Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.1984, Qupperneq 12
i«0rtvrm pp mtmnHAnm t vn
Nauðungaruppboð
annað og síðasta á Dofra við Vesturlandsveg, þmgl. eign Dofra, fer
fram eftir kröfu Gjaldheimtunnar í Eeykjavík o.fl. á eigninni sjálfri
þriðjudaginn 26. júní 1984 kl. 11.00.
Borgarfógetaembsttið í Reykjavík.
Nauðungaruppboð
annað og síðasta á hluta í Vesturnergi 10, þingl. eign Höliu Leifsdóttur,
fer fram eftir kröfu Veðdeildar Landsbankans, Jóns Ólafssonar,
Gjaldheimtunnar í Reykjavík og Ólafs Gústafssonar hdl. á eigninni
sjálfri miðvikudaginn 27. júní 1984 kl. 15.00.
Borgarfógetaembættið í Reykja vík.
Nauðungaruppboð
annað og síðasta á hluta í Vesturbergi 78, þingl. eign Andrésar Bertels-
sonar, fer fram eftir kröfu Veðdeildar Landsbankans, Kópavogskaup-
staðar og bæjarfógetans í Kópavogi á eigninni sjálfri miðvikudaginn
27. júní 1984 kl. 15.15.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 40., 43. og 46. tbl. Lögbirtingablaðs 1984 á hluta í
Leirubakka 12, þingl. eign Ásdísar Ernu Guðmundsdóttur, fer fram
eftir kröfu Landsbanka íslands á eigninni sjálfri miðvikudaginn 27.
júní 1984 kl. 16.15.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
Nauðungaruppboð
annað og síðasta á hluta í Laugarnesvegi 86, tal. eign Guömundar
Sigþórssonar, fer fram eftir kröfu Guðmundar Jónssonar hdl. og
Málflutningsskrifstofu Einars Viðar hrl. á eigninni sjálfri miðviku-
daginn 27. júní 1984 kl. 11.15.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
Nauðungaruppboð
annað og síöasta á hluta í Krummahólum 8, tai. eign Sæmundar Eiðs-
sonar, fer fram eftir kröfu Veðdeildar Landsbankans á eigninni sjálfri
miðvikudaginn 27. júní 1984 kl. 15.45.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
Nauðungaruppboð
annað og síðasta á Síðumúla 14, þingl. eign Blaðaprents hf., fer fram
eftir kröfu Gjaldheimtunnar í Reykjavík á eigninni sjálfri miðviku-
daginn 27. júní 1984 kl. 10.30.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
Nauðungaruppboð
annað og síðasta á Suðurlandsbraut 48, þingl. eign Skrúðgarðsstöðvar-
innar Akurs hf., fer fram eftir kröfu Gjaldheimtunnar í Reykjavík á
eigninni sjálfri miðvikudaginn 27. júní 1984 kl. 11.00.
Borgarfógetaembættið í Reykjavik.
Nauðungaruppboð
annað og síðasta á Suðurlandsbraut 12, þingl. eign Stjörnuhússins hf.,
fer fram eftir kröfu Gjaldheimtunnar í Reykjavík, Sparisjóðs
Reykjavíkur og nágrennis, Tryggingastofnunar ríkisins og Lands-
banka íslands á eigninni sjálfri miðvikudaginn 27. júní 1984 kl. 10.45.
Borgarfógetaembættið í Reykjavik.
Nauðungaruppboð
annað og síðasta á hluta í Ferjuvogi 21, tal. eign Birkis Ingibergssonar,
fer fram eftir kröfu Gjaldheimtunnar í Reykjavik, Guðjóns Á. Jóns-
sonar hdl., Landsbanka islands, Hallgrims Geirssonar hdl. og inn-
heimtustofnunar sveitafélaga á eigninni sjáifri miðvikudaginn 27. júní
1984 kl. 16.30.
Borgarfógetaembættiö í Reykjavik.
Nauðungaruppboð
annað og síðasta á hluta í Tunguseli 1, þingl. eign Júníusar Pálssonar,
fer fram eftir kröfu Gjaldheimtunnar í Reykjavík á eigninni sjálfri
miövikudaginn 27. júní 1984 kl. 14.15.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
DV. LAUGARDAGUR 23. JUNl 1984.
Breid-
síðan
íslenskrall-stúlka
gerirþað
gottíLúx:
Er stiga-
hæstí
ra//-
keppninni
KARNIVAL
r
A
ÍSLANDI?
Við Islendingar erum enn einu sinni
orðnir eftirbátar frændþjóöa okkar. Að
þessu sinni eru þaö svokölluð kamivöl
sem nú eru orðin árviss viðburður
a.m.k. í Danmörku og Noregi. Þaö er
því komin tími til að við förum að
kanna hvort ekki megi halda slíkar
hátíðir hér á landi ef við ætlum að
halda uppi viðteknum sið að apa allt
eftir frændum vorum.
En í fullri alvöm em þessi karnivöl í
svipuðum dúr og í Suður-Ameríku og
klæða menn sig í skringiföt og dansa á
götum úti undir sambatakti. Þetta
hefur gefið góða raun á þeim stöðum
sem þetta hefur verið reynt. Viö ættum
kannski að athuga þennan möguleika
fyrir næsta sumar.
FANGA-
SPAUG
Það urðu mikil fagnaðarlæti hjá
manninum sem fann miöa í umbúðum
utan af garðmublum sem hann hafði
keypt sér. Á miðanum stóð að hann
heföi unnið ferð til Kaupmannahafnar.
Maðurinn, sem býr í Norður-Noregi, varð
aö vonum ánægður og hringdi strax í
símanúmer sem gef ið var upp á miðan-
um, sagt var að hægt væri aö fá nánari
upplýsingar um vinninginn. I ljós kom
aö númerið var á slysavarðstofunni í
Osló. Þetta voru að sjálfsögðu mikil
vonbrigöi svo hann ákvað aö hringja í
verksmiöjuna sem framleiddi garð-
húsgögnin. Þar fékk hann upplýsingar
um aö hann hefði verið plataður. Hús-
gögnin eru sett saman í fangelsi einu
og höfðu nokkrir spaugsamir fangar
stytt sér stundir við að setja svona
„happdrættismiða” í pakkningarnar
og var hann ekki sá fyrsti sem hafði
orðið fyrir þessu.
AIDS
Bandarískur vísindamaöur heldur
því fram að hann hafi fundið vírusinn
sem veldur hinum ógnvekjandi sjúk-
dómi sem gengur undir nafninu AIDS
en það mun aö öllum líkindum taka
þrjú ár aö koma mótefninu í notkun.
Þessi vírus er nefndur HTLV—3 og
hefur þau áhrif að líkaminn tapar eig-
inleikanum að verjast sjúkdómum. Nú
er taliö aö um 4000 þúsund manns hafi
fengið þennan sjúkdóm. Af þeim hafa
1750 látist og flestir þeirra hafa verið
kynhverfir.
RÚSSAR OG
BIÐRAÐIR
Rússar eyða nú meiri tíma í að
standa í biðröðum en þeir gerðu fyrir
10 árum. 1 blaðinu Pravda segir að
stritið við að afla sér nauðsynja sé
byrjað að valda alvarlegu álagi á
fjölskyldur þar í landi.
Nú er svo komið aö íbúar landsins
eyða um 37 milljörðum klukkutíma í að
standa í biöröð en 1975 var þessi tala
„aðeins” 30 miiljaröar klukkutíma.
Meðal Rússi dvelur því í biðröð í 190
tíma ár hvert. Þessar tölur birtust í
grein um hjónabandserfiöleika i Sovét-
ríkjunum. Þar segir m.a. að erfiðleik-
amir samfara því aö ná sér í nauð-
synjar séu ein höfuðorsök hjónaerja og
skilnaða.
SPAKMÆLI
„Það versta er aö þegar við
eignumst foreldra eru þeir orönir svo
gamlir að það er því sem næst
ómögulegt að ala þá upp.”
STOLTUR
Jason Ellison, sem er 9 ára, þjáist af
sjaldgæfum sjúkdómi sem hefur þau
áhrif aö hann eldist mjög hratt. Nú hef-
ur hann fengiö æðsta draum sinn upp-
fylltan. Lögreglan í Salt Lake City gaf
honum fullkominn lögreglubúning. Á
myndinni sjáum við hvar lögreglu-
stjórinn hneppir síðustu tölunum á
búningnum hans.
HRAUSTAR
KONUR
Þeim konum sem líður best eiga
mann sem tekur þátt í heimilisstörfun-
um. Þetta var a.m.k. álit bandarískra
sérfræðinga sem nýlega komu saman í
New York.
Jöfnun hlutverka kynjanna hefur
jákvæð áhrif á heilsu konunnar sögðu
sérfræðingarnir og þær konur sem
vinna úti eru mun heilsubetri en þær
sem eru heimavinnandi. Og á þetta
sérstaklega við þær konur sem eiga sé'
eiginmann og börn.
Þorsteinn Tborarensen borgar-
fógeti er Kryddarahöfundur að
þessusinniogsegirhannsvofrá: >
Læknishjón hér í borg héldu fyrir
nokkrum árum matarboð fyrir
kollega, og var glaumur og gleði —
aðalrétturinn var soðið heilagfiski
með caperssósu og bragðaðist svo
frábærlega aö margar frúmar er
boðið sátu fóru að hugsa sitt. Brátt
myndi koma að einhverri þeirra aö
bjóða.
Þar kom svo að ein læknisfrúin
lét boð út ganga. Engin fyrirstaða
var á því að hún gæti náð í heilag-
fiski til matar, aftur á móti virtist
capers með öllu ófáanlegt í svip.
Var konan orðin öldungis upp-
gefin á þessu árangurslausa rolti og
veislan átti að vera sama kvöld —
tjáöi hún síðasta kaupmanninum
sem hún vitjaöi raunir sínar, innti
hann eftir því hvort hann hefði ekki
á boöstólum, eöa vissi ekki um
eitthvað sem kæmi að svipuöum
notum og capers og væri svipað því
í útliti. Kaupmaöur varð hugsi.
„Númér dettur helst í hug að þér
reyniðfuglahögl.”
„Já, í guðanna bænum —”
„Ja, ég sel þau nú ekki sjálfur en
það væri reynandi að spyrja
Kristján í Goöaborg — það er neðst
á Freyjugötunni, það er mjög lík-
legt að hann geti selt yður
eitthvað.”
Konan flýtti sér í Goðaborg, fékk
höglin, fór undireins heim til sín að
matbúa. Þegar tími var kominn
var sest til borðs og var mikil lukka
og móttökur rómaðar á allan veg.
Daginn eftir hittust þeir á götu,
vertinn frá því kvöldinu áður, og
starfsbróöir hans er setiö haföi
boðið með konu sinni.
„Hjartanlega. þakkir fyrir gær-
kvöldið, elskuiegi kollega, — og
þessar stórkostlegu veitingar."
„Ja, það er sannarlega sjálf-
þakkað, — nú vona ég að ykkur
hjónum hafi bragðast það sem
framvarreitt?”
„Skyldi það vera — það var nú
ekki nein ómynd frekar en vant
er.”
„Var þaö? — þaö gleöur mig
sannarlega —
Er hér var komiö fór boðs-
gesturinn að kíma, brátt var svo
komið að hann skellihló.
„Ja, það er ekki öll vitleysan eins
— þegar við komum heim í nótt,
var kötturinn okkar að flækjast í
forstofunni við fætuma á okkur, nú,
konan var að bisa við að komast úr
bomsunum — það ætlaði ekki aö
ganga vel — allt í einu skaut hún
köttinn—.”
Þorsteinn skorar á Boga
Ingimarsson lögmann til að verða
næsta frásögumann.