Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.1984, Síða 40

Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.1984, Síða 40
40 DV. LAUGARDAGUR 23. JUNI1984. Saoneáin fer í gegnum litla þorpiö Villefrance-sur-Saone um tuttugu mílum noröan viö Lyon og síðan fer hún í gegnum staö sem nefndur er Saint Martin Belle-Roche. Saint Martin Belle-Roche er ekkert. Þaö er ekki kaupstaöur og ekki þorp. Þaö kemur ekki fram á neinu korti og hefur einungis aödráttarafl fyrir frístundaveiöimenn sem koma til aö sitja á skítugum bökkum árinnar og bíöa þolinmóöir eftir fiskum sem aldrei koma. Aö áliönum morgni þess 11. apríl 1981 voru einungis tveir veiðimenn sestir viö árbakkann. Þaö voru hinn 41 árs gamli Gerard Seguey og hinn fertugi Louis Lafitte. Það var merkilegt aö þeir tveir skyldu þó nenna aö vera þama. Voriö í Austur- Frakklandi er ekki alltaf þægileg- asta árstíöin. Það var mjög kalt, skýjaö og votviörasamt. Seinna um árið átti eftir aö koma gras og gróður umhverfis ána en á þessu stigi var þar aðeins drulla. Áin leið fram grá og dauðaleg. Stöku sinnum sleit is- kaldar skúrir úr þungbúnum skýj- unum og sviptivindar þeyttu vatni framan í félagana. Gerard og Louis voru báðir í laumi búnir aö velta því fy rir sér hvort ekki væri rétt aö fara aö halda heim þegar líkið kom fljótandi. Þetta var hræðilegt Mk því það haföi greinilega verið lengi í ánni. Þaö flaut á bakinu eins og sagt er aö karlmannslík geri. Þaö var ákaflega illa leikiö. Veiöimennimir spruttu á fætur, hentu frá sér stöngunum og hvolfdu strigastólunum í flýtinum viö aö komast eftir árbakkanum og fram úr líkinu. Þeir heföu getaö þurft aö hlaupa lengi en líkiö strandaöi á smátanga sem skagaði út í ána. Myrtur Seguey og Lafitte fundu trjágrein- ar, óöu út í ána og ýttu líkinu til þannig aö þeir töldu að þaö myndi ekki aftur leggja af stað niöur eftir ánni. Síðar þegar þeir báru saman bækur sínar kom í ljós aö þeim haföi báöum dottiö sama skýringin í hug á því aö líkiö var þama. Þeir töldu aö þetta heföi veriö einhver sem heföi dottiö í ána, drukknaö og aö líkami hans heföi síöan lent í skrúfu ein- hverrar hinna mörgu fleytna sem um ána fóru. Þaö gerist tiltölulega oft. Gerard og Louis höföu hins vegar litla reynslu í svona málum og þegar lögreglan kom á staðinn eftir hring- ingum þeirra úr almenningssíma í nágrenninu sá yfirmaöur hennar þegar að áverkarnir voru ekki eftir bátsskrúfu. Hann iét menn sína binda líkið þannig aö það ræki ekki í burtu og fór síöan í símann og hringdi í rann- sóknarlögregluna. Hann sagöi að þeir heföu fundið lík manns og hann bætti því viö að sín skoðun væri að hann hefði verið myrtur. I stöðvum rannsóknarlögreglunn- ar í Villefranche-sur-Saonne varö uppi fótur og fit víö þessi tíðindi. Það er talsvert um ofbeldisglæpi í Lyon en litiö í Villefrance-sur-Saoi e þar sem íbúar eru innan viö 30.000. Auk þess var þetta laugardagur og þaö var enginn á vakt nema tveir ungir leynilögreglumenn sem höföu enga reynslu af rannsókn morðmála. Samkvæmt reglum deildarinnar átti annar leynilögreglumaöurinn að fara á staðinn og hinn að vera eftir og taka önnur mál á meðan. Þeir voru hins vegar báðir reynslulausir. Að lokum komust þeir að þeirri niöurstöðu aö þaö hefði enga þýöingu aö annar þeirra færi á staðinn þar sem líkiö haföi fundist og þaö besta sem þeir gætu gert væri aö ná í yfir- mann rannsóknarlögreglunnar á staönum og biöja um fyrirmæli. Þeir geröu þaö og hann sagöi þeim aö kalla út Jean Malmaison, foringja morðrannsóknardeildar Villefrance- sur-Saone. Þetta var einmitt þaö sem þeir höföu viljaö gera en þeir höföu veriö hræddir viö aö kalla út foringjann á frídegi hans. Hann var samanrekinn, stutt- klipptur maöur meö gráblá augu. Hann var þekktur sem Iieiöarlegur en strangur yfirmaöur á vinnustaö og ungu starfsmennirnir umgengust hann meö viröingu. Til mikils léttis fyrir rannsóknar- lögreglumennina tók Jean Malmaison lögregluforingi þessu með ró. Hann sendi fyrirmæli til að- stoöarmanns sins, læknasérfræðings deildarinnar og rannsóknarmanns um aö fara á staðinn. Lögreglumennirnir báru boðin fljótt og vel þannig að dr. Jerome Chatelet, sérfræöingur deildarinnar, var kominn til Saint Martin Belle — Roche nokkrum mínútum á eftir lög- regluforingjanum. Sérlegur aöstoö- armaöur lögregluforingjans, Julien Augier, var hins vegar fjarri góðu gamni því hann var í Lyon aö heim- sækja frænku sína aö því er kona hans sagði. Hún hringdi þangaö og sagöi honum aö koma þegar heim en þaö tók hann þó nokkum tíma vegna umferðarinnar sem var á leiöinni. Þaö var ekkert sem lögreglu- FRAMHJÁHALD OGMORÐ Emine Kula, 21 árs, var fjögurra barna móðir, eiginkona og hjákona. foringinn gat gert á staðnum. Eftir aö hafa litið í fljótheitum á líkið gat hann einungis staðið álengdar og látiö sérfræöinga um aö skoöa það. Salahatti Kula var rólegur og vingjarnlagur maður. En þegar hann komst að þvi að konan hans hólt fram hjó honum sá hann rautt. Þeir tóku líkamann og settu hann í plastpoka og sögöu aö það væri ekkert þarna sem þeir þyrftu að rannsaka. Maðurinn, ef hann hafði Sérstæð s Líkami Atay A ydogan fannst iónni Saone.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.