Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.1984, Síða 22
22
DV. LAUGARDAGUR 23. JUNI1984.
Hverja telurðu möguleika
KR-inga á íslandsmeistara-
titlinum í ár?
JónSigurðsson:
Sum léleg lið hafa góða menn og
sum góð lið hafa lélega menn og
öfugt og hef ég þá trú að KR-ingar
falli í aðra deild en að Vikingar nái
sínu gamla formi á ný og verði Is-
landsmeistarar enn einu sinni.
Guðlaugur Sigurðsson:
Ekki mikla, ég held jafnvel að
þeir skipti um deild við IBV í haust.
Gunnar Þ. Indriðason:
Þeir falla ekki í aðra deild og þar
sem ég er nýfluttur í vesturbæinn
vona ég að þeir geri það ekki. En ef
þeir fara að spila sóknarbolta þá
mun hagur þeirra vænkast.
Frömurum mun hins vegar
ganga vel og veröa í efri kanti.
Bragi Másson:
Eg hef litla trú á að þeir vinni en
þeir gætu náð langt í Evrópu-
bikarnum.
Bessigæ:
Mjög litla, sérstaklega þar sem
Valsmenn eru farnir að vinna. Sem
vesturbæingur vona ég að þeir
haldi sér í deildinni og gott betur.
Þuríður Krístjánsdóttir:
Þeir verða nálægt botninum og ég
býst alveg eins við að þeir falli.
KR- KR- KR- KR- KR- KR- KR- KR- KR- KR- KR- KR- KR- KR-
„Auðvitað er ég hræddur
um að KR-liðið falli”
— segir Bjami Felixson, íþróttaf réttamaður sjónvarps
„Eg hef orðið fyrir vonbrigðum með
mína menn í sumar. Ég bjóst reyndar
ekki við miklu af liðinu fyrir Islands-
mótið, var ekki vongóður fyrir tímabil-
ið,” sagði Bjarni Felixson, íþrótta-
fréttamaöur sjónvarpsins, í samtali
við DV, aðspurður um KR-liðið.
„KR-liðiö er ekki eins heilsteypt lið
og það var í fyrra en þrátt fyrir þaö
geta leikmenn liðsins meira en þeir
hafa sýnt það sem af er sumri. Leik-
menn liðsins verða að skilja aö til þess
að vinna leiki þarf að berjast og hafa(
fyrir hlutunum. Ef þeir fara ekki að
gera sér grein fyrir þessu er ég and-
skoti hræddur um að þeir falli. Ég
bjóst við aö liðið yrði um miöja deild
áður en mótið hófst en eins og staðan
er í dag er ég auðvitaö hræddur um að
liðiðfariniður.”
Á hverja veðjar þú sem Islands-
meistara?
„Ég hef áður lýst því yfir að ég tel að
Skagamenn séu með besta liðið og ég
er ennþá sömu skoðunar. Þeir hafa
mikinn og góðan mannskap og flestir
leikmenn sem léku með liðinu í fyrra
eru áfram í liðinu í sumar. Eg hef þá
trú að þeir verði illstöðvanlegir í bar-
áttunni um Islandsmeistaratitilinn,”
sagði Bjarni Felixson.
Bjarni lék sem kunnugt er um árabil
með KR-liðinu sem bakvörður og sex
sinnum var hann valinn til að leika
með landsliðinu í knattspymu. —SK.
Bjami Fellxson, hefur leikið sex lands-
leiki fyrir íslands hönd.
„Of mörg jafntefli”
—segir Víðir Sigurðsson, íþróttaf réttamaður Þjóðvil jans
„Miðað við stöðu KR-liðsins í 1. deUd
getur liðið vart tekið stefnuna nema
upp á við. KR-ingar hafa verið mjög
óheppnir með meiðsU og þeir hafa
notað 22 leUonenn í siðustu 7 leikjum
sinum,” sagði Víðir Sigurðsson,
íþróttafréttaritari á ÞjóðvUjanum, i
samtaU við DV.
„KR-liðið hefur gert óhemju mikið af
jafnteflum í leikjum sínum og það er
fyrst og fremst afleiöing af þeirri
varnartaktik sem Uðið leUcur. A
16 AR FRA SIÐ-
ASTA TITLI
— KR varð fyrst íslandsmeistari
1912 ogsíðast 1968
___. KR-ingar hafa tuttugu sinnum orðið
sigurvegarar í 1. deUd síðan Uðlð tók
fyrst þátt í islandsmótinu í knatt-
spymu árið 1912.
Aðeins einu sinni á þessum langa
tíma hefur liðið faUið í 2. deUd, það var
árið 1977 og árið eftir sigraði félagið í,2.
deUd.
KR-ingar urðu fyrst Islandsmeistar-
ar 1912 og síðast 1968. Það eru því 16 ár
síðan félagiö varð síðast Islandsmeist-
ari og finnst mörgum áhangendum
liösins kominn tími tU að vinna titilinn
áný. -sk.
Leikmenn KR1984
Ágúst Már Jónsson, 23 ára, tengUiður. Lék fyrst í mfl. 1979, 76 leikir og 7
mörk.
Bjöm Rafnsson, 20 ára, framherji. Lék fyrst í mfl. 1982, 15 leikir og 1
mark. 4 u-landsl.
Elias Guðmundsson, 26 ára, framherji. Lék fyrst í mfl. 1979, 74 leikir og 8
mörk.
Erling Aðalsteinsson, 24 ára, framherji. Lék fyrst í mfl. 1980,41 leikur og 6
mörk.
Guðjón HUmarsson, 27 ára, bakvörður. Lék fyrst i mfl. 1974,185 leikir og 3
mörk. 7 u-landsl.
Gunnar Gislason, 23 ára, tengiUður. NýUði með KR, 3 leikir og 2 mörk. Lék
áður með KA (120 leikir) og Osnabrack. 10 landsleUdr, 1 u. 21 landsl., 2 u-
landsl. og 3 d-landsl.
Hannes Jóhannsson, 19 ára, miðvörður. Nýliði i mfl. 3 u-Iandsl.
Halldór Pálsson, 26 ára, markvörður. Lék fyrst í mfl. 1975,29 leikir.
Haraldur Haraldsson, 28 ára, miðvörður. Nýliði með KR, 4 leikir. Lék
áður með KA (220 leikir).
Helgi Þorbjömsson, 21 árs, tengiUður. Lék fyrst í mfl. 1981, 31 leikur og 2
mörk.
Jakob Pétursson, 28 ára, bakvörður. Lék fyrst í mfl. 1982,47 leikir.
Jón G. Bjaraason, 22 ára, framherji. Lék fyrst í mfl. 1982, 29 leikir og 1
mark. 3 d-landsl.
Jósteinn Einarsson, 22 ára, miðvörður. Lék fyrst i mfl. 1978,112 leikir og 7
mörk. 3 u-landsl.
Ómar Ingvarsson, 26 ára, framherji. Nýliði með KR, 2 leikir. Lék áður
með ÍBK (75 leikir) og UMFN.
Óskar Ingimundarson, 25 ára, framherji. Lék fyrst í mfl. 1981,76 leUdr og
22 mörk. Lék áður með KA.
Ottó Guðmundsson, 29 ára, miðvörður. Lék fyrst í mfl. 1971,264 leikir og 15
mörk. 3 landsl. og 7 u-landsl.
Ragnar Gunnarsson, 22 ára, bakvörður. Lék f yrst í mfl. 1981,6 leikir.
Sigurður Heigason, 25 ára, framherji. Lék fyrst i mfl. 1982, 2 leikir og 2
mörk. Lék áður með Fylki.
Sigurður Indriðason, 31 árs, bakvörður. Lék fyrst i mfl. 1971, 243 leikir og
21 mark.
Stefán Jóhannsson, 22 ára, markvörður. Lék fyrst í mfl. 1980, 85 leikir. 1
landsl., 1 u. 21 landsl., 3 u-landsl. og 4 d-landsl.
Stefán Pétursson, 19 ára, miðvörður. Lék fyrst í mfl. 1983, 7 lelkir. 5 u-
landsl. og 2 d-landsl.
Sverrir Herbertsson, 26 ára, framherji. Lék fyrst með mfl. 1976, 106 leikir
og 40 mörk. Lék með Vikingi 1981—83.
Ssbjöra Guðmundsson, 23 ára, tengiliður. Lék fyrst í mfl. 1978,123 leikir
og 11 mörk. 1 landsl., 1 u. 21 árs landsl., 3 u-landsl. og 4 d-landsl.
Sævar Leifsson, 20 ára, bakvörður. Lék fyrst með mfl. 1983,6 leikir.
WUlum Þór Þórsson, 21 árs, framherji. Lék fyrst í mfl. 1981, 55 leikir og 7
mörk. 3 d-landsl.
Hólmbert Friðjónssoner þjálfari meistaraflokks.
Birgir Guðjónsson er aðstoðarþjálfari meistaraflokks.
Sigþór Sigurjónsson er liðsstjóri meistaraflokks.
Leikjaf jöldi og skomð mörk miðast við upphaf tslandsmóts 1984.
rúmum tveimur árum hefur liðið leikið
43 leiki og 24 sinnum hefur orðið jafn-
tefli.
Mér hefur aUtaf fundist furðulegt
hvað mönnum eins og Sæbirni
Guömundssyni og Jóni G. Bjamasyni
hefur verið haldið utan við liðið. Jón
hefur mikla boltatækni og hugsun en
hvorugur þessara kosta hans hefur
fengið aö njóta sín hjá KR.
Knattspyrnan í sumar er betri en
hún var í fyrra. Það eru fleiri
skemmtilegir leikir á boðstólum nú en í
fyrra þó að aUtaf slæðist inn á miUi
leiðinlegir leikir. Þeir eru hins vegar
færri í ár en í fyrra. Knattspyrnan er á
uppleið.
Hvað varðar spá um verðandi
meistara þá tel ég Skagamenn hafa
mesta möguleika. Þaö er öruggasta
leiðin að veðja á þá. En þaö getur allt
skeð í þessu og Skagamenn þurfa ekki
að missa nema tvo leikmenn vegna
meiðsla, þá getur liðið hrunið,” sagöi
Víöir ÞjóðvUjamaður Sigurðsson að
endingu. -SK.
Ottó og Gunnar
— hafa leikið f lesta leiki
fyrir KR og landsliðið
Af þeim leikmönnum sem leika með
liði KR i sumar er fyrirliði liðsins, Ottó
Guðmundsson, leikjahæstur með 264
leiki.
Sigurður Indriðason kemur ekki
langt á eftir með 243 leiki. Guðjón
Hilmarsson er með 185 leiki, Sæbjöm
Guðmundsson með 123 leiki, Jósteinn
Einarsson 112 og Sverrir Herbertsson
106 leiki.
Gunnar Gislason hefur leUcið flesta
landsleUci, 10 talsins, Ottó Guðmunds-
son 3 og þeir Stefán Jóhannsson og Sæ-
bjöm Guðmundsson einn leUc hvor. -sk.
Víðir Sigurðsson, íþróttafréttamaður
Þjóðviljans.
Formaður KSÍ
ef stur á blaði
EUert B. Schram hefur oftast verið
fyrlríiði islenska landsUðsins í knatt-
spymu af KR-ingum, samtals í níu
leikjum. EUert hefur einnig skorað
flest mörk KR-inga í landsleikjum, sex
talsins. -sk.
Umsjón: Stefán
Kristjánsson
Þá er röðin komin að
vesturbæjarstórveldinu KR.
Áður en yfirstandandi
íslandsmót hófst var liðinu
spáð mikilli velgengni en sem
stendur er útlitið bjá vestur-
bæingunum hálfröndótt svo
ekki sé meira sagt. Liðið er
víst í fallbaráttu en mikið má
vera ef KR-ingar taka sig
ekki saman í andlitinu og
sigla skútu sinni upp á við.
Aðeins einu sinni í sögu
félagsins hefur liðið fallið í 2.
deUd, árið 1977. KR-ingar eru
staðráðnir í að láta þá sögu
ekki endurtaka sig en tU þess
að svo megi verða þarf liðið
að leika betur en það hefur
gert og getur gert. Spádómar
manna í upphafi móts gera
liðið ekki að meisturum, leik-
menn sjálfir verða að vinna
slíkt afrek.
í næsta helgarblaði munum
við kynna annað af toppliðun-
um, Keflavík.
-sk.
KR- KR- KR- KR- KR- KR- KR- KR- KR- KR- KR- KR- KR- KR-