Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.1984, Qupperneq 23

Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.1984, Qupperneq 23
DV. LAUGARDAGUR 23. JONl 1984. 23 KR- KR- KR- KR- KR- KR- KR- KR- KR- KR- KR- KR- KR- KR- KR- KR- KR- KR Lið KR-inga keppnistímabilið 1984. ..Hver leikur okkar f sumar er upp á líf oe dauða” segir Ottó Guðmundsson, fyrírliði KR-inga „Það getur engínn KR-ingur sætt sig við botnsætið. Við hötum verið óheppn- ir og meiðsli hata sett stórt strik í reikninginn hjá okkur og til dæmis höf- um við aldrei náð að stilla upp sömu varnarleikmönnunum,” sagði Ottó Guðmundsson, fyrirliði KR-liðsins i knattspyrnu. „Við erum með stóran og góðan hóp góöra leikmanna en einhverra hluta vegna hefur okkur ekki tekist að binda þetta saman. Siöasti leikur okkar gegn Skagamönnum var þó greinilegt bata- Eyleifur Hafsteinsson, hefur leikið flesta landsleiki KR-inga frá upphafi. merki þrátt fyrir að við töpuðum 0-2. Þaö voru margir ljósir punktar í þeim leik og við vorum betri aðilinn og áttum að sigra í þeim leik.” Hefur þú einhverja skýringu hand- bæra á því að KR vermir nú botnsætið í 1. deildinni? Margir samverkandi þættir „Nei, ég hef hana ekki á reiðum höndum. Ég tel að um fleiri en eina skýringu sé að ræða. Ég þori ekki að skjóta á neina sérstaka. Við komum saman eftir leikinn gegn Þór frá Akureyri sem við töpuðum 2-5 og ræddum málin. Eftir þann fund er ég bjartsýnn á aö viö náum aö rifa okkur upp úr þessum öldudal. Þetta var strax skárra hjá okkur gegn Þór ogáeftir aðbatna.” Strfar æfingar og leikgleði „Viö höfum æft mjög stíft upp á síð- kastiö og eins hefur verið stutt á milli leikja hjá okkur. Það var á tímabili kominn upp mikill leikleiði í liðinu en ég held aö okkur hafi tekist að snúa blaðinu við í eitt skipti fyrir öll.” Hver leikur upp á líf og dauða „Að mínum dómi hefur knattspyrn- an hér tekið nokkuð stórt spor fram á við. Leikirnir eru yfirleitt betri í sumar en í fyrra. Ég verð að viðurkenna aö ég átti ekki von á því að Akumesingar og Keflvíkingar myndu stinga af eins og raunin hefur oröiö á. Víkingar eru mun sterkari en ég reiknaði með í byrjun árs. Þeir hafa komið á óvart. Þá hefur það komið mér spánskt fyrir sjónir hversu lítið hefur komið út úr Vals- liðinu. Ég trúi bara ekki öðru en þeir eigi eftir aö koma til. Hvað Breiðablik varðar þá átti ég alveg von á slæmu gengi frá þeim. Við í KR verðum að taka okkur saman í andlitinu og það er ljóst að hver leikur okkar hér eftir verður upp á líf og dauða.” Ekkert frekar Akranes en Keflavík Heldur þú eins og margir ef ekki allir aðrir að Akurnesingar verði Islands- meistarar þegar upp verður staðið? „Ég get ekki séð að Akurnesingar vinni mótið neitt frekar en Keflviking- ar. Ég vil engu spá um væntanlega sig- urvegara. Ég veit það bara að við KR- ingar höfum ekki gefist upp og ef við förum að sleppa við meiðsli þá kemur þetta hjá okkur. Þegar þrjú stig eru gefin fyrir unninn leik er þetta fljótt að koma hjá okkur,” sagði Ottó Guð- mundsson. —SK. Ottó Guðmundsson, fyrirliði KR. Eyleifur og Ellert með flesta landsleiki KR-inga frá upphafi Samtals hafa 34 lelkmenn KR lelk- ið landsleiki fyrir Islands hönd frá upphafl, samtals 172 leiki. Eyleifur Hafsteinsson sem lék aö vísu einnig með Akranesi hefur að baki 26 leiki. Ellert B. Schram er með 23 leiki en þessir tveir leikmenn cru með langflesta leiki að baki. Sveinn Jónsson kemur næstur með 12 leiki, Hörður Felixson og Garðar Árnason eru með 11 leiki hvor, Hall- dór Björnsson og Gunnar Guðmanns- son 9 hvor, Örn Stelnssen og Hreiðar Arsælsson með 8 hvor og þeir Heimir Guðjónsson og Gunnar Felixson hafa leikið 7 leiki hvor. Nokkrir leikmenn hafa leikið 6 leiki og meðai þeirra er Bjarnl Felixson, íþróttafréttamaður sjónvarpsins. KR-KR-KR-KR-KR-KR-KR-KR-KR-KR-KR-KR-KR-KR-KR-KR-KR-KR ? ---------------------------------------- ------------

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.