Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.1984, Side 3
DV. MÁNUDAGUR 25. JUNI1984.
3
Gifting Svavars og indíánaprinsessunnar Mariam:
VARIALLA STAÐI ^^150^!?.
ff I nkkfl w I NúheitirSvavar
r Tau-ea-tson á
STORKOSTLEG STUND” -
„Þetta var í alla staði stórkostleg
stund, sú stærsta í lífi minu, og ég er
j^fir mig ánægður með hve vel þetta
tókst allt til,” sagði Svavar Hansson,
Isiendingurínn sem gekk í það heilaga
með indiánaprínsessunni Maríam frá
Oklahoma síðastliðinn föstudag.
Giftingarveislan fór fram í indíána-
þorpinu Anadarko í Oklahoma og hófst
klukkan tvö eftir hádegið á föstudag.
Mikið fjölmenni var í veislunni. Aður
en brúðhjónin voru gefin saman var
Svavari gefið nafn og hann tekinn inn i
Kiowaættbálkinn.
Fékk nafnið Tau-ga-tson
„Þeir gáfu mér nafnið Tau-ga-tson,
Man from far away,” sagði Svavar um
nafngiftina. Man from far away út-
leggst á íslensku sem „hinn langt að
komnimaður”.
Þegar veislan var haldin skörtuðu
veðurguðimir sínu fegursta. Það var
um 40 stiga hiti og þægilegur vindur.
Móðir Svavars, Hrefna
Kristjánsdóttir Fraser, og systur, þær
Sólrún og Steinunn Hansdætur, voru í
þessarí stórkostlegu veislu. Þá voru
móðursystur Svavars einnig
viðstaddar. Þær heita Björg og Inga
Jóna Kristjánsdóttir og búa báðar í
Reykjavík.
Þegar athöfnin hófst settust báðar
ættirnar í eins konar U á forkunnar-
fögru grasinu á hátíðarreit Andarko-
þorpsins. Ættingjar Svavars voru
norðanmegin en ættingjar Mariam aö
sunnanverðu.
Fyrst var Svavari gefið nafn og
síðan var hann ættleiddur. Sú athöfn
var mjög hátiöleg og fór fram á tungu
Kiowa. Sjálf giftingin var hins vegar á
ensku.
Ræða Svavars á indíána-
málinu
Presturinn, sem gaf þau saman, er
úr Kiowaættbálknum. Svavar þurfti að
halda smáræöu á tungu þeirra Kiowa.
„Hún var stutt og laggóð enda erfitt
tungumál að læra,” sagði Svavar hlæj-
andi er við spurðum hvemig indíána-
ræðan hans heföi tekist.
Svavar bætti þó um betur og hélt
einnig ræðu á ensku. „Hann er vanur
ræðumaöur, þannig að þetta tókst
glimrandi hjá honum,” sagði systir
hans, Sólrún, en hún var svona í
leiöinni fréttamaöur DV á staðnum.
Sólrún sagði ennfremur að giftingin
hefði vakið mikla athygli í Oklahoma
og verið á forsíðu Anadarko News tvo
daga i röð.
Fékk 70 hektara lands
og 150 konur
Svavari var ekki aðeins gefið nafn
og hann tekinn inn í ættbálkinn. Hann
fékk í brúðargjöf land og hesta ásamt
ýmsu öðra. „Ég trúði þessu bókstaf-
lega ekki í fyrstu, þetta er 70 hektara
land hér skammt frá í Oklahoma sem
viðfengum.”
Þrátt fyrir að Svavar hafi verið að
ganga að eiga indíánaprinsessu er sú
hefð hjá indíánum að um leiö og karl-
maður er tekinn inn í ættbálkana
„eignast” hann fleiri konur.
Svavar sagði skemmtilega frá
þessu: „Þeir gáfu mér 150 konur.
Þetta er auðvitað bara hefð hjá þeim
en þær komu allar og heilsuðu upp á
mig. Sögðust vera konurnar mínar og
hlógudátt.”
Kræsingarnar, sem boðið var upp á í
veislunni, voru ekki af verri endanum,
^nautakjöt eins og það geríst best í
Bandaríkjunum.
IMautakjöt steikt á teinum
„Þeir steiktu kjötiö á teinum yfir eldi
og sneru því stööugt svo það steiktist
sem best. Þetta voru engar smá-
sneiðar sem síðan voru framreiddar,
ég held aö ég hafi aldrei bragöaö
jafngott nautakjöt,” sagði Sólrún um
kræsingamar.
Undirbúningur fyrir veisluna tók
langan tima og ótrúieg vinna lögö í
hana. Til marks um það má nefna að
brúöarkjóll Mariam var þrjá mánuöi í
vinnslu. Hann var úr hvítu skinni,
skreyttur bláum gUtsteinum.
Áður en aö veisiunni kom hafði
Mariam saumaö indiánasjöl handa
þeim Sólrúnu og Steinunni sem þær
klæddust við athöfnina.
Annars voru viðstaddir ekki í því
eina sanna indíánapússi sem við
þekkjum úr kvikmyndum. Léttur
klæðnaður var iátinn duga, enda
eflaust ekki þægilegt aö vera i leöur-
fötum i um 40 stiga hita.
En þætti Svavars vegna
brúökaupsins er ekki alveg lokið. Hann
heldur í dag, mánudag, í hvorki meira
né minna en 4 þúsund mílna feröalag.
Farin verður sú leið sem Kiowar
fóru fyrir um 5 til 6 hundruð árum.
Ferðalagið hefst í inkalöndum,
(Mexico) og verður farið í gegnum
Bandaríkin, aUt til Kanada. Meö
honum í þessari för verður afi
Mariam, þjóöhöfðingi Kiowa, ásamt
fleirum.
En við ljúkum þessari frásögn af
giftingarveislu Svavars og Mariam
með orðum systur hans, Sólrúnar.
„Við Steinunn sendum kveðjur heim.
Þetta er búið að vera ólýsanlega
gaman, í einu orði sagt f rábært. ”
-JGH.
EKKI KAUPA
NISSAN CHERRY
BARA AF ÞVÍ AÐ ÞÉR FINNST HANN
FALLEGUR 0G SKEMMTILEGUR.
77/ að leiðbeina neytendum gerði danska tímarítið Penge ft Prívatökonomi víð-
tæka könnun á kostnaðí við rekstur bíia í 3 ár og miðaði við 45 þús. km akstur.
Nissan Cherry og Nissan Sunny voru meðal bíla sem kannaðir voru auk bíla frá
Ford, Toyota, Fiat, Volkswagen og mörgum fleiri.
Langódýrastir og öruggastir i rekstri reyndust vera Nissan Cherry og
Nissan Sunny.
Þess vegna gefum við einir 2JA ÁRA ábyrgð á vél, gírkassa og drifi.
VERÐ FRÁ KR. 267.000,-
ÞÚ GETUR VARIÐ PENINGUNUM ÞÍNUM VEL
0G KEYPT NISSAN. ÞÁ ERTU ÖRUGGUR.
03
IIMGVAR HELGASON HF
Sýningarsalurinn/Rauðagerði, sími 33560.