Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.1984, Side 20

Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.1984, Side 20
20 DV. LAUGARDAGUR 23. J0NI1984. 10. sölusumar okkar er gengið í garð og við bjóðum enn á ný vönduðu dönsku hústjöldin frá Trio Sport, 2ja — 6 manna. Þau eru framleidd úr litekta og vatnsheldum baðmullar- dúk. Gott verð — Viðgerðar- og varahlutaþjónusta — Greiðslukjör. Sendum myndalista. TJALDBÚÐIR HF. SÍMI 44392, Geitháisi. FJÓRÐUNGSMÚT HESTAMANNA Á VESTURLANDI A KALDÁRMELUM 5,8. JÚLÍ1984. Kynbótasýningar, gæðingakeppni, kappreiðar, unglingakeppni, hópsýningar ræktunarbúa, kvöldvökur og dansleikir að Breiða- bliki föstudags- og laugardagskvöld, rútuferðir frá mótsstað og rútuferð frá BSÍ, Reykjavik, kl. 19.00 föstudagskvöld og til baka sunnudag kl. 19.00. Góð tjaldstæði í fallegu umhverfi, veitingasala alla dagana, ve slun með matvöru og reiðtygi verður á mótsstað. DAGSKRÁ: Fimmtudagur 5. júlí kl. 13.00 Kynbótahryssur, einstaklingar, dæmdar samkvæmt skrá. kl. 14.00 B-flokkur gæöinga dæmdur. kl. 17.00 Eldri flokkur unglinga dæmdur, 13—15ára. Föstudagur 6. júlí kl. 9.00 Stóöhestar, einstaklingar, samkvæmt skrá og af- kvæmahópar dæmdir. kl. 10.00 Yngri flokkur unglinga dæmdur, 12 ára og yngri. kl. 14.00 A-flokkur gæðinga dæmdur. kl. 14.00 Hryssur með afkvæmum dæmdar. kl. 18.00 Undanrásirkappreiða: : 250 m stökk 350 m stökk 800 m stökk 800 m brokk kl. 21.00 Kvöldvaka — töltkeppni. Laugardagur 7. júlí kl. 9.00 Kynning á eldri flokki unglinga. kl. 9.30 Kynning á yngri flokki unglinga. kl. 10.00 Kynning á B-flokki gæðinga. kl. 11.00 Kynning á A-flokki gæðinga. kl. 12.45 Mótið sett, Stefán Pálsson, formaður L.H. kl. 13.00 Sýndir stóðhestar samkvæmt skrá. kl. 14.30 Sýndar hryssur samkvæmt skrá. kl. 17.00 Sýndir ræktunarhópar. kl. 18.00 Milliriðlarkappreiða: 150 m skeið 250 m skeið Milliriðlar í stökki ef þarf. kl. 19.00 Sölusýning, hross kynnt í dómhring. kl. 21.00 Kvöldvaka Sunnudagur 8. júlí kl. 11.00 Hópreiðaðildarfélaga. kl. 11.15 Helgistund. kl. 11.30 Ávarp, Ásgeir Bjarnason, formaðurB.l. kl. 12.00 Stóðhestar sýndir og dómum lýst, verðlaun afhent. kl. 12.45 Verðlaunaafhending í unglingakeppni. kl. 13.30 Hryssur sýndar og dómum lýst, verðlaun afhent. kl. 15.00 A-flokkur gæöinga, úrslitakeppni, verölaun afhent. kl. 15.45 Sýndir ræktunarhópar. kl. 16.15 B-flokkurgæðinga,úrslitakeppni,verðlaun, afhent. kl. 17.00 Kappreiðar úrslit. 150 m skeið 250 m skeið 250 m stökk 350 m stökk ■ 800mbrokk 800 m stökk. kl. 18.00 Dregið í happdrætti mótsins. Mótsslit. Fjölmenni var á Búðum þegar D V bar að garði fyrir nokkru. Stúikur voru i brennó. \irniti „Hér er nafli íslenskrar náttúru,” sagði Sigríður Auöuns, einn af eigend- um gistihússins á Búöum á Snæfells- nesi, þegar DV staldraði þar við á dögunum. Hún mælti orö aö sönnu. Á Búðum er tilkomumesta skelja- sandsfjara á Islandi, GuDströndin, og hvergi er útsýni til Snæfellsjökuls betra en einmitt þaðan. Fjölbreyttur og þroskamikill gróður setur svip sinn á Búðahraun, en það er víöa allúfið og í því eru skvompur og kvosir. Ur gígn- um Búöakletti á samkvæmt þjóðsögn að liggja neðanjarðargangur til Surts- hellis í Borgarfirði. I hellisbotninum ku vera gullsandur. Á Búðum er eitt elsta hús á landinu, byggt 1836, og í því hófst gistihúss- rekstur 112 árum síðar. Fyrir þremur árum keypti ungt fólk frá Reykjavík húsið og starfar sjálft við reksturinn á sumrin. „Þetta er fólk úr öllum áttum,” sagði Sigríður. „Einn er vef- ari, annar kennari, þriðji kokkur, svo er listamaður og sjúkrahði...” Eigend- ur eru sjö talsins, en oftast vinna níu manns við hótelið. Þau sofa lítið en vinna þeim mun meira. „Jökullinn sendir kraft sinn yfir okkur,” sagði Sigríður. „Hann hefur ótrúlegt seiðmagn. Gestir hótels- ins koma til dæmis yfirleitt aftur.” Hótel Búðir gista milli 40 og 50 manns og er nýtingin góö að sögn Sigríðar. Áður var verslunarstaður á Búðum og gengu skip inn í Búðaós. Hélst verslun þar allt fram á síöustu öld en lagðist þá niður. Myndast hafði lítið þorp á Búðum áður en yfir lauk, en hóteliö er eina húsið sem eftir stendur. Fallegt útsýni er úr setustofu hótelsins. Eigendur hótelsins dreymir um að endurbyggja þorpið og færa Búðir í upprunalegt horf. „Það mætti gera með því að byggja lítil hús, eins og þau voru fyrir aldamót, og leigja út til gist- ingar.” Draumurinn er að byrja að verða að veruleika. Smábátafélagið í Staðar- sveit og Breiðuvíkurhreppur létu ný- lega endurbæta höfnina á Búðum. Nú er ekkert því til fyrirstöðu að smábáta- eigendur sigli til Búða og spari sér þannig aksturinn. Tveir eigendur hótelsins eiga einn bát og róa til fiskjar úr ósnum, en sjávarréttir eru sérgrein kokksins á Búðum og þykja með ein- dæmum ljúffengir. „Við reynum að elda svolítið sérstakan mat,” sagði Sigríöur. „Hver réttur er eldaður sér- staklega og leitast við að hafa þjónust- una ívið persónulegri en gengur og ger- ist.” Að sögn Sigríðar er algengt að fólk frá höfuöborgarsvæðinu leggi leið sína til Búöa til að snæða góöan mat í rólegu umhverfi. Þá kunna nærsveitarmenn einnig vel að meta starfsemina á Búðum og eru þeir ánægðir með upp- bygginguna sem þar á sér stað. Það er skiljanlegt. EA HOTELBUÐIR: INAFLA HÓfnin i Búðarósi var dýpkuð nýlega. Nú er ekkert því til fyrirstöðu að smábátaeigendur sigli a staðinn. D V-myndir: Arinbjörn.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.