Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.1984, Qupperneq 48

Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.1984, Qupperneq 48
FRETTASKOTIÐ 687858 SÍMINN SEM ALDREI SEFUR Sími ritstjórnar: 68-66 11. Auglýsingar, áskrift og dreifing, sími 27022. Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt — hringdu þá i sima 68-78-58. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eða er notað i DV, greið- ast 1.000 krónur og 3.000 krónur fyrir besta fréttaskotið i hverri viku. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. LAUGARDAGUR 23. JÚNÍ 1984. sr Skipað ao sigla =■ beint tíi Esbierg Þýski fálkaeggjaþjófurinn Miro- slav P. Baly er strokinn úr landi og er nú um borð í þýska flutninga- skipinu Eliza Heeren sem er á leið til Hamborgar. Bæði dómsmálaráðu- neytiö og Hafskip, leigutaki þýska skipsins sem lagði úr höfn hér á þriðjudagskvöldið, skipuðu skip- stjóranum að sigla skipi sínu til Esbjerg í Danmörku og láta Miroslav fara þar frá borði, en sam- kvæmt þýskum lögum má skip- stjórinn ekki afhenda þýskan þegn öðrum en þýskum yfirvöldum. Um kvöldmatarleytið í gærdag ákvaö skipstjórinn aö hlýða og sigla skipi sínu til Esbjerg og kemur það þangaö kl. 3 aðfaranótt sunnudags- ins. Hafskip mun hafa þurft að hóta honum að færi hann ekki að fyrir- mælum þess væri þaö brot á leigu- samningum og mundi Hafskip ekki borga þann samning. Lét skipstjórinn þá undan en hann hafði sagt ákveðið í samtali við DV fyrr um daginn að hann væri ákveðinn í að sigla skipinu áfram til Hamborg- ar. Miroslav var á herbergi á Hjálpræðishemum meðan mál hans var í rannsókn hér og gaf hann sig fram við Útlendingaeftirlitið tvisvar í viku. Á þriðjudagsmorguninn fór hann frá Hjálpræðishernum og hefur ekki sést síöan en fullvíst er talið að hann hafi fengiö að fara með þýska skipinu er það lét úr höfn en ekki verið laumufarþegi. -KÞ/FRI. DV var bannafl afl mynda sefllaflutningabil Seðlabankans þar sem hann stóð á verkstæfli Bilvangs í gærdag en hins vegar stófl sams konar bíll fyrir utan verkstæflið. DV-mynd Bj.Bj. LUKKUDAGAR 23. júní 18646 HLJÓMPLATA FRÁ FALKANUM AÐ VERÐMÆTI KR. 400,- Vinningshafar hringi í síma 20068 Seðlabíll á eina og hálfa millión Engdistsundurog saman eftir málsverð áHótelSögu: Matar- eitrun í Grillinu „Þetta var ekki skemmtilegt kvöld. Við þurftum að bíða lengi eftir matnum og þegar hann kom var hann alls ekki góður. En um þverbak keyrði þó þegar ég kom heim. Þá veiktist ég hastarlega, engdist sundur og saman, kastaði upp, fékk niðurgang og svo leið yfir mig.” Eins og sjá má átti Loftur Þorsteinsson verkfræðingur ekki skemmtilega kvöldstund í Grillinu á Hótel Sögu á föstudagskvöldið í síðustu viku. Hann fárveiktist eftir að hafa setið þar matarveislu ásamt 11 félögum sínum og er læknir vitjaði hans um nóttina taldi hann víst aö um matareitrun væri að ræða”, eins og Loftur orðar það. Einn annar úr hópnum varð einnig veikur, þ'ó ekki jafnhastar- lega og Loftur. Þá er vitað um Dana einn sem einnig varð veikur þetta kvöld eftir málsverð í Grill- inu. Að sögn Wilhelms Wessman voru tekin sýni úr öllum mat veit- ingahússins strax og ljóst varð hvað gerst hafði en enn hefur ekkert það komið fram sem skýrt getur hvað olli. „Við höfum kannað hvað þessir menn átu sem aðrir neyttu ekki og niðurstaða okkar er að það hafi verið ferskt grænmetis- salat. Þjónar okkar tóku sérstak- lega eftir því hversu mikið Daninn borðaði af því, ” sagði Wilhelm. LOKI Seðlabankinn hefur fest kaup á bíl frá Sambandinu eða hinu nýja fyrir- tæki þess, Bílvangi, og er kaupverð hans 1,5 milljónir kr. Þetta er stór fjór- hjóladrifsbíll af gerðinni Chevrolet Suburban og getur hann tekið allt að 8 farþegum. Stefán Þórarinsson hjá Seölabank- anum sagði í samtali viö DV aö ætlunin væri að nota bílinn fyrst og fremst til seðlaflutninga út um allt land í þær 23 seðlageymslur sem bankinn hefði. ,,Þar sem nú hafa verið geröar aukn- ar öryggiskröfur um flutninga af þessu tagi er mikilvægt að bankinn hafi öruggan bíl í þá,” sagði hann. „Okkur vantaði auk þess vel útbúinn bíl með drifi á öllum hjólum til þessara flutninga þar sem mikið af þeim fer fram að vetrarlagi og þessi bíll upp- fyllirþauskilyrði.” I máli Stefáns kom ennfremur fram að bankinn hefði kannaö markaöinn fyrir svona bíla áður en ákvöröun var tekin um kaup á þessum. -FRI „Eg pantaði mér sjávarrétti í for- rétt, soðinn lax í aðalrétt, afarilla útlítandi og fékk svo marglitan ís i eftirrétt,” sagði Loftur Þorsteins- son sem nú hefur náð fullri heilsu. Það skal tekið fram að laxinn, sem er framreiddur í Grillinu, er allur úr þekktri laxveiðiá á Suðvestur- landi — Hvítá. .eir. Farþegartilíslands: RÚMLEGA13 ÞÚSUND K0MU í MAÍ Því miður, ég reyndi að ná í Svavar en það var á tali. Alls kom 13.381 farþegi til Islands í maímánuði, með skipum og flug- vélum. Þar af voru útlendingar 7.307 talsins en Islendingar 6.074. Flestir útlendinganna voru Banda- ríkjamenn, eða 2347. Frá Norður- löndum komu 926 Danir, 541 Norð- maður, 815 Svíar og 158 Finnar. Vestur-Þjóöverjar voru 841 og Bret-. ar 692. Frá Sviss komu 244, frá Frakklandi 128 og frá Austurríki 181. Frá hverju eftirtalinna landa kom aðeins einn farþegi: Kólumbíu, Indónesíu, Jamaica, Jórdaníu, Pól- landi, Sýrlandi, Tyrklandi, Austur- Þýskalandi og Fiji-eyjum. -pá.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.