Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.1984, Qupperneq 39
DV. LAUGARDAGUR 23. JUNI1984.
39
Kvikmyndir Kvikmyndir Kvikmyndir Kvikmyndir Kvikmyndir
GULLGRAFARARNIR HENNAR
SALLY POTTER
Hver kannast ekki við þetta lands-
lag? Atriði úr myndinni Gullgrafar-
arnirsem tekin var hérlendis.
BRESKA KVENNA-
MYNDIN THE GOLD
DIGGERSHEFUR
ALLSSTAÐAR
HLOTIÐGÓDAR
MÓTTÖKUREN
HLUTIHENNAR
VARKVIKMYND-
AÐURHÉRLENDIS
ÁRIÐ198J
Miðað við allt umstangið sem átti
sér stað þegar hópur kvikmynda-
gerðarmanna frá bandaríska kvik-
myndagerðarfélaginu 20th Century
Fox kom hingaö til lands til þess að
taka upp mynd sína ENEMY MINE,
má segja að breski kvikmyndagerð-
arhópurinn sem kom hingað 1981
undir forystu leikstjórans Sally Pott-
er hafi farið huldu höfði. Þessi hópur
dvaldist hérlendis til að kvikmynda
fyrstu mynd Potters í fullri lengd
sem var frumsýnd í Bretlandi ekki
alls fyrir löngu við góðar undirtektir.
Astæðan fyrir þessum mismunandi
áhuga okkar Islendinga á þessum
viðfangsefnum er liklega sú að THE
ENEMY MINE er miklu íburðar-
meiri mynd enda mikiu meiru til
hennar kostað, sbr. ráöning þekktra
leikara. Liklega hafa fáir kannast
við nokkra aðstandendur myndar
Sally Potters nema ef vera skyld:
bresku leikkonuna Julie Christie.
Þessi nýja mynd Sally Potters, sem
ber nafnið The Gold Diggers, og er í
raun hennar fyrsta mynd í fullri
lengd, er á margan hátt merkilegt
skref í sögu breskrar kvikmynda-
geröar. I fyrsta lagi var það ein-
göngu kvenfólk sem stóð að gerö
myndarinnar og er þetta fyrsta
breska myndin sem er þannig unnin.
I öðru lagi er hér um mikið þrekvirki
að ræða af hendi Potters því á list-
rænan hátt reynir hún að endur-
skrifa kvikmyndasöguna út frá sjón-
arhorni konunnar. Því er hér raunar
um að ræða félagslega og pólitíska
mynd, gerða innan kvikmyndaiðnað-
ar sem hefur hingaö til verið stjórn-
að nær eingöngu af karlmönnum.
Mikil lyftistöng
Annað mikilvægt atriði varðandi
THE GOLD DIGGERS er að hún er
fjármögnuð af bresku kvikmynda-
stofnuninni (British Film Institute)
og að myndin er gerð af óháðum
kvikmyndagerðarmönnum. A und-
anförnum árum hefur breska kvik-
myndastofnunin virkað sem mikil
lyftistöng fyrir sjálfstæöa breska
kvikmyndagerð meðan aðsókn að
kvikmyndahúsum hefur hríöfallið í
Bretlandi. Stóru kvikmyndagerðar-
fyrirtækin hafa alveg gefist upp á aö
gera kvikmyndir þar í landi. Stór
hluti þeirra mynda sem breska kvik-
myndastofnunin hefur fjármagnað
hefur hlotið mikið lof á kvikmynda-
hátíöum og í sumum tilvikum hafa
myndirnar verið teknar til sýningar í
almennum kvikmyndahúsum. Þessi
stefna, að veita færri en hærri styrki
til kvikmyndagerðarmanna og gefa
þeim einnig tækifæri að ná til fleiri
aðila með hjálp við dreifingu, mun
án efa hjálpa THE GOLD DIGGERS
vel.
Myndin er að mörgu leyti sniðin í
þann ramma sem breska kvik-
myndastofnunin virðist hafa mestan
áhuga á að fjármagna. Sally Potter
hefur tekið þaö besta úr listrænni
evrópskri kvikmyndagerð, „hluta
frá Avant-garde” pólitiskum mynd-
um og svo eitthvað frá afþreyingar-
myndum við gerð myndar sinnar.
Með því að höföa til allra þessara
þátta virðist Sally Potter geta náð til
þó nokkuð stórs hóps áhorfenda ef
myndin er rétt markaðssett.
Ljóshært stirni
En um hvað er The Gold Diggers?
Efnisþráðurinn virkar nokkuö sér-
stakur. Myndin fjallar um tvær
stúlkur sem hvor í sínu lagi eru að
leita aö „gulli". Celeste, sem leikin
er af Coletta Laffont, er frönsk og
býr í London. Hún vinnur við tölvu í
banka í miðborginni. Hún fer einn
góðan veðurdag að velta fyrir sér
mikilvægi allra þeirra talna sem hún
er sífellt að fæða tölvuna á. Hún fyll-
ist áhuga á viðfangsefninu og fer að
rannsaka hinn flókna heim fjármál-
anna og kemst að lokum að þeirri
niöurstöðu aö þaö sé gulliö sem skipti
mestu máli þegar um peningafærsl-
ur og peningaflæði er að ræða í heim-
inum.
Hin aðalpersónan Ruby (Julie
Christie), fallegt Ijóshært stirni, birt-
ist fyrst í myndinni inni í stórum
danssal þar sem hún svífur frá
manni til manns meðan vals er spil-
aður undir. Ruby er einnig að leita að
sinum auöæfum enda er gull tákn
auðs í hugum okkar flestra. Þessar
stúlkur tengjast saman á nokkuö sér-
stakan máta í þessari mynd. Allt í
einu birtist Celeste á hvítum hesti og
nemur Ruby á brott með sér úr dans-
salnum. Þær fara síðan að ræða sam-
an og Celeste leiðir Ruby fyrir sjónir
hlutverk hennar í sögunni sem kona
og sem myndræn fígúra í kvikmynd.
Riddarinn á
hvíta hestinum
Eins og lesa má af þessum linum
virkar THE GOLD DIGGERS oft á
tíöum eins og ævintýri. Potter lætur
stúlkurnar sínar leika hin dæmi-
gerðu hetjuhlutverk sem hafa hingað
til verið látin karlmönnum í té. Samt
sem áður leggur hún ekki áherslu á í
mynd sinni aö kynin skipti um hlut-
verk. Frekar má túlka þessa kven-
legu hetjudáð sem andmæli gegn
þeirri tilhneigingu í okkar þjóðfélagi
aö skipta störfum niður eftir kynj-
um. Meðan Celeste er að rannsaka
heim fjármálanna þarf hún ekki á
neinni karlmannshjálp að halda til
þess að bjarga sér frá óvæntum hætt-
um sem gætu steöjað að eins og al-
gengt er í þeim fáu myndum sem
hafa verið gerðar þar sem kona fer
með aöalhlutverkið. Gott dæmi er
myndin COMA.
Myndin er kvikmynduð á svart-
hvíta filmu og var kvikmyndatöku-
konan Babette Magolte sérlega feng-
in til verksins frá Bandaríkjunum
þar sem hún er búsett. I viðtali við
Monthly film Bulletin var Sally Pott-
er beðin að tjá sig um hversvegna
hún notaði svarthvíta filmu.
„Þaö var með vilja gert aö ég not-
aöi svarthvíta filmu fyrir THE
GOLD DIGGERS. Það var ekki pen-
ingalegt sjónarmiö. Að hluta til var
það vegna þess að ég vitna oft til
eldri mynda og vildi þannig undir-
strika þá tilvitnun. Einnig hafði ég
áhuga á að ná dramatiskum atriðum
þar sem langir dimmir skuggar og
mjög sterk Ijós færu saman, sem er
erfitt að festa á litfilmu. Einnig eru
mörg atriði sem tengjast svarthvítri
kvikmyndagerð. Um leið og þessir
tæknimenn falla frá virðist þessi iðn-
grein deyja út. Þeir hjá Rank (kvik-
myndageröarfyrirtæki) sýndu dálít-
inn áhuga vegna þess að sumt starfs-
fólkið þar hafði unniö við svarthvíta
mynd fyrir nokkrum árum.
Raunveruleiki og
hugarburður
Sjónvarpsstöðin Channel 4 krafð-
ist ekki að fá myndina í lit enda
komu þeir ekki inn í dæmiö fyrr en
eftir að þessi ákvörðun hafði verið
tekin. Við vorum oft spurð að því
hvers vegna við heföum tekið mynd-
ina í svarthvítu en í raun og veru
setti enginn þrýsting á okkur til að
breyta út frá þeirri ákvörðun. Ég
held að litur sé oft notaður á ómeðvit-
aðan hátt til þess að reyna að líkja
eftir raunveruleikanum en svarthvít
filma hefur nokkuð draumkennda og
oft á tíðum ævintýralega áferð sem
túlka má sem hugarburð.
Við reyndum að halda okkur við
breskar kvikmyndagerðarkonur en
fórum út fyrir landsteinana til að ná í
Mangolte. Þaö eru nokkrar konur
í Bretlandi sem geta meðhöndlað
kvikmyndatökuvélar en ekki margar
sem hafa reynslu í töku 35 mm
mynda. Þar að auki var mjög mikil-
vægur punktur að ég þekkti fyrri
verk hennar þar sem hún hafði kvik-
myndaö fyrir Chantal Akerman og
svo Yvonne Rainer. Þannig var ég
sannfærð um aö hún hefði þann skiln-
ing á efni THE GOLD DIGGERS
sem ég þurfti á að halda. ”
Andstætt THE ENEMY MINE
tókst að fullgera THE GOLD DIGG-
ERS og er ekki aö efa að Islendingar
bíða spenntir eftir að sjá hvernig
landslag okkar fellur inn í ramma
þessarar kvikmyndar. Má.búast við
því að myndin verði tekin til sýning-
ar hér fljótlega þar sem fyrir nokkru
var f arið að sýna hana i Bretlandi.
B.H.