Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.1984, Síða 26
26
DV. LAUGARDAGUR 23. JUNI1984.
Aö loknum átta umferðum á skák-
mótinu í Smederevska Palanka í
Júgóslavíu var eini íslenski
keppandinn, Margeir Pétursson, í
efsta sæti. Þá var frídagur í mótinu
en að þeim loknum spáöu fæstir
Margeiri sigri. Hann varð nefnilega
fyrir því óláni aö fótbrotna er skák-
menn tefldu fram knattspymuliði
sínu gegn starfsmönnum fyrirtækis-
þess sem stóð fyrir mótinu. Eftir það
varö Margeir aö tefla með fótinn
uppi á borði og eins og gefur að skilja
sló hann ekki hendinni á móti jafn-
teflisboöum andstæöinganna í slíku
ásigkomulagi. Þó tókst honum að
vinna eina skák af þeim fimm sem
eftir voru og stóð aö lokum uppi sem
sigurvegari ásamt Júgóslavanum Z.
Nikolie.
Glæsilegur árangur Margeirs því
að ekki blés byrlega fyrir honum í
upphafi móts. Strax á fyrsta degi
tapaði hann fyrir Tékkanum
Leehtinsky en fleiri urðu tapskákir
hans á mótinu ekki. Hann gerði sjö
jafntefli en vann fjórar skákir, þá
Cvitan (fyrrum heimsmeistara
unglinga), Cabrilo, Ljuvisavljevic og
Nebojsa Ristic, sem allir eru
Jógóslavar. Þannig varð !oka-
staðan:
I. —2: Margeir Pétursson og Z.
Nikolic (Júgóslavíu) 8 v. af 13 mögu-
legum.
3.-5. Adamski (Póllandi),
Martinovic og Simic (Júgóslavíu) 7
1/2 v.
6.-8. Kirov (Búlgaríu), Barlov og
Cvitan (Júgóslavíu) 7v.
9. Jansa (Tékkóslóvakíu) 61/2 v.
10. Lechtinsky (Tékkóslóvakíu) 6 v.
II. Horvath (Ungverjalandi) 51/2 v.
12.—13. Cabrillo og Ljubisavlejevic
(Júgóslavíu) 5 v.
14. Nebojsa Ristic (Júgóslavíu) 3 1/2
v.
Eins og sjá má er mótið ákaflega
jafnt og átta vinningar af 13 er ekki
hátt vinningshlutfall. Að þessu sinni
nægöi þaö þó til sigurs enda lauk
mörgum skákum á mótinu með jafn-
tefli. Að sögn Margeirs var engu
líkara en að margir Jógóslavanna
Margeir kominn heim f rá Júgóslavíu:
Fótbrotnaði en varð samt efstur
legðu ofurkapp á að tefla af öryggi og
fá þá einhver verðlaun fremur en aö
leggja allt í sölurnar til þess að ná
fyrsta sæti. Simic sem nýbúinn er að
eyða aleigunni í stórmeistaratitil
gerði til dæmis allar skákir sínar
jafntefli í örfáum leikjum en vann
tvo neðstu menn. Vakti taflmennska
hans á mótinu litla aödáun en ætti
hrós skilið frá sjónarhóli orku-
sparnaðar.
En lítum á eina skáka Margeirs frá
mótinu. Hér er Tarrasch-vörnin, ein
eftirlætisbyrjana Margeirs og
Kasparovs, í eldlínunni og fylgir
skákin lengi troðnum slóðum. Upp
kemur jafnteflislegt endatafl en
hvítur teflir ónákvæmt og þótt fáir
menn séu eftir á borðinu nær svartur
hættulegri sókn.
Hvítt: Nebojsa Ristic
Svart: Margeir Pétursson
Tarrasch-vörn.
I.d4 d5 2.c4 e6 3.Rc3 c5 4.cxd5 eid5
5.RÍ3 Rc6 6.g3 Rf6 7.Bg2 Be7 8.0-4)
0-0 9.Bg5 cxd410.Rxd4 h6 ll.Be3
He8 12.Da4 Bd7 13.Hadl Rb4 14.Db3
a515.a4
Leikirnir fram aö þessu þarfnast
engra athugasemda því staðan er
enn vel þekkt. Beljavsky reyndi að
breyta út af í 2. einvígisskákinni við
Kasparov í fyrra og lék 15.Hd2 en
eftir 15.-a4 16.Ddl a3 fékk Kasparov
góða stöðu.
15.-Hc816.Rc2b5!
Þennan snjalla leik lék Kasparov
fyrst í hraöskák (!) við Kortsnoj í
Júgóslavíu í fyrra og síðan hefur
hann átt vinsældum aö fagna.
17.Rxb4 bxa4 18Rxa4 Bxb4 19.Rc3
Bxc3 20.bxc3 a4 21.Da2 Bb5
Margeir breytir nú út af skák
Majorov og Ehlvest í Sovétríkjunum
í fyrra sem tefldist 21.-De7 22.Hfel
Bc6 23.Bd4 Re4 24.Hbl Hb8 og að
sögn Ehlvest hefði hvítur nú best
leikiö 25.c4! með jöfnu tafli (sjá
Informator 36). Leikur Margeirs er
ekki sterkari — hvítur ætti að halda
jafnvæginu.
22.Bxd5 De7 23.c4 Rxd5 24.cxd5 De4
25.Hd4 Dc2 26.Dxc2 Hxc2
Svartur á peði minna en getur
alltaf náð því aftur. Mislitir biskupar
gera stöðuna jafnteflislega en fjar-
lægur frelsingi svarts gefur honum
ívið betri möguleika. Samt er
ótrúlegt að hvítur skuli tapa skákinni
en í framhaldinu teflir hann mjög
ógætilega. 27.Hbl?
Betra er 27.Hb4 Bd7 28.Hb7 Bh3
29. Hal því að hvítur hefur þá unnið
dýrmætan tíma í samanburði við
framhald skákarinnar. Þá væru
jafntefli líkleg úrslit, t.d. 29.-Ha8
30. d6a3 31.d7a232.Ha7! (eftir32.Bb6
er 32.-Hb2! sterkt) Hb8 33.f3 Hxe2
34. H7xa2 Hxa2 (ekki 34.-Hxe3 vegna
35. Ha8) 35.Hxa2 Bxd7 með jafntefli.
27.-Bd728.Hb7?
Nú er þessi leikur slæmur því að
hvítur skilur 1. reitaröðina eftir
óvarða. Betra er 28.Hal og ef 28.-
Ha8,þá29.Ha3.
28. -Bh3! 29.Hdl
E.t.v. áttaði hvitur sig of seint á
því að 29.Hxa4?? er svarað með 29.-
Hxe3! 30.fxe3 Hel+ 31.KÍ2 Hfl mát
og 29.Hh4 Hxe3! 30.Hxh3 Hcxe2 31.d6
Hxf2 32.d7 Hfd2 leiðir einnig til taps.
29. -a3 30.d6
Svartur vinnur einnig eftir 30.Ha7
a2 31.Hal Hb8 o.s.frv.
30. -a2 31.g4
Tilraun til þess að losa um sig en
hún ber ekki árangur. Hins vegar er
31. d7 Hd8 (ekki 31.-Bxd7 32.Hb7 Hb2
33.Hal Hbl+ 34.Hdl Hxdl+ 35.Hxdl
Hb8 36.Bd4 Hbl 37.Hfl!) 32.Hal Hxd7
33. Hxd7 Bxd7 34.Bd4 Hxe2 einnig
tapað á hvítt.
31.-Bxg4 32.f3 Hxe3 33.fxg4 Hd2!
34. Hal Hexe2 35.d7 Kf8 36.Ha7 Ke7
37. h3 g6 38. Kfl Hf2+ 39. Kgl Hg2+
40. Kfl Hdf2+ 41. Kel Hgl+! 42.
Hxf2 Hxal.
— Þessa stöðu ættu allir skákmenn
að þekkja. Svartur hótar 43.-Hhl
44.Hxa2 Hh2+ og eftir 43,Kg2 f5!
brunar f-peðið áfram og er friðhelgt
því að kóngur hvíts kemst ekki yfir á
f-línuna. Hvítur gafst því upp.
Skák
Jón L. Ámason
Freistandi
drottningarfórn
I síðasta skákþætti var greint frá
stórmótinu í Bugojno í Júgóslavíu sem
lauk með sigri hollenska stór-
meistarans Timman. Timman var í
HAPPDRÆTTI
STARFSÍK
Vinningaskrá
1. v. Skodabifreið
2. v. Húsbúnaður fyrír 10.000kr.
3. v. Húsbúnaður fyrír 10.000kr.
4. v. Húsbúnaður fyrir 10.000 kr.
5. v. Húsbúnaður fyrir 10.000kr.
6. v. Húsbúnaður fyrir5.000 kr.
7. v. Húsbúnaður fyrir 5.000kr.
8. v. Húsbúnaður fyrir 5.000kr.
9. v. Húsbúnaður fyrir5.000kr.
10. v. Húsbúnaður fyrir5.000kr.
JÖFUR - HREIÐRIÐ
HAPPDRÆTTI UNGI
dregið var 1. júní 1984.
Fræðsluskrifstofa
Vestfjarðaumdæmis
auglýsir eftirtalin störf:
Sálfræðings, æskileg reynsla af starfi við grunnskóla.
Sérkennslufulltrúa, verksvið: Umsjón og skipulagning sér-
kennslu og stuðningskennslu í umdæminu. Reynsla ásamt
framhaldsmenntun mikilvæg.
Kennslufulltrúa. Til greina kemur að ráða í þetta starf, sem
felst í almennri ráðgjöf til skólamanna um kennsluhætti og
kennslugögn. Vísir aö gagnamiðstöð er í uppbyggingu á
Fræðsluskrifstofunni. Haldgóð kennslureynsla er nauðsynleg,
framhaldsmenntun í kennslufræðum æskileg.
Sérkennara vantar auk þess til starfa við Grunnskóla Isa-
fjarðar og enn eru nokkrar stöður kennara lausar í grunn-
skólum í umdæminu.
Umsóknir sendast Fræðsluskrifstofu Vestfjarðaumdæmis,
Hafnarstræti 6,400 Isafjörður, fyrir 15. júlí nk.
Upplýsingar gefur fræðslustjóri, Pétur Bjarnason, í síma 94-
3855 (skrifstofa) og 94-3685 (heima).
Fræðslustjóri Vestfjarðaumdæmis.
UNGLINGA-
nr. 457.
nr. 1019.
nr. 1225.
nr. 1042.
nr. 1321.
nr.384.
nr.1189.
nr.656.
nr. 431.
nr. 1367.
- SETRIÐ
LINGASTARFS ÍKf
«
NMíDanmörku:
ísland náði bronsinu
í opna f lokknum
Islensku sveitirnar á nýafstöðnu
Norðurlandamóti í bridge stóðu sig
ágætlega. Karlasveitin náði þriðja
sæti, fékk 113 stig, meöan kvennasveit-
in var óheppin aö lenda í fjórða sæti
með87stig.
Svíar unnu hins vegar tvöfaldan
sigur, en lokastaöan á mótinu var
þessi:
Karlaflokkur:
1. Svíþjóð 141
2. Finnland 119
3. Island 113
4. Noregur 111
5. Danmörk 110
6. Færeyjar —35
Norður Austur Suður Vestur
pass 1H 2L pass
2T 2H dobl pass
2S pass 3G dobl
pass pass pass
Það er ljóst aö Past hefði ekki riðið
feitu frá tveimur hjörtum dobluöum,
með bestu vöm eru þau 700 niöur, hins
vegar má segja að varla komi til
greina fyrir Hörð aðpassa.
Jón fékk út hjartatíu í þremur
gröndum og átti slaginn á drottn-
inguna. Hann tók síðan laufaás og
næsti slagur var með því ódýrara sem
gerist. Jón spilaði laufafjarka og átti
slaginn þegar vestur lét þristinn. Aftur
kom litið lauf og vestur drap með
níunni. Hann spilaöi spaöa til baka og
Jón tók nú þrjá hæstu í spaða, laufa-
kóng og spilaöi síðan vestri inn á laufa-
drottningu.
Vestur átti nú aöeins tígli að spila og
auðvelt var fyrir Jón að hitta á hann.
Austur tók á tígulás og fékk síðan
síðasta slaginn á hjartagosa. Slétt unn-
ið og 750 til Islands.
I lokaða salnum lentu Danimir í
fimm laufum og sluppu vel að fara
aðeins tvo niður. Það voru 200 í viðbót
og 14 impar til Islands.
Þaö er samt athyglisvert að hvomg
n-s pörin finna fjögurra spaöa samn-
inginn, sem virðist langbestur og litlir
möguleikar á því að tapa þeim.
Kvennaflokkur:
l.Svíþjóð 140
2. Danmörk 130
3. Noregur 91
4. Island 87
5. Finnland 65
Danir höfðu vonast eftir betri
árangri í karlaflokki og því var ósigur
þeirra gegn íslensku sveitinni í síðustu
umferðunum mikil vonbrigði.
Hér er gott spil frá leiknum.
Norður gefur/n-s á hættu
Nt'RDUR
A G10932
54
KG1042
*7
Au.-tijr
* 876
KG8763
O A93
+ G
SUHJH
* AKD
AD92
* AK8654
sátu n-s Höröur
Blöndal og Jón Baldursson, en a-v
Past og Brok:
V l — 11:1:
A 54
V 10
C- D7654
* D10932
I opna salni
Landsliðskeppni á
Hótel Loftleiðum
Landsliðskeppni Bridgesambands
Islands heldur áfram á Hótel Loftleið-
um í dag og hefst spilamennska kl. 13.
Atta pör spila u.þ.b. 120 spil með
Butlerútreikningi og halda áfram með
25% skorar sinnar.
Bridgedeild Skagfirðinga
Þriðjudaginn 19. júní var spilað í
tveimur riðlum, 12 og 14 para.
Hæstuskorhlutu:
Ariftlll
1. Anton Gunnarss.-Friftjón Þórhallss. 196
2. Birgir Isleif sson-Óskar Karlsson 190
3. Halldór Áraas.-Jón Viftar Jónmundss. 187
4. Björa Hermannss.-Lárus Hcrmannss. 182
B. riftill
1. Guftmundur Asmundss.-Guðmundur Thor-
steinss. 197
2. Guðrún Hinriksd.-Haukur Hanness. 174
3. Karóiina Sveinsd.-Hildur Helgad. 172
4. Ármann Láruss.-Sveinn Sigurgeirss. 170
Næst verður spilað þriðjudaginn 26.
júní í Drangey, Síðumúla 35. Allt
bridgef ólk velkomið.
Reiknistofa bankanna
óskar að ráða fólk til starfa í vinnsludeild reiknistofunnar.
Störf þessi eru unnin á þrískiptum vöktum.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi SÍB og bankanna.
Æskilegt er að umsækjendur hafi verslunarpróf, stúdentspróf
eða sambærilega menntun og séu á aldrinum 18—35 ára.
Skriflegar umsóknir sendist Reiknistofu bankanna, Digranes-
vegi 5 Kópavogi, fyrir 1. júlí nk. á eyðublöðum, sem þar fást.