Dagblaðið Vísir - DV - 24.08.1984, Síða 1
E
Frjálst, óháð dagblað
DAGBLAÐIÐ — VISIR
194. TBL. — 74. og 10. ÁRG. FÖSTUDAGUR 24. ÁGÚST 1984
Fómarlömb réttarkerfisins í félag?
i Ekki er ólíklegt aö ýmsir einstakl-
ingar, sem eiga undir högg aö sækja
þar sem mál þeirra velkjast um í
réttarkerfinu svo mánuðum skiptir
án þess aö niðurstaða fáist, stofni
félag um sameigínleg vandræði sin.
Sameiginlegt eiga þessir aðilar allir
að vera „venjulegt, alþýölegt fólk
sem á enga aö á æðri stöðum”, eins
ogþaðsjálftsegir.
DV ræðir við þrjá af væntanlegum
stofnendum i biaðinu í dag.
sjábls. 2
Ekkivökva,
ekkiþvo
— sjábls. 11
m
1
IMynd þessi er tekin á Mánárbakka á Tjörnesi þar sem
japanskir vísindamenn eru aö setja upp rannsóknarstöð
sem er ein sex samvirkandi stöðva sem eiga að fylgjast með
norðurljósum. í fyrra var slík stöð sett upp í Borgarfirði og
sú þriðja verður á ísafirði. Hinar þrjár stöðvarnar verða á \
Suðurskautslandinu. DV-mynd: ingibjörg Magnúsdóttir
Dilkakjötá
myndböndum
— sjábls.8
Mengun alltað
kæfaíSovét
— sjá bls. 10
klitbeitiland
aðveröabúið
-sjábls.3
Eistlensku
hjóninfáekkí
dótturina
-sjábls.7
Irokkbuxum
ogstrigaskóm
-sjá vinsældalistana
ábls.37
Landssamband kartöf lubænda og Grænmetisverslunin:
Refsiaðgerðir gegn
frjálsum” bændum
—fá ekki að skila inn kartöf lum til Grænmetisverslunarinnar
—verðlækkun líkleg
Stjórn Landssambands kartöflu-
bænda ákvað í gær á fundi aö þeim
bændum sem selja kartöflur sínar
beint til kaupmanna yröi ekki leyft að
skila kartöflum sínum einnig í Græn-
metisverslun landbúnaðarins.
„Fram að þessu höfum við fylgt
þeirri stefnu að hlutfallslega jafnt sé
tekiö af kartöflum frá hverjum bónda
og þannig sitji aliir við sama borð. Það
sem hefur gerst undanfarið í sölu-
málunum hefur raskað töluvert þessu
jafnvægi. Með þessum aðgerðum erum
við að reyna að fá aftur einhvern jöfn-
uð.
Og við ætlumst til að Grænmetis-
verslunin fari eftir þessari ákvörðun
okkar,” sagði Magnús H. Sigurðsson,
formaður Landssambandsins, í viðtali
viö DV í morgun.
Magnús var einnig spurður hvort
það væri rétt að Landssambandið ætl-
aði að láta lækka verð á kartöflum nið-
ur úr öllu valdi, tímabundið. Slíkt hefði
í för með sér að þeir bændur sem selja
beint yrðu jafnvel að selja alla fram-
leiöslu sína á algjöru lágmarksverði.
Ákvörðun sem þessi hefði hins vegar
lítil áhrif á fjárhagsafkomu þeirra
bænda sem skila sinum kartöflum i
Grænmetisverslunina því aöeins yrði
tekiö lítið brot af kartöflum frá hverj-
um bónda á þessu verði.
Magnús sagði að þetta væri ekki rétt
en hins vegar væri kominn tími til að
lækka verðið á kartöflum og sagðist
hann búast við því að sú lækkun yrði
nokkuð mikil vegna þess að dregist
hefði að lækka verðið í nokkurn tima.
Hann sagði aö sexmannanefndin kæmi
saman nú um helgina og tæki ákvörðun
um verðið.
Nú stendur fundur Framleiðsluráðs
yfir þar sem fjallað verður um þá
kröfu bænda að þeir sjálfir fái að
stjórna Grænmetisversluninni.
„Við sjáum hvað setur og ég vil engu
spá um hver verður niðurstaða fram-
leiðsluráðsfundarins. Ég vonast eftir
jákvæðri umfjöllun um málið,” sagði
Magnús.
APH