Dagblaðið Vísir - DV - 24.08.1984, Side 3

Dagblaðið Vísir - DV - 24.08.1984, Side 3
DV. FÖSTUDAGUR 24. ÁGUST1984. 3 Eins og sést á myndinni nemur hæð skiitanna ekki nema rétt rúmlega hæð einnar fólksbifreiðar og það afminni gerðinni. (D V-mynd Kristján Ari) Hættulegar vegamerkingar á Grandanum: „Stendur til að hækka skiltin" „Ég hélt satt að segja að það væri búið aö flytja skiltin,” sagði Guttormur Þormar verkfræðingur, framkvæmdastjóri umferðarnefndar borgarverkfræðings, er hann var spurður um, hvort ekki ætti að lagfæra vegamerkingarnar vestur á Granda. Þessi vegamerkingaskilti eru höfð mjög nálægt vegarkantinum og eru þar að auki mjög lág. Hætt er viö að bílar rekist í þessi skilti, en börn á reið- hjóli og gangandi vegfarendur geta einnig átt á hættu aö rekast á þau. Guttormur sagði aö þeim hjá um- ferðarnefnd hefði verið bent á slæma staðsetningu skiltanna og hann hefði beðið sína menn um aö lagfæra þau og setja á hærri stöng. „Það stendur sannarlega til að færa skiltin, þau eru flest of lág. Eg geri ráö fyrir að það hafi hreinlega ekki unnist tími til þessa Vilja takavið stjórn Grænmetis- verslunarinnar Fulltrúaráð Landsambands kartöflubænda hefur óskað eftir við- ræðum við landbúnaðarráðuneytið um stjórn Grænmetisverslunarinnar með það fyrir augum að kartöflubændur taki alfarið viö stjórn hennar. Að sögn Guðmundar Sigþórssonar, skrifstofustjóra í landbúnaðarráðu- neytinu, munu þessar tillögur verða ræddar í ráðuneytinu. En til þess að slík breyting geti átt sér stað verður annaðhvort að koma til lagabreyting eða þá að Framleiðsluráð land- búnaðarins afsali sér stjórnuninni tU framkvæmdaráðsins. APH núna í góðviðrinu. Nú er aUur mann- skapurinn úti að mála göturnar,” sagöi Guttormur. „Sem betur fer vitum við ekki til þess aö slys hafi hlotist af skiltunum en þau verða vafa- laust lagfærð mjög bráðlega.” ÞJH Stutt í að ekkert nýtanlegt beiti- land verði eftir — segir Hákon Bjarnason, fyrrverandi skógræktarstjóri „Eg sagði við konuna mína áðan, þegar ég var búinn að sjá greinina, að það væri ágætt að útlendingar væru að benda á þetta því að Islend- ingar trúa miklu frekar því sem út- lendingar segja, jafnvel þótt þeir ljúgi, en því sem Islendingar eru að reyna að sýna fram á meö rökum,” sagði Hákon Bjarnason, fyrrverandi skógræktarstjóri, um fréttir frá Vestur-Þýskalandi um að sauðkindin væri að breyta Islandi í eyðimörk. „Það er ekki nokkur vafi á því aö þetta er rétt í aðalatriðum. Það er ómögulegt aö reikna út tímann nákvæmlega en þess verður ekki langt að bíöa, ef ofbeitinni verður fram haldið, að það veröi ekkert nýtanlegt beitiland eftir. Þegar árið 1942 þóttist ég í grein í ársriti Skógræktarfélags Islands sýna fram á það með rökum að sauðfé væri of margt í landinu. Þá brugöust menn reiðir við. I stað þess að svara málefnalega var svarað í reiði- og hæðnistón og ég var kallað- ur óvinur landbúnaöarins. Núna í seinni tíð hafa margir komist aö því að landiö hefur veriö ofbeitt í langan tíma. Of mikiö álag á beitargróðri er orsök landeyöingar. Þaö er of mikið af búfé í högum, Sauðfé er á góðri leið með að éta island upp til agna, sagði í frétt í þýsku blaði nýlega. Þar er vitnað í doktorsritgerð og sagt að með sama áframhaldi verði gróðurlendi að mestu horfið um næstu aldamót. ekki aðeins af sauöfé heldur einnig hrossum. Það væri sennilega alveg nóg fyrir Islendinga að hafa 300 til 400 þúsund fjár, 10 til 15 þúsund hross og svo eitt- hvað af holdanautum, svínum og ali- f uglum. Þetta ætti að geta framfleytt okkur. Menn verða líka að athuga að ef fé fækkaö í högum verða afuröirnar af hverri kind miklu meiri. Eg get nefnt sem dæmi að meöan fallþungi dilka úr Þingvallasveit er 12—13 kíló er fallþungi dilka úr þjóðgarðinum á Þingvöllum .18 kíló. Fallþunginn er 5—6 kílóum meiri af því að í þjóðgarðinum er nóg að bíta. Það er hörmulegt að vita til þess að menn skuli enn beita fé á tún bæði vor og haust og fóðra sæmilega vel en hafa ekki meira fallþunga heldur en raun ber vitni um. Eftir mæði- veikiniðurskurðinn upp úr 1940 komst fallþungi víða upp í 17—18 kíló þegar beitilöndin höfðu notið friðunar í eitt til tvö ár. En tilfellið er að þetta er pólitískt mál og verður að leysast á pólitískan hátt. Það eru niðurgreiöslumar sem gera dæmið svo skakkt. Undirrótin er kannski kjördæmaskipanin,” sagðiHákonBjarnason. -KMU. BILASYNING SUNNUDAG LAUGARDAG KL. 14-17 SAUÐARKROKIA BIFREIÐAVERKSTÆÐINU ÁKA, í REYKJAVÍK AÐ MELAVÖLLUM VIÐ RAUÐAGERÐI. Nissan Patrol með 6 strokka dísilvél, aflstýri, 5 gíra og 7 manna. Verð aðeins kr. 762.700,- Nissan Stanza 1,8 GL, 5 dyra, framhjóladrifinn lúx- usbíll, á aðeins kr. 411.300,- Pétur Einarsson heildsali: Éger saklaus DV hefur borist eftirfarandi yfirlýsing frá Pétri Einarssyni heildsala: „Hér með er þess óskað að DV birti strax eftirfarandi at- hugasemd vegna fréttar blaðsins á forsíðu og bls. 5 þann 22. ágúst sl. þar sem ég er borinn þungum og röngum ásökunum. Ég undirritaður, Pétur Einars- son, hef aldrei tekið til persónu- legra nota víxla samþ. og afhenta af eiginkonu Omars Kristvinssonar eins og haldið er fram í greindri frétt. Eg er ekki valdur aö hans erfiðleikum eins og haldið er fram. Eins og mál þetta stendur nú ræði ég það ekki frekar.” E 10 Subaru, fjórhjóladrifin sendibifreið, 5 gíra og óstöðvandi í allri ófærð, á aðeins kr. 264.300,- Nissan Micra 1.0 DX; 4,1 I á hundraðið, sá sparneytnasti sem völ er á í dag, á aðeins kr. 258.072,-________________________________________ 2ja ára ábyrgð á vél, gírkassa og drifi, ársábyrgð á öllu öðru á öllum Nissan- og Subaru-bílum. Munið: 20.000 kr. staðgreiðsluafsláttur sé bíllinn borg- aður upp innan mánaðar. Hjá okkur er fjölbreytnin mest og kjörin best. ra INGVAR HELGASON HF. Sýningarsalurinn/Rauðagerði, sími 33560. Baldur Heiðdal, Sauðárkróki.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.