Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.1984, Page 25
DV. LAUGARDAGUR 23. JUNI1984.
25
Eggert Haukdal, Þórarinn Sigur/ónsson og Ólafur G. Einarsson töluðu
aftur á mótistyst samanlagt.
Albert Guðmundsson
KONNUN A MALGLEÐIMNGMANNA:
TALAÐIOFTAST
sér heyra og í þriðja sæti var einn nýju þing-
mannanna, Stefán Benediktsson. Stefán tók
158 sinnum til máls og skákaði þar með
tveimur reyndari þingmönnum, Eiði Guðna-
syni og Hjörleifi Guttormssyni. Eiður fór'
alls 144 ferðir í pontu og Hjörleifur 132.
Alþýðubandalagsmenn hafa innan sinna
raða þá tvo þingmenn er samanlagt töluöu
lengst. Svavar Gestsson hefur þegar verið
nefndur og lítt kemur e.t.v. á óvart að Hjör- ■
leifur Guttormsson skuli skipa sér á hæla
honum með samtals 2309 minútur. I næstu
þremur sætum eru síðan tveir ráðherrar, Al-
bert Guðmundsson og Sverrir Hermanns-
son, en Jón Baldvin Hannibalsson hafnaði á
milli þeirra, í f jóröa sæti. Samtals talaði Al-
bert í 1614 mínútur, Jón Baldvin í 1513 og
Sverrirí 1375.
Sem fyrr getur sáu Þórarinn Sigurjónsson
og Eggert Haukdal sjaldnast ástæðu til að
feta léttu leiðina ljúfu í ræðustól. Geir
Gunnarsson ofnotaði heldur ekki þann
ágæta stól, hann tók sex sinnum til máls, og
þeir Olafur G. Einarsson, níu sinnum, og
Guðmundur Bjarnason, 11 sinnum, komu
næstir.
Þrír þingmenn skera sig nokkuö úr með
þaö að tala stutt, þ.e.a.s. samanlagt en ekki í
hvert sinn. Það eru Eggert Haukdal, Þórar-
inn Sigurjónsson og Olafur G. Einarsson,
sem talaði i 30 minútur. Nokkurt bil er í
næsta mann, Friðjón Þórðarson, sem talaði í
90 mínútur, og Pálmi Jónsson var í fimmta
sæti. með 129 mínútur samanlagt. Athygli
vekur að Eggert, Friðjón og Pálmi hlupust
allir undan merkjum Sjálfstæðisflokksins og
studdu stjóm Gunnars Thoroddsens, þeir
tveir síðasttöldu voru meira að segja ráð-
herrar í þeirri stjóm. Skyldi óþægð þeirra
við flokksforystuna hafa haft svona lamandi
áhrif áþá?
Konur tala minna
Með réttu má tala um Alþingi sem sauma-
klúbb karla, „þingkonur” tala nefnilega
mun sjaldnar og skemur. Aö meðaltali tala
karlmenn í 613 minútur og taka 65 sinnum tii
máls en konur koma aö jafnaöi 59 sinnum í
pontu og tala að meðaltali samanlagt í 497
mínútur.
Guðrún Helgadóttir og Sigríður Dúna
Kristmundsdóttir töluðu oftast kvenna, 87
sinnum hvor, og Ragnhildur Helgadóttir
menntamálaráðherra nældi í bronsverð-
launin, ef svo má að orði komast, hún ávarp-
aöi þingheim í 79 skipti.
Jóhanna Sigurðardóttir talaði hins vegar
að jafnaði mun lengur en nokkur kynsystra
hennar. Samtals eyddi hún 1113 mínútum í
ræðustól, nærri helmingi meiri tíma en Guð-
rún Helgadóttir, 652 mínútur, og Ragnhildur
ráðherra, 576 mínútur.
Kristín S. Kvaran tók 18 sinnum til máls á
þingi og Kolbrún Jónsdóttir 26 sinnum. I
þriðja sæti kom svo Salome Þorkelsdóttir, 46
sinnum, og það þó svo hún væri forseti efri
deildar. Kolbrún staldraði hins vegar styst
við í ræðustólnum, eða í 114 mínútur saman-
lagt, þá kom Salome með 169 mínútur og
Kristín S. Kvaran var þriðja með 269
mínútur.
Tala vinstri menn meira?
Ef litiö er á þingflokkana og meðaltal
hvers flokks reiknað út kemur í ljós að
alþýðuflokksmenn tala að jafnaöi oftast og
lengst. Þingmenn þess flokks tóku að meðal-
tali 90 sinnum til máls og meðaltal saman-
lagðs ræðutíma þeirra var 1030 mínútur.
Fjórir þingmenn Bandalags jafnaðar-
manna voru einnig duglegir við að láta í sér
heyra. Þeir töluðu að meöaltali í 657 mínútur
og að jafnaði sáu þeir 82 sinnum ástæðu til
aö koma skoðunum sinum á f ramfæri.
Alþýðubandalagsmenn fylgdu fast á hæla
jafnaðarmanna hvað varðar tíðar ferðir í
stólinn. Meðaltal ferða þeirra var 79 en þeir
töluðu hins vegar mun lengur, eða í 1026
mínútur samanlagt að jafnaði. Ognuðu þeir
þar veldi alþýðuflokksmanna.
Fjórði stjórnarandstöðuflokkurinn,
Kvennalistinn, lét sitt heldur ekki eftir
liggja. Konumar þrjár tóku að meðaltali 68
sinnum til máls og meöaltal ræðutima
þeirra var 526 mínútur.
Ef litið er á stjórnarandstööuna sem heild
verður meöaltalið 81 skipti í ræðustól og 898
mínútur samanlagt. Það er mun hærra
meðaltal en hjá þingmönnum stjómarinnar.
Þeir stöldmðu að jafnaði 54 sinnum við í
pontu og töluöu að meðaltali í 408 minútur.
Framsóknarmenn voru heldur málglaðari,
fóm 58 ferðir á móti 51 ferð sjálfstæöis-
manna, en minni munur er á samanlögðum
ræðutíma þótt svo aftur haf i Framsókn vinn-
inginn, 411 mínútur á móti 406.
Málglaðir Austfirðingar
Ef þingmenn eru marktækt úrtak af íbú-
um landsins verður vart annað sagt en Vest-
firðingar og Austfirðingar séu málglööustu
þegnar þjóðfélagsins.
Þingmenn Vestfjarða fóru að meðaltali
oftast í pontu, 109 sinnum, og töluðu að
meðaltali i 767 mínútur. Austfirðingar fóm
heldur sjaldnar í ræðustól, 92 sinnum, en
nýttu ferðir sínar betur þvi þeir töluðu að
jafnaði í 1147 minútur samanlagt. I þriðja
sæti voru þingmenn höfuðborgarinnar. Mál-
svarar Reykvíkinga tóku að meðaltali 77
sinnum til máls og samanlagður ræðutími
var 812 mínútur.
önnur kjördæmi voru langt á eftir.
Tölumar fyrir þingmenn Norðuriandskjör-
dæmis vestra em 55 skipti og 416 mínútur,
fyrir þingmenn Vesturlands 50 skipti og 392
mínútur og Reyknesingar töluðu að meðal-
tali í 404 mínútur og stigu 49 sinnum í pontu.
Botnsætin tvö verma svo þingmenn
Norðuriandskjördæmis eystra og Sunnlend-
inga. Þeir fyrrnefndu tóku að meðaitali 42
sinnum til máls og töluöu i 339 mínútur og
þingmenn Suöurlands töluðu að meðaltali í
einungis 34 skipti og samanlagt meðaltal
þeirra var315 mínútur.
Loks skal til nefna landskjömu þingmenn-
ina 11, en þeir töluðu að meðaltali i 584
mínútur og röltu 64 sinnum i ræðustól.
Oddvitar flokkanna
Til þess er ætlast af formönnum flokkanna
sex eða þingflokksformönnum að þeir láti
ekkert tækifæri ónotað til að auglýsa stefnu
sinna flokka og mótmæla því sem þeim
þykir miöur í fari annarra flokka. Vart
verður annað sagt en Svavar Gestsson, for-
maður Alþýðubandalagsins, hafi sinnt þessu
hlutverki af stakri prýði. Guðmundur
Einarsson, þingflokksformaður Bandalags
jafnaðarmanna, verður heldur ekki sakaður
um að hafa legið á liöi sínu. Hann vippaði sér
127 sinnum í pontuna og stóð yfirleitt frekar
lengi við, talaöi samtais i 1336 mínútur.
Kjartan Jóhannsson, formaður Alþýðu-
fiokksins, lét heldur ekki deigan siga. I
hundrað skipti stóð hann i ræöustól og ræðu-
timi hans nam samtals 1051 mínútu.
Steingrímur Hermannsson, forsætisráð-
herra og formaður Framsóknarflokksins,
var einnig önnum kafinn við að hlaupa í stói-
inn, enda bæði oddviti stjórnarinnar og
flokks síns. Ferðir hans urðu alls 82 og sam-
tals talaði hann í 867 mínútur.
Guðrún Agnarsdóttir, þingflokksformaður
Kvennalistans, tók 56 sinnum til máls, sam-
tals í 529 mínútur, og lestina rekur Þor-
steinn Pálsson, formaður SjálfstæðisQokks-
ins. Þorsteinn talaði í 33 skipti, 343 minútur
samanlagt.
Texti: Sveinn Agnarsson