Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.1984, Page 10

Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.1984, Page 10
„HUGSA UM BÖRNIN Á MEÐAN KONAN VINNURIÍTI” — segir Ásgeir Elíasson, þjálfari og leikmaður Þróttar Þeir sem fylgjast með íþróttum vita hver Ásgeir Elíasson er. Þeir sem ekki fylgjast með íþróttum vita flestir einn- ig hver Ásgeir Elíasson er. Hann hefur staðið í eldlínunni í áraráðir og ávallt verið í fremstu röö. Oftast sem leik- maður en nú síðari ár sem þjálfari og leikmaður. Viö Þróttar-liðinu tók hann fyrir fjórum árum og þar hefur hann gert góða hluti, bæði sem leikmaöur og þjálfari. DV sló á þráöinn til Ásgeirs sem var á bólakafi í húsverkum. , ,Það er ekki hægt að segja aö maöur sé aö slappa af. Það er alltaf eitthvað sem kemur upp. I augnablikinu er ég nokkurs konar húsfaðir. Eg hugsa um börnin frá átta á morgnana tii f jögur á daginn vegna þess að konan vinnur úti. Eg er sjálfur lærður íþróttakennari og starfa sem slíkur hér í Mosfellssveit á veturna. Eg útskrifaðist áriö 1974 og líkar vel þetta starf. Hef alla tíð haft mjög mikinn áhuga á íþróttum. Eg út- skrifaðist með mörgum þekktum DV. LAUGARDAGUR 23. JUNI1984. Gu Ásgeir EIÍBSSon ásamt eiginkonu og sonum, !, þeim Þorvaldi og Omundi Ægi Ásgeirssonum- íþróttamönnum og nægir að nefna þá Pálma Pálmason, Snorra Rútsson, Gunnar Árnason, Guðmund Pálsson og Valdemar Jónasson.” — Nú hefur íþróttakennaraskólinn á Laugarvatni oröið fyrir mikilli gagn- rýni á undanförnum árum. Á hún rétt á séraðþínumati? „Eg held að hún eigi rétt á sér að mörgu leyti. En þetta er viðkvæmt mál og ég verð að segja eins og er aö mér líkaöi alltaf mjög vel fyrir austan. Haföi ekki yfir neinu sérstöku að kvarta.” „Hef mjög lítinn tíma" „Þaö verður að segjast að ég hef yfirleitt alltaf lítinn tíma fyrir áhuga- málin. Eg er yfirleitt heima á daginn tii fjögur og þá fer ég að undirbúa æfingarnar hjá Þrótti en einstaka sinn- um, og þá þegar ekki er æft, finn ég tíma til að fara í bíó með elsta synin- um. Nú, ég geri nokkuð að því að lesa og þessa stundina er ég að reyna að lesa mér til um tölvur og ég á eina Pizza með tómati, osti og nauta- hakki var ekki nógu góð. Botninn var ekki nógu mjúkur og fyllingin var of sparsemdarleg. Sérstaklega vatnaði í hana tómata. Sem pizzustaður er Sælkerinn betri. Nautakjöt, moðsoðið í gufu, er ekki mitt uppáhald, því að kjötið verður af því þurrt og bragðdauft. En í samanburöi við annaö slikt kjöt var þetta sæmilega heppnaö á Hominu sem réttur dagsins. Með því fylgdu ferskir sveppir steiktir, ekki merkilegar strengbaunir, kartöflu- stappa, kölluð „mús” á töflunni, svo og mild og góð tómatsósa. Orðalagið „mús” er plága í veitingarekstri hér á landi. Góð vín á lista Vínlisti Hömsins er ekki langur, en eigi að síður í hópi hinna betri í borginni. Þar saknaði ég ekki annars en hins ódýra Trakia og hins næstum því eins ódýra Chateau de Saint Laurent. Seðillinn býr meira að segja yfir þurru sherry og gömlu, góöu púrtvíni. Þjónustan á Hominu er ágæt og snör í snúningum í ítölskum stíl, svipuð og veriö hefur allar götur frá upphafi. Miöjuverð þriggja súpa er 62 krónur, fimm forrétta 154 krónur, fimm fiskrétta 292 krónur, sex kjöt- rétta 232 krónur, níu eftirrétta 84 krónur og tíu pizza 186 krónur. Kaffi er á 30 krónur, gott expresso-kaffi. Súpa og aðalréttur af fastaseðli ætti að kosta um 324 krónur að meðaltali, súpa og pizza 248 krónur. Þriggja rétta máltíð með hálfri flösku af víni á mann og kaffi ætti að kosta 614 krónur á mann að meðal- tali á Hominu. Staðurinn er heldur ó- dýrari en Sælkerinn og Lækjar- brekka, í lægri kanti milliverðs- staðanna. Jónas Kristjánsson E.S. Lesendur eru beðnir athuga, að kokkahúfur í greinaflokki þessum eru aðeins að hálfu gefnar fyrir sjálfa matreiðsluna. A móti eru þær að hálfu gefnar samanlagt fyrir um- hverfi.þjónustuogvínlista. J.K. Hornið Bezt er að hafa sem flestar kokkahúfur og fæstar krónur Engir að flýta sér Sveigðar línur Á gestunum sést, að Hornið er notalegur staður. Fólk er yfirleitt ekki að flýta sér, þegar það sezt þar aö snæðingi. Það slórar siöan lengi yfir síðasta kaffibollanum eða hvít- vínsglasinu. Þetta er sjálfsagt ekki gott fyrir veltuna, en gerir staðinn að örlitlum þætti menningarlífsins. Aðall Homsins eru hinar listrænu og björtu innréttingar, sem em óbreyttar og að mestu óþreyttar eins og á fyrsta degi. Stórir gluggar án tjalda lýsa því yfir, að Hornið sé í- tengslum við lífið fyrir utan, sé ekki innhverfur staöur. Mjúkar blómasveigjur em málaðar á glugga. Víöir ljósa- hjálmar em í lofti, nokkuð famir að þreytast. Hringlaga marmaraplötur eru á borðum. Stóiar em úr sveigðum rörum. Hér er beinu linunni hafnað. Þetta er eins konar gamaldags Ungstíll, art nouveau, töluvert ofhlaðinn óviðkomandi skreytingum á borð við hvítlauks- rjnninga og kertavaxklæddar flösk- ur. Minni kröfur Matseðillinn hleypur ekki lengur milli frönsku og ítölsku. Hann er nú á íslenzku og réttirnir eru hversdags- legri en áður var. Um leið hefur kröfuharkan í eldhúsinu minnkað h’tillega. Matreiðslan er frambæri- leg, en ekki eins spennandi og áöur. Lasagne al Forno er aö vísu enn á matseðlinum, en hefur dalað. Þessir itölsku hveitirenningar með kjöthakki og tómatsósu reyndust í prófuninni vera sæmilegir, bomir fram með heitu heilhveitibrauði, krydduðu með hvítlauk og steinselju. Svipað brauð, en ekki kryddað, var borið fram með súpunum. Hvers- dagsleg seljurótarsúpa var í eitt sinniö súpa dagsins. I annað skipti varð það ljómandi góð, tær súpa með fjölbreyttu grænmeti, skemmtilega krydduð. Skelfisksúpa með þeyttum rjóma var bragðsterk og góð. Hún hafði að geyma mikið af meyrri lúðu, kræk- lingi og rækjum. Allar þessar súpur voru bornar fram í skemmtilegum skálum. Staðlaö grænmeti var með aðal- Hornsins. Pönnusteikt lúðukóteletta með ristuðum sveppum og salati var réttur dagsins í annað skiptið. Fiskurinn var fremur þurr, enda mikið eldaður og úr frystu hráefni. Pönnusteiktur hörpuskelfiskur með papriku og ananas var hins vegar hæfilega eldaður og alveg mjúkur. Ananasbitar úr dós voru óþarfir. Rétturinn var skemmtilega fram borinn í þremur hörpuskeljum, einni með skelfiskinum, annarri með hrís- réttunum, hrásalat og soðnar gul- rætur. I hrásalatinu voru tómatar, gúrka, paprika, ferskir sveppir, blaösalat og fleira, borið fram með' sýrðum rjóma. Sérkennilegt var, að í annað skiptið kom það í tvennu lagi, bæði á aðalréttadiskunum og á hliðardiskum. Líklega hefur skipu- lagið farið úr skorðum. Fiskur er ekki sterkasta hlið grjónum og hinni þriðju meö hrá- salati. Stappan heitir „mús" Djúpsteiktur kjúklingur meö rjómasósu og frönskum kartöflum var meyr og ljúfur. Rjómasósan með honum var góð tómatsósa meö sveppum. Vorrúlla var of þykk og ekki stökk. Með henni fylgdu hrís- gr jón og mild karrísósa.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.