Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.1984, Page 19

Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.1984, Page 19
DY, JUAUGARPAUUB 23..JtINI1981 ,19 JAFNRÉTTISBARÁTTA Nýlega sótti ég fund nokkum og naut þess verulega að sitja innan um kyn- systur mínar á öllum aldri, hlusta á skvaldrið í þeim og leggja orð í belg. A fundinum átti að fjalla um sérstakt málefni, sem var og gert, en ekki leið á löngu þar til „baráttan á milli kynj- anna” varð efst á baugi. Þessar samræður um jafnrétti urðu á köflum mjög háværar og stundum fannst mér þær bera keim af kröfum um forrétt- indi og það lá við að mér væri skemmt, þegar ég hefði kannske frekar átt að vera alvarleg vegna þunga máisins. Ég er ákaf ur og æstur stuðningsmað- ur þess stóra og umfangsmikla máls . aö konur fái samu laun og karlar og aö allir launataxtar þeirra séu samræmd- ir upp á krónu. Sem sagt, enginn mismunur á milli kynjanna hvað laun- in og ýmiskonar hlunnindi, fyrir- greiðslur og styrki snertir. Það er ekki nema sanngjarnt og stórt baráttumál. Það er réttlætismál. Lengra nær áhugi minn ekki í þess- ari jafnréttisbaráttu. Mér hefur ávallt samið vel við hitt kyniö og kann oft á tíðum vel að meta dynti þess. En þarna sat ég nú og hafði augu og eyru opin og var hress og kát yfir öllu sem ég sá og heyrði. Að lokum fór ég þó að veröa óhress með orö og setningar sem flögr- uðu á milli fundargesta og gerði þá sífellt háværari og æstari. Umræðuefniö var starf konunnar innan f jögurra veggja heimilisins. Það var ólaunaö, lítilsviröandi og leiðin- legt. Forheimskandi að þvo upp, þurrka af og ryksuga. Eða að láta óhreinan fatnað í þvottavélina. (Eg viðurkenni að þaö getur stundum verið hvimleitt en þá er um að gera að hugsa. um eitthvað f allegt á meðan.) Já, margt var talað og þetta var ein: endalaus upptalning tjóðraðra kvenna við heimilisstörf. Hreinsa óhreinindi undan fjölskyldunni, sem veitir enga aðstoð... niðurlægjandi allt saman... Það fór verulega um mig og um tíma lá við að ég skammaðist mín sáran fyrir að vera „bara húsmóðir”, og vera nauöbeygð til þess að sinna þessum klafa heimilisstarfa frá morgni til kvölds, já, og jafnvel á nótt- unni líka. En þessi vanmáttartilfinning min fauk út í veður og vind þegar ég sá f jöl- skyldu mína í huganum, sæla og ánægða, og hve hún naut þess að koma heim og vera heima. Það vissi ég vel, vegna þess að hún gaf mér það svo augljóslega til kynna með stóru brosi og framkomu sem verður ekki misskil- in, heldur segir sína sögu um það, hvað friður og öryggi heimilisins er stór þáttur í líf i allra einstaklinga. Eg varð stolt með mitt húsmóður- starf og naut þess að koma heim úr ys og þys fundarins, með uppfullan hug- ann af öllu því sem ég ætlaði að gera fjölskyldunni til góös á komandi degi. Sigrún Schneider. L3 VIKAN EITTHVAÐ FYRIR ALLA BÍLASÝNING Nýir og notaðir bílar til sýnis og sölu í DAG FRÁ KL. 1-4. Tökum vel með farna Lada upp í nýja. INIÝJA LADAN Verð við birtingu auglýsingar kr. 219.000,- Lán 110.000,- Þér greiðið 109.000,- VERÐLISTI YFIR LADA BIFREIÐAR Lada 1300 Safír Lada 1500 station Lada 1600 Canada Lada Sport kr. 185.000,- kr. 199.000,- kr. 210.000,- kr. 304.000,- Bifreiðar & þjónusta Landbúnaðarvélar hf. SUÐURLANDSBRAUT 14, SÍMI 38600 Söludeild sími 312 36 LADA- bílar hafa sannað kosti sína hér á landi sem sterkir, öruggir, gang- vissir, ódýrir í innkaupi, með lítið viðhald og ódýra varahluti og ekki síst fyrir hátt endursölu- verð. Nú hefur útliti og innróttingum verifl breytt svo um munar: mœlaborð, stýri, stólar, aft- ursæti, grill, húdd, stillanlegir speglar innan frá, stuflarar o.fl. o.fl., en sífellt er unnið að endurbótum er lúta afl öryggi og endingu bílsins. 6 ára ryðvarnarábyrgfl. mftftttntmm* •Hiniimimnit Þýskunám í Þýskalandi! Skrautfjöður í lífshattinn Þýskunámskeið ó öllum stigum. Kennt er i litlum hópum, mest 10 nemendur. Skólinn stendur i skemmtilegu hallarumhverfi. IMú námskeið i hverjum mánuði. Auk þess er haldið sumarnámskeið i Konstanz-háskóla. Skrifið og biðjið um upp/ýsinga- bækling. Humboldt-lnstitut Schloss Ratzenried, D-7989 Argenbúhl. Simi 9049 7522-3041. Telex 732651 humbo d. ofnhitastillir einhver besta iausn orkusparnaðar. Þeir margborga sig. Danfoss ofnhitastillir er svarið við hækkun á verði heita vatnsins. = HÉÐINN = SELJAVEGI 2, REYKJAVÍK. SUNDLAUGAR ALLT TIL SUNDLAUGA KLÓRTÖFLUR 0G DUFT SÚLUMENN MEÐ SÉRÞEKKINGU (A Gunnar Ásgeirsson hf. Suöurlandsbraut 16 Simi 9135200

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.