Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.1984, Síða 14
14
DV. LAUGARDAGUR 23. JUNI1984.
ROKKSPILDAIM
ROKKSPILDAN
Þorsteinní
Upplyftingu
Þorsteinn Magnússon, fyrrum
meölimur Þeys, Frakkanna og
nokkurra annarra hljómsveita
mun starfa með hljómsveitinni
Upplyftingu í sumar og er hann
m.a. meö á nýrri plötu hennar sem
væntanlega kemur út innan
skamms.
Eftir því sem RS kemst næst
mun Þorsteinn hafa verið oröinn
þreyttur á „hugsjónaglamrinu” og
ákveöiö aö hafa soldinn pening út
úrsumrinu.
-FRI.
Dúkkulísurnar
með plötu
Kvennahljómsveitin Dúkkuh's-
umar hefur sent frá sér sína fyrstu
stóru plötu en þaö er Skífan sem
gefur út.
Dúkkulísurnar eru nú besta
kvennahljómsveit landsins og hafa
þær vakið veröskuldaöa athygh,
m.a. hefur verið sagt um þær aö
þær séu eins og Grýlurnar heföu átt
aö vera. Fyrsta platan ber einfald-
lega heitiö Dúkkuhsumar en þær
munu fylgja henni eftir meö ýmsu
mótiísumar.
Hæfileikakeppn-
innivarfrestað
Hæfileikakeppninni sem átti aö
vera í Safari á fimmtudagskvöldiö
var frestaö um viku vegna þess að
Viöar, eigandi umboðsskrifstofunnar
Sóló, var í för meö Bubba Morthens í
tónleikaferöalaginu á Austf jöröum.
Stuðmenn i„rúmfötunum" frá SeglagerðinniÆgi.
DV-mynd Bj. Bj.
Sex þúsund sálir í Laugardalshöll 17. júní eða:
ROKKSPILDAN
umsjón
Friðrik Indriðason
„ÞU GETUR GERT ÞAÐ
HVAR SEM ER”
I sumar verður hljómsveitin
Einsdæmi endurreist en hún
starfaði á Austurlandi á árunum
áður viö miklar vinsældir heima-
manna.
Einsdæmi mun hafa aðsetur á
Seyðisfirði en hana skipa nú Oiaf-
ur Már Sigurðsson á bassa, Gylfi
Gunnarsson söngur, Grétar örv-
arsson á hljómborð, og Arni Ás-
kelsson á trommur.
Einsdæmi lék í gærkvöldi í
Herðubreið á Seyðisfirði en í
kvöld er hún í Félagslundi á
ReyðarfirðL
Sex þúsund sálir, ráfandi um sali
Laugardalshallarinnar, sex þúsund
sálir í leit að þjóðhátíðarstemmn-
ingunni, sex þúsund sálir öskrandi,
hoppandi, syngjandi, klappandi,
stappandi, sex þúsund sálir á gelgju-
skeiðsaldrinum er br jálæði.
RS kom aðeins við á Lækjartorgi
skömmu fyrir miðnættið enda ætlunin
að kanna tónhstarþátt þjóðhátíðardag-
sins af dýpt. Þar var HLH—flokkurinn
í fuUum gangi með einhvem gamlan
siagara, strákarair prúðir og penir í
bleiku þjóöbúningunum sínum en auk
þeirra tróðu upp á torginu Magnús
Kjartansson og hljómsveit og fleiri en
aUt þetta gamla sett má afgreiða með
orðinu: „Venjulegt” og jafnvel sú
lýsing er „djúp” hvernig sem litið er á
það orð.
Til að komast sem næst „liðinu”,
sem mætti svo í LaugardalshöU, tróð
RS sér inn í einn strætisvagninn sem
stóð í selfiutningunum frá torgi og upp
í Höll. Þar voru auk undirritaðs um 70
unglingar, flestir vel ölvaðir, og
glumdi lagið „Hæ hó jibbý jæ jó”....
eða eitthvað á þá leið, aUa leiðina upp-
eftir. Þrengslin svo mikU að líkingin
eins og sUd í tunnu fölnaði. Líðan
manns betur lýst sem rækjusamloku
pakkaðri í tvær glerplötur og ef vagn-
inn bremsaði snöggt var maður um
leið kominn með 4—6 ungUnga í fangið
og þjóðhátíðarbúning ársins í andUtið
en hann reyndist að þessu sinni vera
höfðufat gert úr spöng með tveimur
mjóum gormum á sem enduðu í marg-
víslega lituðum f jaðrabrúskum.
Mannfjöldinn í Höllinni var svo
mikill að við lá að staöurinn spryngi á
saumunum þannig að „rækjusamloku-
líkingin” átti jafnvel við þar og í
strætó.
Magnaðir Stuðmenn
Fyrsta hljómsveit kvöldsins var
Baraflokkurinn frá Akureyri sem
hefur sjaldan verið betri, hljóðburður-
inn eins og hann gerist bestur og pró-
grammið hæfileg blanda af gömlum og
nýjum lögum flokksins auk gamaUa
rokkslagara sem gengu inn um
skilningarvit viöstaddra, þ.e. þeirra
sem ekki voru aö brjóta niöur anddyri
staðarins er hér var komið sögu
eða höfðu hörfað í keliríið á efstu
svölum Hallarinnar.
Stuðmenn verður að telja hljóm-
sveit kvöldsins, hreint magnaðir í
„rúmfötunum” frá Seglagerðinni Ægi.
Prógrammið spannaði ferii þeirra aUt
frá byrjun, auk efnis sem ekki hefur
heyrst frá þeim áður eins og lagið ,,Þú
getur gert það hvar sem er” og „Hevy
Metal”, svo dæmi séu tekin, en hið
síðamefnda var nokkuð hugguleg
paródía á þungarokk. Að ööru leyti
var prógramm þeirra byggt upp af
kunnum lögum eins og „Islenskir karl-
menn” en Stuðmenn voru ákaft
klappaöir upp og aukalag þeirra var
„Fljúgðu” tileinkað slökkviUðs-
mönnunum á svæðinu sem EgiU benti á
að fljúga á brott eftir að þeir höfðu
stoppað Guðjón Petersen úr Svart og
sykurlaust þar sem hann var í óða önn
aö spúa eldi fremst á sviðinu í lok leiks
Stuömanna.
Þótt Svart og sykurlaust hafi ekki
látið mikið á sér bera í HölUnni eftir
ágæta frammistöðu niðri í bæ brugöu
nokkrir Stuömenn sér í smáglens er
þeir Valgeir, Tómas, Þóröur og Ásgeir
komu fram sem skólahljómsveit
Réttarholtsskóla og tóku nokkur
Shadows-lög viö góðar undirtektir
þeirra sem komnir voru til vits og ára.
Bjartasta vonin?
EgUl Olafsson kynnti síðustu
hljómsveit kvöldsins, Pax Vobis, sem
efnilegustu hljómsveit okkar í dag og
vissulega má varpa fram þeirri spurn-
ingu hvort Paxiö sé ekki bjartasta
vonin í rokktónlistinni í dag? Hreint
frábært „tölvupopp” þar sem hröð og
ýtin hrynjandi trommu- og hljóð-
gervUs smaU saman við „gítar og
bassariffin” eins og best veröur á kosiö
í þessari tegund tónlistar.
—FRI
Hljómsveitin Egó breytir um nafn og verður:
ÓÞEKKT ÁNÆGIA
Hljómsveitin Egó hefur nú
breytt um nafn og hér eftir kemur
hún tU með aö heita „Oþekkt
ánægja” en eins og fram kom í við-
tali í RS við þá Rúnar og Bergþór
fyrr í vor var þessi nafnabreyting í
bígerö eftir að Bubbi Morthens gekk
úrsveitinni.
Fyrir utan þá Rúnar, Bergþór og
Gunnar, sem voru í Egó fyrir, eru
þeir Sævar (úr Spilafíflum) og Berg-
steinn (úr Jonee Jonee) gengnir í
Oþekkta ánægju. Sá fyiraefndi mun
þenja raddböndin með sveitinni en
sá síöamefndi lemur húðirnar.
Æfingar hafa verið í fuUum gangi
að undanfömu hjá sveitinni og að
sögn Rúnars er að komast nokkuð
góð mynd á nýtt prógramm þeirra.
Ætlunin var að þeir kæmu fram á
hljómplötuhátíð Steina í Broadway
en það breyttist á síðustu stundu.
—FRI