Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.1984, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.1984, Blaðsíða 18
 öld eftir aö Sherlock Holmes og Watson félagi hans skutu fyrst upp kollinum í London virðist áhuginn á þeim félögum ekkert í rénun. Tímabilið milli 1882 og 1890, samkvæmt greinargerð Watsons, var hið annasamasta á ferli leynilögreglumannsins. Gamaldags göngustafur hafði áletrunina 1884. Sherlock Holmes ályktaði að hann væri í eigu læknis á Charing Cross spítalanum sem ætti hund sem væri nokkuð minni en enskur hundur. Þetta varð upphafið að einu frægasta máli þeirra félaga: Baskervillehundinum. Nú sitja breskir límdir við sjónvarpstæki sín í hverri viku og horfa á þætti um hundinn og fleiri mál sem eru leyst af þessum fræga rannsóknarmanni. Á hverju sumri kemur straumur gesta hvaðanæva að úr heiminum til London að svipast um á Baker Street 221 b. Margir leita þar heimilda um leynilögreglumann sem var til í raunveruleikanum. Goðsögnin „Hvar er Sherlock Holmes þá grafinn?” sagði lítill drengur nýlega við ömmu sína þar sem þau voru komin meö neðan- jarðarlest í útjaöar Regents Park þar sem svo mörg ævintýra Holmes byrja. „Einhvers staðar hérna, held ég,” svaraöi amman sem hlýtur að hafa veriö enn á lífi þegar Holmes sneri aftur eftir að hafa, að því er virtist, dáið í Reichenbach Falls í Svisslandi. London hlúir að goðsögninni um Holmes og gestir geta skoðað Tubes, fallega endurbyggða járnbrautarstöö sem er mjög áþekk því sem var í janúar 1863 þegar fyrstu neðan- jarðarjárnbrautin byrjaði að fara um. Steinhleðslur hafa verið hreinsaðar upp og upprunalegar holur fyrir lofthreinsun eru með gerviljósi fyrir ofan þannig að það lítur út eins og dagsbirta skíni í gegnum þær. Myndir og ýmislegt fleira er þar sem minnir á Viktoríutímann. 884 varð hann tíl 1 nýrri hlutum stöðvarinnar er hinn auðþekkjanlegi vanga- svipur Holmes meðal annars greyptur í veggflísarnar. Á Bakerstræti er Moritarty-veitingastaður. Moritarty var eins og menn muna erkióvinur Holmes. Tannlæknir með því sama nafni rekur tannlæknastofu í Watsóns Chambers. Þrátt fyrir allt eru samt léttivagnamir horfnir og það eru engin merki um hinn fræga bústað Holmes við Baker Street. Þar sem Baker Street 221b ætti að vera eru verkamenn nú að ljúka við að byggja stórt skrifstofuhúsnæði. Enn berast bréf víðsvegar að úr heiminum þar sem spurst er fyrir um glæpa- rannsakandann, og eigendur staðarins senda kurteislegt bréf til baka þar sem það er harmaö að Holmes búi ekki lengur á þessum slóöum. Árið 1884 var mikilvægt í sögu skapara Holmes. Það ár varð Holmes og félagar hans til. Conan Doyle var fátækur læknir í Southsea. Talið er að ráðs- kona hans hafi verið fyrirmynd frú Hudson. I fyrstu heimsókn hans í bókmennta- og vísindaklúbb staðarins hitti hann dr. James Watson sem síðar varð formaður samtakanna. Sagt er að þaðan sé runnið nafnið á aðstoðarmanni Holmes. Krikketleikarar sem hétu Watson, Mycroft og Shacklock léku í skírisliðinu og Conan Doyle kýldi á móti uppgjöf Skacklocks eitt sinn. Hann sagði síðar að sig hefði minnt aö hann héti Sherlock. Mycroft varð nafnið á bróður Holmes í utanríkis- ráðuneytinu. Sjónvarpsþættír Eftir öld frá því að þessi manngerð var sköpuð eru vinsæld- irnar enn slíkar að Grenada sjónvarpsstöðin eyddi 250.000 sterlingspundum í aö endurgera Bakerstræti fullkomlega með strætisvögnum, dregnum af hestum og Hackney kerrum. Holmes aðdáendur gefa Jeremy Brett, sem leikur leyni- lögreglumanninn í nýjustu sjónmyndun sagnanna, toppeink- unn. Hann er hávaxinn og hárið strokið aftur. Taugaveiklun má lesa af handahreyfingum og hann er kuldalegur í viðmóti við viðskiptavini. Þetta fellur vel að þeim hugmyndum sem menn gera sér um Holmes. Aðdáendur Holmes sagnanna líkja Brett við Basil Rathbone sem er sennilega einn frægasti kvikmynda-Sherlock allra tíma. Peter Cushing og Cristoper Lee hefur einnig þótt takast allvel upp í gervi meístaraleynilögreglumannsins. Sá sem leikur nýjustu Watson-útgáfuna leggur áherslu á hann sem tryggan og umhyggjusaman vin sem stundum gagn- rýnir Holmes en ekki hálfhlægilegan gervihermann eins og Nigel Bruce gerði í kvikmyndum. Holmes segir aldrei: „Einfalt, kæri Watson,” því að þrátt fyrir að það sé almennt talið, þá sagði hann það aldrei í neinni sögu Conan Doyles. Brett, sem nú leikur Holmes, viðurkenndi í viðtali að hann hefði orðið skelfingu lostinn þegar hann var beðinn að leika þetta hlutverk. Eg er 117. maðurinn sem leikur þetta hlutverk,” sagði hann. „Hvað á ég að gera? ” Sköpunarverk Conan Doyles gaf leynilögreglusögunum nýja vídd. Á eftir honum komu röö stælinga og háðfærslna eins og Hemlock Jones eftir Francis Brett Harte. Aðrir höluöu inn fé á æðinu sem greip um sig eins og James Barry, Mark Twain, Agata Christie og Ellery Queen. Sheriock Holmes (Basil Rathbonel utskynr það fyre lotningarfulkim Watson lækni (Nigel Bruce) að eitthvað sé ekki sem skyldi með styttuia sem þeir standa við. Hundrað ár f rá sköpun Holmes: „Einfalt.kæri Watson”

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.