn enn i
fréttirnar i vik-
unni. Og að
þessu sinni var
það vegna þess
að iðnaðarmenn
eru byrjaðir að
undirbúa niður-
rifsstarfsemi
sina á húsinu.
Hór sjást tveir
niðurrifsmanna
að störfum.
í byrjun þessarar viku var Kringlumýrarbrautin eins og hafsjór yfir að líta á kafía og var
skýringin sú að skurðgrafa hafðihleypt vatniþeirra vesturbæinga upp á yfirborð jarðar á
röngum stað.
íslendingar og Norðmenn öttu saman klárum sínum á knattspyrnusviðinu i vikunni og
þeir norsku voru klárari þviþeir skoruðu eitt mark en íslendingarnir ekkert. Oft munaði
þó mjóu eins og hér er Páll Ólafsson á þrumuskot á norska markið en markvörðurinn er í
veginum.