Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.1984, Page 41

Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.1984, Page 41
DV. LAUGARDAGUR 23. JUNl 1984. 41 verið myrtur, hefði ekki verið myrtur á þessum staö og hann hefði einungis verið þarna við moldarran- ann í um það bil klukkustund. Ef það væri eitthvaö merkilegt sem finna mætti myndi það vera á líkinu sjálfu eða fötum þess. Betra væri að vinna við rannsókn þess í líkgeymslu lögreglunnar heldur en í köldu vor- veðrinu. Dr. Chatelet, sem var hávaxinn, áhyggjufullur maöur og ekki fastur starfsmaður deildarinnar heldur þáði laun fyrir útköll á hennar vegum, var hlynntur þessu. Hann taldi áverkana vera eftir öxi og vera veitta af manni sem ekki hefði mikla reynslu af að fara með slíkt. Þrátt fyrir að þetta þýddi ekki alveg beint að þarna hefði verið um morð að ræða var þetta nóg fyrir lög- regluforingjann. Hann skipaði svo fyrir að farið yrði með lfkið og sagðist myndu biða á skrif stofu sinni eftir að heyra meira um niðurstöðu rannsóknanna. Hann langaði mest til að vita hvenær maðurinn heföi dáið og um allt sem gæti hjálpað honum til að finna hver þetta væri. Hann sté þá inn í bíl sinn og ók aft- ur til stöðva sinna í Villefrance-sur- Saone og lét lækninn og rannsóknar- stofumanninn bíða eftir sjúkra- bílnum sem átti að taka líkið í burtu. Þar sem ungu leynilögreglumönn- unum hafði ekki hugkvæmst að senda sjúkrabíl á staðinn dróst það nokkrastund. Fingraför Þeir voru einmitt á förum þegar Augier, aöstoðarmaður lögreglu- foringjans, kom á vettvang. Hann hafði ekið beint frá Lyon en þegar hann sá að lögregluforinginn var far- inn hélt hann áfram inn í Villefrance- sur-Saone þar sem lögregluforinginn lét hann fá segulbandsupptökur með framburði áhugaveiðimannanna sem höfðu fundiö líkið. Eftir nokkra stund fengu þeir niðurstöðu dr. Chatelet sem hafði rannsakaö likið. Hann sagöi að þetta hefði verið heilsuhraustur verka- maður um tvítugt. Hann hefði aldrei verið skorinn upp og aldrei farið til tannlæknis þrátt fyrir að þurft hefði að gera við einhverjar af tönnum hans. Dánarorsökin væri drukknun og hann hefði verið tvær vikur eða lenguríánni. Læknirinn sagði að hann hefði veriö drepinn, líkaminn væri ákaf- lega illa leikinn. Lögregluforinginn spurði hvort hægt væri að taka fingraför og lækn- irinn sagði að þaö væri hægt. Þá tók lögreglumaður fingraför af likinu. inu. Þegar læknirinn var spurður hvort hann hefði einhverja viðbótar- athugasemd um líkið sagðist hann telja að maðurinn væri einn af hinum mörgu farandverkamönnum í Frakklandi. Maður frá Miðaustur- löndum. Ef til vill Grikki eða Tyrki eða jafnvel Suður-ítali. Hann hefði þó ekki fengist við byggingarvinnu eins og svo margir farandverka- mannanna því hendur hans væru mjúkar. Lögreglumaöurinn, sem haföi hlustað hljóður á þetta, sagði að ef maöurinn hefði verið útlendingur og farandverkamaður þá væru fingra- för hans að öllum líkindum til í bæjarfélaginu þar sem hann byggi. Hann spurði hvort hann ætti að fjöl- falda fingraförin og dreifa þeim á svæðisskrifstofur lögreglunnar í ná- grenninu. Það var möguleiki að þeir fyndu vísbcndingu um hver maðurinn væri í fötum hans og það var fljótlegra heldur en að fara í gegnum öll fingra- för á svæðisskrifstofum í héraðinu. Niðurstöður fatarannsókna voru engar. Fötin voru hefðbundin verka- mannaföt og fengust í mörgum Iitlum verslunum víðs vegar um landið. Ekkert þeirra var nýtt. Maöurinn hafði verið fullklæddur þegar hann dó. Morðvopnið var talið vera eitthvað svipað og öxi en mjög beitt. Þegar þetta var komið á hreint hringdi lögreglumaðurinn og lét gera afrit af fingraförum mannsins og senda i skrifstofur útlendingaeftir- litsins á svæðinu umhverfis. Hann sendi á talsvert marga staði því það var erfitt að geta sér til um hve langt líkið hefði borist eftir fljótinu. Tveim dögum síðar var búið að bera kennsl á manninn. Hann var tuttugu og fimm ára gamall Tyrki og hét Atay Aydogan. Hann hafði búið á heimili fyrir farandverkamenn í þorpinu Hieres-sur-Ambi sem var innan við 15 milur frá Villefrance- sur-Saone. Aydogan var úr þorpinu Cayiralan sem var nálægt Ankara í Tyrklandi. Hann var einhleypur og hafði verið í Frakklandi frá því 1977. Hann var ráðinn hjá slátrara í kjöt- vinnslufyrirtæki. Lögregluforinginn ályktaði aö Aydogan hefði verið að skemmta sér með eiginkonu einhvers Tyrkjans, vinkonu eöa systur og hefði þegið sín laun: Tyrkir, hvort sem var í Frakklandi eða Tyrklandi, hikuðu ekki við að láta sverfa til stáls ef kvenfólk var annars vegar. Lögreglumaðurinn, sem hafði nokkra reynslu í þessum málum, sagði að það væri heldur ekki auðvelt að rannsaka mál þeirra. Þeir hefðu eigin lög og siði og hefðu litla hliðsjón af lagaboöum franskra. Venjulega væri ómögulegt að fá þá til að vitna gegn hver öörum. Ef þeir rækjust á misgjörð sem þeim fannst að yrði að leiðrétta þá gerðu þeir út um málið persónulega. Lögregluforinginn vissi auðvitaö allt um þetta en sagði samt að aðstæður væru alls ekki vonlausar. Glæparannsóknardeildin í Lyon hafði njósnara sem voru í tyrkneska samfélaginu sem gætu njósnað um bakgrunn og stöðu fórnariambsins. Það yrði sennilega ekki mikið mál að komast að því hjá hverri fómar- lambið hefði sofið. Þá hafði lögregluforinginn samband við glæparannsóknar- deildina í Lyon og fékk einn njósnara þeirra að láni. Lögreglumaðurinn hafði ekki miklar vonir bundnar við tyrkneska njósnarann. Það kom honum þvi mjög á óvart þegar hann birtist fljót- lega meö nokkuð tæmandi skýrslu um Atay Aydogan og hvað hefði að öllum líkindum leitt til dauöa hans. Framhjáhald Það var, að því er virtist, fátt sem fór mjög leynt í samfélagi Tyrkjanna og það var vel þekkt að frá því í byrjun ársins hafði Aydogan verið í ástarsambandi við hina 21 árs gömlu Emine Kula, fyrrum bekkjarfélaga sinn heima í Cyiralan og nú eigin- konu Selahattin Kula, 29 ára gamals þungavélasölumanns úr sama þorpi. Þar sem Aydogan og Kula-fólkiö var úr sama byggðarlagi var ágætis vinskapur milli þeirra. Til allrar óhamingju fyrir Aydogan var hann hrifnari af Emine heldur en Kula og þegar hann fór stutta stund á spítala í janúar þaö ár hafði honum að því virtist tekist að forfæra hana þegar hún kom að heimsækja hann á spítalann. Það varð minniháttar hneyksli þegar hjúkrunarkona kom inn á herbergi hans og kom að honum og frú Kula báðum nöktum í rúminu. Þrátt fyrir að Aydogan væri sjálfur Tyrki gerði hann sér augljós- lega ekki grein fyrir hversu alvar- lega hluti hann var kominn út í og í stað þess að þegja yfir þessu ævin- týri sínu gekk hann um og stærði sig af því. Selahattin Kula haföi greinilega einnig heyrt um þetta og hann hafði sagt hinum 26 ára gamla Mahmud Ozaturk, samverkamanni sínum, að hann vissi að kona sín færi á bak við sig og með hverjum í þokkabót. Ozaturk, sem tyrkneski leynilög- reglumaðurinn hafði talað við, hafði reynt aö draga úr þessu með því að segja Selahattin að það væri næstum ómögulegt fyrir konu með f jögur lítil börn að hafa elskhuga. Orðrómurinn væri ekkert annað en skæðar tungur sem gerðu sér mat úr þeirri staðreynd að Aydogan og Emine höfðu gengið í skóla saman. Selahattin haföi lagt litinn trúnað á þessa sögu og Ozaturk sagði aö í febrúariok hefði hann komið að honum þar sem hann var að brýna öxi. Ozaturk hafði þá ekki litist á blik- una en ekki sagt neitt. Mánudaginn 23. febrúar haföi Sela- hattin Kula sagst vera veikur. Þegar hann kom næsta mánudag var hann í góðu skapi og sagði Ozaturk að hann væri nú viss um að kona sín hefði veriðsértrú. Ozaturk, sem vissi vel að konan hafði haldið fram hjá Kula og grunaði að hann vissi það jafnvel, var hlessa. Hann vissi hvemig Atay Aydogan leit út en haföi aldrei talað við hann. Húsrannsókn Þegar tyrkneski leynilögréglu- maðurinn spurði hvort honum hefði ekkert fundist það skrýtið að Aydog- an hvarf skyndilega svaraði hann því til að hann hefði ekkert vitað til þess að hann hefði horfið. Nú tók við að sanna glæpinn. Lög- reglumaðurinn vissi að erfiðlega myndi ganga að fá nokkurn Tyrkj- anna til að bera nokkurt vitni í þessu máli. Hann fékk því húsrannsóknar- heimild og leitaði vandlega í híbýlum Kula-fjölskyldunnar, í herbergi Atay Aydogans og í herbergi Mahmud Ozaturk sem átti heima í Villefrance- sur-Saone. Lögreglumaðurinn hafði ekki átt von á að finna neitt í híbýlum Kula. 1 fjrsta lagi var engin ástæöa til að telja að Aydogan hefði verið myrtur þar. Jafnvel þó að fingraför hans hefðu fundist þar hefði það verið full- komlega eðlilegt því hann heimsótti hjónin oft. Jafnvel þó að hann hefði verið myrtur þar var nú liðinn meira en hálfur mánuður síðan það hafði gerst. Þetta reyndist vera rétt. Það fannst ekkert við leitina. Kula-hjónin neituðu einnig að hafa komiö nálægt morði Aydogans og meira að segja að vita til þess aö hann hefði verið horfinn. Þegar farið var með þau í líkgeymslu lögreglunnar sögðust þau ekki þekkja líkið og að það væri of illa farið til þess að þau treystust til að bera kennsl á það. Ekkert fannst frekar í híbýlum Mahamud Ozaturks en í hibýlum Atay Aydogans fannst bréf. A það var skrifað. „Komdu strax og bjarg- aðu mér. Maðurinn minn lemur mig. Við verðum að ræða málin við hann, við hljótum að geta sannfært hann.” Rithandarsérfræðingur sagði að þetta væri skrift frúarinnar, Emine Kula. Þegar pósturinn sem bar út bréf þar sem Aydogan bjó var spurður mundi hann eftir þvi aö hafa fært honum bréf 26. eða 27. febrúar. Hann mundi það vegna þess aö þetta var í eina skiptiö sem Aydogan hafði fengið bréf þann tíma sem pósturinn hafði borið út. Yfirheyrslur Hjónin voru nú tekin í gæsluvarð- hald og til yfirheyrslna. Þau stóðu fastar á því en fótunum að þau hefðu engan þátt átt í því að drepa Aydog- an. Aðrir þættir málsins reyndust einnig neikvæðir. Mahmud Ozaturk neitaði aö vitna og neitaði jafnvel að gangast við segulbandsupptökum sem voru til með framburði hans. Enginn annar úr tyrkneska sam- félaginu fékkst heldur til að játa. Kula-hjónin voru dregin fyrir rétt 7. maí 1982 og sannanir gegn þeim voru þá ekki meiri heldur en lög- reglan hafði haft í fýrstu. Lögreglu- foringinn taldi ólíklegt að þau yrðu dæmd. Hann hafði rangt fyrir sér. Selahattin Kula var dæmdur í 10 ára fangelsi og konan í tveggja ára skil- orðsbundið. Kula sat mjög stutt inni og síðan voru þau send í kyrrþey til Tyrklands. Þau höfðu aldrei viður- kennt neitt. Sérstæð sakamál Sérstæð sakamál LOKAÐ í DAG OG ALLA LAUGARDAGA í SUMAR JIB Jón Loftsson hf. Hringbraut 121 Sími 10600 | Til sölu SCOUTIIARG. 1976, dökkgrænn, 8 cyl., beinskiptur, vökvastýri, aflbremsur, sportfelgur og góð dekk. Mjög fallegur bfll. Allur nýtekinn í gegn. Góó kjör. TÖGGURHR |°™T'L.r SAAB UMBOÐIÐ I ■VL. H I UHU. Bildshðfða 16 — Símar 81530 og 83104. M0T0CR0SS M0T0CR0SS Fyrsta motocrosskeppni sumarsins verður haldin laugar- dagmn 23. júní kl. 14.00 rétt sunnan við Grindavíkurafleggjar- ann. Keppt verður í 125 cc—250 cc og 500 cc, flokkum. Keppnin gefur stig til Islandsmeistaratitils. Keppendur skrái sig á staðnum eða í síma 82444 (Kristín). VÉLHJÓLAÍÞRÚTTAKLÚBBURINN. Kr. 24.000 [Vf Bus/ness Language/Commerce 10, Business Correspondence/Communications 0 Word Processing or Introduction to computing or Optional Buisness Studies Underwood College er sérhæfður skóll í vlðskiptagreinum, hann er staðsettur í Bournemouth á S-Englandi. Skólinn býður þér 3ja vikna námskeið í ofantöldum greinum dagana 6. - 24. ágúst 1984. Innifalið í verði er: Öll námsgögn Tvær skoðunarferðir Gisting hjá fjölskyldu m/morgunmat + kvöldmat. Anna Ingölfsdóttir — Löngufit 11 — Garöabæ — Sími 52795

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.